KEN 007 M Markmi hfnivimi og nmsmat Ingvar

  • Slides: 34
Download presentation
KEN 007 M - Markmið, hæfniviðmið og námsmat Ingvar Sigurgeirsson Námsmat í þróun 8.

KEN 007 M - Markmið, hæfniviðmið og námsmat Ingvar Sigurgeirsson Námsmat í þróun 8. 9. 2012

Þróun námsmats í skólum hér á landi um þessar mundir Framhaldsskólastigið verður í brennidepli

Þróun námsmats í skólum hér á landi um þessar mundir Framhaldsskólastigið verður í brennidepli en einnig verður vikið að áhugaverðum verkefnum í grunnskólum og jafnvel tekin dæmi af háskólastigi. Margir kennarar hafa á undanförnum árum verið að þreifa sig áfram með óhefðbundið námsmat og leiðsagnarmat. Nefna má óhefðbundin próf af ýmsu tagi, vitnisburðar- og umsagnarform, leiðarbækur, námsmöppur, sjálfsmat og jafningjamat, svo fátt eitt sé nefnt. Gefin verða dæmi um þetta og efnt til umræðu um kosti og galla þessara aðferða og álitamál sem þeim tengjast.

Vandi að ræða námsmat í framhaldsskólum! • Lítið sem ekkert er vitað (örugg vitneskja)

Vandi að ræða námsmat í framhaldsskólum! • Lítið sem ekkert er vitað (örugg vitneskja) um hvernig námsmati er háttað í framhaldsskólum hér á landi! • Raunar er sáralítið vitað um kennsluhætti í framhaldsskólanum yfirleitt!!! • Þó þetta: – Athugun Rósu M. Grétarsdóttur og Sigurbjargar Einarsdóttur (2006) á námsmati í þremur framhaldsskólum (MH, MA og FG) – Rannsókn Rósu (2007) á viðhorfum íslenskukennara til námsmats – Rannsókn Ragnheiðar Hermannsdóttur (2008) á viðhorfum nemenda til námsmats – Verkefni nemenda á námskeiðinu Að vanda til námsmats (2008– 2009)

Samanburður á tveimur framhaldsskólum 10 9 8 7 6 5 FSu 4 ME 3

Samanburður á tveimur framhaldsskólum 10 9 8 7 6 5 FSu 4 ME 3 2 1 0 1 2 3 4 5 6 7 8 9101112131415161718192021222324252627282930313233343536373839404142434445464748495051525354555657585960616263 Helgi Hermannsson (Fjölbrautaskóla Suðurlands) og Jón Ingi Sigurbjörnsson (Menntaskólanum á Egilstöðum): Tengsl námsmatsaðferða við einkunnir og brottfall – Samanburðarrannsókn (2009).

Mikilvægar spurningar? • Hvernig er námsmati yfirleitt háttað í framhaldsskólum? En í ykkar skólum.

Mikilvægar spurningar? • Hvernig er námsmati yfirleitt háttað í framhaldsskólum? En í ykkar skólum. . . áföngum? • Eru námsmatsaðferðirnar að skila góðum árangri? • Eru þetta bestu aðferðir sem völ er á? • Hvað þarf helst að bæta eða þróa í námsmati og hvaða leiðir koma helst til greina við að bæta námsmat? • Á hverju á að byggja þróun námsmats? Rannsóknir Reynsla Námskrá

Ný námskrá. . . • • • Æskilegt er að í námsmati felist jafnframt

Ný námskrá. . . • • • Æskilegt er að í námsmati felist jafnframt leiðsagnarmat, það er leiðbeining til nemenda um hvernig hann geti með árangursríkustum hætti hagað námi sínu í framhaldinu. Mikilvægt er að skólar setji sér stefnu varðandi fjölbreytt námsmat og leiðsögn nemenda. Námsmat skal byggja á margvíslegum námsmatsaðferðum og fela í sér traustar heimildir um hæfni nemandans. Þess skal gætt að námsmatið taki til allra þátta námsins þannig að þekking nemandans, leikni og hæfni auk framfara sé metin. Námsmatsaðferðir geta verið verklegar, munnlegar eða skriflegar, falið í sér sjálfsmat, jafningjamat, símat og lokamat. (Menntamálaráðuneytið, 2011. bls. 42, leturbr. IS)

Ný námskrá. . . Tíuskalinn stendur enn traustum fótum Niðurstöður námsmats má birta sem

