Fjlbreytt nmsmat Hugtk Aferir litaml Ingvar Sigurgeirsson mars
Fjölbreytt námsmat Hugtök Aðferðir Álitamál Ingvar Sigurgeirsson - mars 2011
Vandi að ræða námsmat í framhaldsskólum! • Lítið sem ekkert er vitað (örugg vitneskja) um hvernig námsmati er háttað í framhaldsskólum hér á landi! • Raunar er sáralítið vitað um kennsluhætti í framhaldsskólanum yfirleitt!!! • Þó þetta um námsmat: – Athugun Rósu M. Grétarsdóttur og Sigurbjargar Einarsdóttur á námsmati í þremur framhaldsskólum (MH, MA og FG) – Rannsókn Rósu á viðhorfum íslenskukennara til námsmats – Rannsókn Ragnheiðar Hermannsdóttur á viðhorfum nemenda til námsmats – Verkefni nemenda á námskeiðinu Að vanda til námsmats
Mikilvægar spurningar? • Hvernig er námsmati yfirleitt háttað í framhaldsskólum? • Eru námsmatsaðferðirnar að skila góðum árangri? • Eru þetta bestu aðferðir sem völ er á? • Hvað þarf helst að bæta eða þróa í námsmati og hvaða leiðir koma helst til greina við að bæta námsmat? • Á hverju á að byggja þróun námsmats? Rannsóknir Reynsla Námskrá
Ákvæði Aðalnámskrár 2004 Tilgangur námsmats er að kanna að hve miklu leyti nemendur hafa tileinkað sér markmið aðalnámskrár (skólanámskrár) í viðkomandi grein. Námsmat getur farið fram með mismunandi hætti eftir ákvörðun skóla [leturbr. IS]. Umfang þess skal þó að jafnaði vera í samræmi við umfang kennslu í viðkomandi grein. Kennarar bera ábyrgð á námsmati og þeir meta úrlausnir nemenda.
Nýju drögin. . . Meginhlutverk námsmats miðar að því að afla sem öruggastrar vitneskju um árangur skólastarfsins og hvernig einstökum nemendum eða hópum gengur að ná settum markmiðum. Námsmatinu er ætlað að hjálpa nemendum við námið, örva þá og hvetja til að leggja sig enn betur fram. Þess skal gætt að námsmat taki til allra þátta námsins og meti þekkingu nemandans, leikni og hæfni auk framfara. Áhersla á hæfni nemenda felur í sér áherslu á fjölbreyttar námsmatsaðferðir (leturbr. IS). Þær geta verið jafnt verklegar, munnlegar eða skriflegar, falið í sér sjálfsmat, jafningjamat, símat og lokamat. Víðtækt og heildrænt námsmat byggir á margvíslegum námsmats-aðferðum og felur í sér traustar heimildir um hæfni nemandans.
Tíuskalinn stendur enn traustum fótum Við einkunnagjöf er æskilegt að nýttir séu ýmsir möguleikar í framsetningu námsmats. Það fer m. a. eftir lokamarkmiðum námsins hvers konar einkunnagjöf hentar en tengsl vitnisburðarkerfis verða að vera skýr við einkunnaskalann 1 til 10 (leturbr. IS). Sú krafa er sett fram til að auðvelda mat á námi nemenda milli skóla. Miða skal við að 5 sé lágmarkseinkunn til að standast námsáfanga (Aðalnámskrá framhaldsskóla. Almennur hluti (drög).
• • • Tíu-skalinn er ekki náttúrulögmál 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10 1 -6, 1– 8 A, B, C, D, F (hvar er E-ið? ) A, Á, B, D, E, Ð (Baldur Sigurðsson) Dönsku kerfin, sjá hér Ágætt, gott, sæmilegt, ábótavant, ófullnægjandi Snjallt, gott, hæft, naumt, bágt (Helgi Hálfdanarson) Mjög gott, í lagi, ófullnægjandi Lokið – ólokið • Hvaða aðferð er heppilegust?
Námsmatshugtakið Námsmat er öll öflun upplýsinga um nám nemenda og miðlun þeirra til annarra Óformlegt – formlegt Samofið allri kennslu. Kennari fylgist með nemanda í dagsins önn. Allt mat sem ekki er formgert með e-m hætti. Allt skipulegt, formlegt, opinbert námsmat, s. s. próf, kannanir, skipulegar athuganir, skráning á árangri, formlegur vitnisburður.
Fimm mikilvæg námsmatshugtök Greinandi mat: Til að greina námserfiðleika (Diagnostic Assessment) Leiðsagnarmat: Stöðumat: Hvar stendur nemandinn? (Placement Assessment) Til að bæta námið (Formative Assessment) Lokamat / heildarmat: Til að meta námsárangur þegar kennslu er lokið Símat: Stöðugt námsmat á námstíma (Summative Evaluation) (Continuous Assessment / Ongoing Assessment)
Námsmat hefur ekki einn heldur margþættan tilgang Námshvatning – aðhald Upplýsingar til nemenda, foreldra, annarra Vísbendingar til kennara Gæðaeftirlit Gera tilgang námsins ljósari Val og flokkun á fólki
Námsmat vefst fyrir mörgum kennurum. . . m. a vegna þess að. . . ü. . . afdrifaríkt P fyrir þróun sjálfsmyndar P fyrir starfsval og starfsframa P. . . reynir mjög á sanngirni og réttlætiskennd P. . . tengist ólíkum viðhorfum P. . . tengist fordómum okkar P. . . manneskjan er (líklega) ótraust mælitæki!
Bakgrunnur: Gróska, gerjun, deilur Alþjóðleg umræða Bandaríkin: Stöðluð próf eða óhefðbundið námsmat (alternative assessment, sjá grein IS) England: Stöðluð próf eða leiðsagnarmat (formative assessment, sjá t. d. bók Þóru Bjarkar Jónsdóttur á leslista) Sterkur rannsóknargrunnur! Hér á landi Aðferðir sem eru að ryðja sér til rúms: Einstaklingsmiðað námsmat, leiðsagnarmat, sjálfsmat, jafningjamat, námsmöppur (ganga undir ýmsum nöfnum) Dýrmæt reynsla er að verða til!
Leiðandi um leiðsagnarmat • Menntaskóli Borgarfjarðar • Fjölbrautaskóli Snæfellinga • Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
Kjarninn í leiðsagnarmati • Nemandinn fær (stöðuga) endurgjöf um nám sitt ásamt ábendingum um það hvernig hann geti bætt sig (ráðgjöf, leiðsögn) • Haft er fyrir satt að fjöldi rannsókna (2007, um 4000) sýni þýðingu vandaðs leiðsagnarmats til að bæta námsárangur • Nemendur sem standa höllum fæti virðast njóta sérstaklega góðs af leiðsagnarmati • Sjálfsmat og jafningjamat eru mikilvægir þættir í leiðsagnarmati en meginatriði er að nemendur skilji til hvers er af þeim ætlast (skilji markmiðin) (Sjá um þessar áherslur: Black og Wiliam, 1998: Inside the Black Box)
Kennslufræði leiðsagnarmats • Útskýra markmið fyrir nemendum • Markvissar spurningar • Leiðbeinandi endurgjöf (umsagnir) • Virkja nemendur (sjálfsmat, jafningjamat) • Jafningjakennsla (Wiliam, 2007: Changing Classroom Practice)
Ofuráhersla á skrifleg kunnáttupróf er álitamál! ü. . . mæla aðeins lítinn hluta námsmarkmiða ü. . . er einangrað skólafyrirbæri sem á sér fáar hliðstæður annars staðar í samfélaginu ü Ef meginhlutverk skólans er að undirbúa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi ætti námsmat að líkjast þeim matsaðferðum sem almennt eru notaðar í lífi og starfi ü Námsmat á að vera samofið öðru skólastarfi falla að því með eðlilegum hætti
Óhefðbundin próf • • Próf þar sem nemendur mega nota hjálpargögn „Svindlpróf“, glósupróf, námsefni. . . öll gögn Heimapróf Prófverkefni gefin upp með fyrirvara Munnleg próf, dæmi Atrennupróf (nemendur fá að gera endurteknar tilraunir við sama próf / sömu próf) (Salaskóli) Einstaklingsmiðuð próf (Salaskóli, Norðlingaskóli) Samvinnupróf (Salaskóli)
Litróf námsmatsaðferðanna. . . ü Mat á frammistöðu ü Námsmöppur / sýnismöppur („Portfolio“) ü Greining og mat á verkefnum / úrlausnum ü Dagbækur, leiðarbækur ü Sjálfstæð verkefni ü Sjálfsmat nemenda ü ü ü Jafningjamat Umræður – viðtöl Viðhorfakannanir Próf og kannanir Námshátíðir, uppskeruhátíðir (Celebration of Learning, Learning Celebrations)
Rafrænar heimildir um námsmat • Kennsluaðferðavefurinn • Að vanda til námsmats – Heimasíða námskeiðs • Peel – námsmat • Best Practices • http: //www. teachers. tv/ - (Assessment)
- Slides: 19