Ný námskrá. . . Tíuskalinn stendur enn traustum fótum Niðurstöður námsmats má birta sem einkunnir og/eða umsagnir. Lokavitnisburður sem birtist á útgefnum námsferli og prófskírteinum nemenda, skal vera í heilum tölum á bilinu 1 -10 eða í kerfi sem hægt er að tengja við það með skýrum hætti. Sú krafa er sett fram til að auðvelda mat á námi nemenda milli skóla. Að jafnaði skal miða við að 5 sé lágmarkseinkunn til að standast námsáfanga. Frávik frá því skulu skýrð í námsbrautarlýsingu og birtast í skólanámskrá. (Menntamálaráðuneytið, 2011. bls. 42– 43)

 • • • Ólíkir skalar 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8,

• • • Ólíkir skalar 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10 1– 6, 1– 8 A, B, C, D, F (hvar er E-ið? ) A, B, C, D (ný Aðalnámskrá) A, Á, B, D, Ð (Baldur Sigurðsson) Dönsku kerfin, sjá hér Ágætt, gott, sæmilegt, ábótavant, ófullnægjandi Snjallt, gott, hæft, naumt, bágt (Helgi Hálfdanarson) Mjög gott, í lagi, ófullnægjandi Lokið – ólokið • Hvaða aðferð er heppilegust?

Vörður – viðmið við endurgjöf Mjög gott Í lagi Ófullnægjandi Vinnubrögð góð, öllum verkefnum

Vörður – viðmið við endurgjöf Mjög gott Í lagi Ófullnægjandi Vinnubrögð góð, öllum verkefnum skilað. Þátttaka í umræðum og virkni í kennslustundum er mjög góð. Markmiðum áfangans er náð. Vinnubrögð ágæt, verkefnaskil í meðallagi. Þátttaka í umræðum og virkni í kennslustundum í meðallagi. Um helmingi markmiða áfangans er náð. Vinnubrögð ófullnægjandi. Óvirkur þátttakandi í umræðum og virkni í kennslustundum er lítil sem engin. Uppfyllir ekki markmið áfangans. Menntaskóli Borgarfjarðar, sjá nánar hér

Nýi brautskráningarkvarðinn

Nýi brautskráningarkvarðinn

Efasemdir um einkunnir • Rannsóknir Ruth Butler o. fl. frá 1986 og 1988 –

Efasemdir um einkunnir • Rannsóknir Ruth Butler o. fl. frá 1986 og 1988 – Endurgjöf í formi einkunna – Endurgjöf í formi umsagna – Endurgjöf í formi einkunna og umsagna – Engin endurgjöf Hvaða leið skilaði nemendum bestum árangri?

Leiðandi um leiðsagnarmat • Menntaskóli Borgarfjarðar • Fjölbrautaskóli Snæfellinga • Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ

Leiðandi um leiðsagnarmat • Menntaskóli Borgarfjarðar • Fjölbrautaskóli Snæfellinga • Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ

Kjarninn í leiðsagnarmati • Nemandinn fær (stöðuga) endurgjöf um nám sitt ásamt ábendingum um

Kjarninn í leiðsagnarmati • Nemandinn fær (stöðuga) endurgjöf um nám sitt ásamt ábendingum um það hvernig hann geti bætt sig (ráðgjöf, leiðsögn) • Haft er fyrir satt að fjöldi rannsókna (2007, um 4000) sýni þýðingu vandaðs leiðsagnarmats til að bæta námsárangur • Nemendur sem standa höllum fæti virðast njóta sérstaklega góðs af leiðsagnarmati • Sjálfsmat og jafningjamat eru mikilvægir þættir í leiðsagnarmati en meginatriði er að nemendur skilji til hvers er af þeim ætlast (skilji markmiðin) (Sjá um þessar áherslur: Black og Wiliam 1998: Inside the Black Box)

Kennslufræði leiðsagnarmats • Útskýra markmið fyrir nemendum • Markvissar spurningar • Leiðbeinandi endurgjöf (umsagnir)

Kennslufræði leiðsagnarmats • Útskýra markmið fyrir nemendum • Markvissar spurningar • Leiðbeinandi endurgjöf (umsagnir) • Virkja nemendur (sjálfsmat, jafningjamat) • Jafningjakennsla (Wiliam 2007: Changing Classroom Practice)

Hvers vegna vefst einkunnagjöf svona fyrir okkur mörgum? • Knappt form – takmörkuð upplýsing

Hvers vegna vefst einkunnagjöf svona fyrir okkur mörgum? • Knappt form – takmörkuð upplýsing (hvað þýðir einkunnin 7, 0)? • Álitamál? • Óljósir mælikvarðar? Við hvað á að miða? • Einkunnir geta verið afar afdrifaríkar! – Til umhugsunar: Matskvarði KHÍ – Matsatriðabanki Baldurs Sigurðssonar

Nýting sóknarkvarðanna • Sem viðmiðun um gæði (tengt markmiðum í upphafi) • Sjálfsmat •

Nýting sóknarkvarðanna • Sem viðmiðun um gæði (tengt markmiðum í upphafi) • Sjálfsmat • Jafningjamat • Kennaramat • Samskipti við foreldra • Sem vitnisburður

Tvö dæmi um vitnisburðarform • Mat á verkefni (kvarði og umsögn) – Word-skjal -

Tvö dæmi um vitnisburðarform • Mat á verkefni (kvarði og umsögn) – Word-skjal - pdf-skjal (höf. Súsanna Margrét Gestsdóttir) • Mat á verkefni (með hundraðskvarða) – Word-skjal - pdf-skjal (höf. Súsanna Margrét Gestsdóttir)

Skriflegu lokaprófin (sjónarmið efasemdarmanna) ü Skrifleg kunnáttupróf mæla aðeins lítinn hluta námsmarkmiða ü Skrifleg

Skriflegu lokaprófin (sjónarmið efasemdarmanna) ü Skrifleg kunnáttupróf mæla aðeins lítinn hluta námsmarkmiða ü Skrifleg kunnáttupróf er einangrað skólafyrirbæri sem á sér fáar hliðstæður annars staðar í samfélaginu ü Ef meginhlutverk skólans er að undirbúa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi ætti námsmat að líkjast þeim matsaðferðum sem almennt eru notaðar í lífi og starfi ü Námsmat á að vera samofið öðru skólastarfi falla að því með eðlilegum hætti

Óhefðbundin próf • • Próf þar sem nemendur mega nota hjálpargögn „Svindlpróf“, glósupróf, námsefni.

Óhefðbundin próf • • Próf þar sem nemendur mega nota hjálpargögn „Svindlpróf“, glósupróf, námsefni. . . öll gögn Heimapróf Prófverkefni gefin upp með fyrirvara Munnleg próf, dæmi Atrennupróf: Nemendur fá að gera endurteknar tilraunir við sama próf / sömu próf (dæmi prófavikurnar í Salaskóla) Einstaklingsmiðuð próf (Salaskóli, Norðlingaskóli) Samvinnupróf (Salaskóli)

Dæmi um viðhorf nemenda. . . • Próf eru ekkert skemmtileg en nauðsynleg. •

Dæmi um viðhorf nemenda. . . • Próf eru ekkert skemmtileg en nauðsynleg. • Mér finnst prófaaðferðin vera mjög ósanngjörn. • Próf eru náttúrulega hræðsluáróður til að láta mann læra. • Mér finnst prófin geta verið svolítið tilgangslaus út af því stundum lærir maður bara fyrir prófin og gleymir svo öllu þegar það er búið. • Próf krefst ekki mikils skilnings. Úr rannsókn Ragnheiðar Hermannsdóttur (2008)

… ákvað að prófa í fyrsta sinn samvinnupróf/könnun … Prófað var úr tveimur málfræðiatriðum

… ákvað að prófa í fyrsta sinn samvinnupróf/könnun … Prófað var úr tveimur málfræðiatriðum sem þau voru að læra í þýsku og ég lét þau draga miða með hverjum þau lentu (tveir saman). Þau undirbjuggu sig svo heima. Í prófinu hvísluðust þau á og komu sér saman um svar og hvert par skilaði einu blaði (hinn aðilinn fékk svo ljósrit af útlausninni seinna). Efnið sem verið var að prófa hentaði sérlega vel til þessa verkefnis - einkum beyging lýsingarorða þar sem velta þarf fyrir sér kyni orða, falli og endingum veikrar og sterkrar beygingar. Útkoman var mjög góð og nemendur ánægðir. Þeir hafa spurt hvort þeir megi ekki gera svona aftur. Einn nemandi sagði við samstarfskonu mína að maður lærði svo vel fyrir þessa könnun því maður vildi ekki valda samstarfsaðila sínum vonbrigðum! Kv. Ásta Emilsdóttir, Kvennaskólanum

Ég prófaði svindlpróf fyrir stuttu. Það gekk mjög vel og voru stór hópur nemenda

Ég prófaði svindlpróf fyrir stuttu. Það gekk mjög vel og voru stór hópur nemenda sem undirbjó sig samviskusamlega fyrir prófið. Þeir sem ekki undirbjuggu sig fyrir prófið gekk yfirleitt illa. Þeir nemendur sem stóðu sig vel töluðu um að ég hefði platað þau. Þau sögðu að þau hefðu þurft að lesa heilmikið þegar þau voru að búa til svindlmiðann. Skemmtilegt að prófa eitthvað nýtt í skyndiprófum kv. þsig Þórður Sigurðsson, FÁ

Litróf námsmatsaðferðanna ü Próf og kannanir ü Mat á frammistöðu ü Greining og mat

Litróf námsmatsaðferðanna ü Próf og kannanir ü Mat á frammistöðu ü Greining og mat á verkefnum / úrlausnum ü Dagbækur, leiðarbækur, blogg ü Námsmöppur / sýnismöppur („Portfolio assessment“) ü Sjálfstæð verkefni ü Sjálfsmat nemenda ü Jafningjamat ü Umræður – einstaklingsviðtöl – fundir ü Viðhorfakannanir ü Óhefðbundin próf ü Sýningar, námshátíðir, uppskeruhátíðir,

Leiðarbækur – dagbækur – lestrardagbók Ensk heiti: • Reflective diary • Learning protocol •

Leiðarbækur – dagbækur – lestrardagbók Ensk heiti: • Reflective diary • Learning protocol • Learning log • Learning journal • Student journal • . . . blog Tvö dæmi um reynslu kennara af notkun leiðarbóka: • FSn: Sólrún Guðjónsdóttir • FÁ: Þórður Sigurðsson

Dæmi um leiðarbókarverkefni „Ef þú hugsar til baka til þess tíma er þú varst

Dæmi um leiðarbókarverkefni „Ef þú hugsar til baka til þess tíma er þú varst að læra sögu í fyrsta skipti (5. – 6. bekk í grunnskóla), eftir hverju mannstu? Eru það einhver lönd, manneskjur eða atburðir sem þú mannst ennþá eftir frá þessum árum? En hvað með framhaldið? Hvað situr eftir af þeirri sögukennslu sem þú hefur hlotið? Er það bara vitleysa að kenna sögu eða á hún rétt á sér? Á þessari önn könnum við ótrúlega tíma, einveldi, byltingar, lýðveldi, myndun stjórnmálaflokka, styrjaldir, stofnun verkalýðshreyfinga, iðnbyltinguna og svo mætti lengi telja. Er það eitthvað sérstakt sem þú vildir kynna þér vel á önninni? Hvaða væntingar hefur þú til áfangans. Ég veit að þetta eru ótal margar spurningar, en það að ég setji þær hér þýðir ekki endilega að þú þurfir að svara þeim öllum eins og þú værir á prófi, heldur eru þær settar fram til að kveikja í þér, vekja upp minningar og fá þig til að skoða væntingar þínar. Mundu að þú hefur frjálsar hendur hvað uppsetningu leiðarbókar varðar, það eina sem þú þarft að gera er að vanda þig. “ (Sólrún Guðjónsdóttir, FSn)

Dæmi um mat á leiðarbókum (frá Þórði Ásgeirssyni, FÁ)

Dæmi um mat á leiðarbókum (frá Þórði Ásgeirssyni, FÁ)

Viðmiðatöflur (marklistar, sóknarkvarðar) Á ensku: Scoring Rubrics – Tæki sem nota má bæði við

Viðmiðatöflur (marklistar, sóknarkvarðar) Á ensku: Scoring Rubrics – Tæki sem nota má bæði við mat á frammistöðu (flutning, verkefnaskil) og afrakstri (skýrslum, ritgerðum, myndverkum, úrlausnum) – Henta í flestum námsgreinum, á öllum skólastigum – Auka líkur á nákvæmni, óhlutdrægni – Nemendur fá glöggar upplýsingar um til hvers er ætlast

Sjálfsmat

Sjálfsmat

Kannanir • • Heildstæðar kannanir Einstök námskeið eða áfangar, dæmi Mat á önn, dæmi

Kannanir • • Heildstæðar kannanir Einstök námskeið eða áfangar, dæmi Mat á önn, dæmi frá Laugum Leiðsagnarkannanir, dæmi (lífsleikni, MS)

Matsfundir • 10– 20 þátttakendur • Orðið gengur tvo til þrjá hringi: – Jákvæð

Matsfundir • 10– 20 þátttakendur • Orðið gengur tvo til þrjá hringi: – Jákvæð atriði: Hvað eruð þið ánægð með? – Kvörtunarhringur: Hvað má betur fara? • Nemendur nefna eitt / tvö / þrjú atriði eftir því hvað ákveðið hefur verið • Öll atriði eru skráð • Engar umræður

Gagnlegir tenglar • • Kennsluaðferðavefurinn Að vanda til námsmats – Heimasíða námskeiðs Peel –

Gagnlegir tenglar • • Kennsluaðferðavefurinn Að vanda til námsmats – Heimasíða námskeiðs Peel – námsmat Best Practices