Vitsmunahyggjahugsmahyggja Um 1960 fer a bera vitsmunahyggjunni Cognitivism
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Um 1960 fer að bera á vitsmunahyggjunni (Cognitivism) • Eru sammála atferlissinnum að rannsóknir á námi og kennslu eigi að vera hlutlægar og þróaðar á raunvísindalegum forsendum • Greinir á við atferlissinna og halda því fram að með því að skoða svör einstaklings til mismunandi áreitis megi draga ályktun um vitsmunalegt ferli sem leiði til svaranna. • Kenningar Piaget hafa haft mikil áhrif á hugmyndir og rannsókni í þróunarsálarfræðinni. Sjá t. d. http: //www. ismennt. is/vefir/fjarnogk/Nogkfjar/valverk/ein st 23 aj. htm Sólrún B. Kristinsdóttir 1
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Samkvæmt kenningum Piaget er hægt að skýra þroska hvers einstaklings út fá meðfæddum eiginleikum og vitsmunalegu ferli. Meðfæddir eiginleikar breytast ekki en vitsmunalegt ferli breytist. Piaget leggur áherslu á tvo meðfædda eiginleika. • Skipulagningu (Organisation): allt vitsmunalegt ferli er tengt og veltur á því að ný þekking tengist þekkingu sem fyrir er þannig að jafnvægi (equilibrium) myndist þ. e. samlaga nýja þekkingu við gamla, ekki bara bæta við. Sólrún B. Kristinsdóttir 2
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja • Aðlögun (adaption): felst í tilhneigingu einstaklins til að hæfa umhverfi sínu - hæfni einstaklings til að lifa af. Felst einkum í tvennu: 1. Samlaga (assimilate) nýjar upplýsingar við þær sem fyrir eru. 2. Tileinka (accommodate) sér upplýsingar/þekkingu Sólrún B. Kristinsdóttir 3
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Dæmi: nemandi er beðin um að svara hver reglan er og fær uppgefnar tölurnar 2 og 4. nemandinn svarar 6 sem er rétt svar. Nemandinn samlagar þessar upplýsingar við þekkingu sem hann hefur fyrir og þær passa ákveðinni reglu sem hann gengur út frá. Hver væri þá næsta tala? Reglan sem nemandi gengur út frá reiknar með tölunni 8 en svarið er 10. Hér er komið ójafnvægi (disequilibrium) sem stendur yfir þar til að nemandinn tileinkar (accommodate) sér nýjar upplýsingar og samlagar (assimilate) þær þekkingunni sem fyrir er. Þegar nemandanum er sagt að næsta tala er 16 þá sér hann að reglan er að leggja alltaf saman tvær síðust tölurnar. Sólrún B. Kristinsdóttir 4
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Hugmyndir Piaget um jafnvægi eru mikilvægar þegar skoðað er hvaða þættir það eru sem valda ójafnvægi. Vitsmunalegur þroski byggir á: • Þroska einstaklings, sem fer eftir aldri og reynslu • Raunhæfilegum möguleikum á að nýta sér reynslu, sem fer eftir aldri og þroska • Reynslan verður til við samspil einstaklingsins og umhverfisins og leiðir til þrennskonar skilnings þ. e. efnislegs skilnings (physical), rökræns-stærðfræði (logico-mathematical) skilnings og féglags (-tilviljunar? ) skilnings (social-arbitrary) Sólrún B. Kristinsdóttir 5
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja • Efnislegur skilningur verður til við meðhöndlun hluta s. s. með því að snerta, lyfta, henda, o. s. frv. • Rökrænn - stærðfræði skilningur verður til við að vinna/leika með hlutinn - ekki hluturinn sem slíkur. Rökrænn skilningur mótast í huga barnsins s. s. hærra, lægra, hraðar Stærðfræðilegur skilningur felst ekki í hlutnum sjálfum heldur með því að skoða hlutinn og setja hann í samhengi við annað. • Félags skilningur lærist í samskiptum við önnur börn, foreldra kennara eða bækur. Tungumál, gildismat, reglur og siðferði lærir hver kynslóð af annarri. Sólrún B. Kristinsdóttir 6
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Það er jafnvægisferlið sem skiptir máli í vitsmunalegri þróun Piaget skiptir vitsmunalegu þróunarferli niður í 4 megin stig 1. Skynhreyfistig (0 -2 ára) 2. Foraðgerarstig eða forstig rökhugsunar (2 -7 ára) 3. Stig hlutbundinnar rökhugsunar (7 -11 ára) 4. Formleg rökhugsun, stig formlegra aðgerða (11 - 15+) Einn grundvalla þátta kenninga Piaget er uppgvötunarnám þ. e. að þekking fæst með því að handleika eða hafa raunverulegt verkefni að fást við Sólrún B. Kristinsdóttir 7
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Seymour Papert byggir á hugmyndum Pigaet þegar hann þróar LOGO “Börn læra frönsku best í Frakklandi það ætti því að vera auðvelt að læra stærðfræði í Stærðfræðilandi” Papert bjó til LOGO forritunarmál til að kenna börnum stærðfræði á grundvelli stærðfræðinnar. Sólrún B. Kristinsdóttir 8
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Jerome Bruner byggir kenningar sínar á hugmyndum Piaget. Nám virðist samsett af þremur þáttum sem vinna saman: • öflun nýrra upplýsinga • umbreyting þessara upplýsinga til að nýtast viðkomandi viðfangsefni • mat á því hvort upplýsingarnar passi viðfangsefninu Sólrún B. Kristinsdóttir 9
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Bruner kom fram með hugmyndir um spíral námskrá (spiral curriculum) Námskrá á að vera byggð upp á viðfangsefnum, áherslum og gildum sem samfélagið telur nauðsynlegt að viðhalda. Samsettning námskrár og námsefnis ætti að vera skipulögð þannig að í byrjun er efnið kynnt á einfaldan hátt og síðan smá saman farið út í smáatrið og flóknari þætti. Sólrún B. Kristinsdóttir 10
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Bruner leggur áherslu á að vitsmunalegur þroski byggir á að viðfangsefið sé þekkt. Maður getur ekki áttað sig á viðfangsefninu fyrr en maður þekkir það. Þessi vitsmunakenning um skilning leggur áherslu á hlutverk þekkingarinnar um það hverning einstaklingurinn túlkar umhverfi sitt. Sólrún B. Kristinsdóttir 11
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Bruner leggur til þrjú kerfi sem gera einstaklingnum kleift að byggja upp það sem hann kallar líkan (model) af tilverunni. Þessi ímynd birtist hjá einstaklingnum 1. Við athöfn (enactive mode) 2. Við ímyndun (iconic mode) 3. Í gegnum tákn og mál (symbolic mode) Sólrún B. Kristinsdóttir 12
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Bruner skoðaði mannin sem tegund og það sem einkennir mannlegt eðli. Fimm þættir sem tengjast þróun mannsins voru skoðaðir • gerð verkfæra • tungumál • félagsleg skipulagning • hvenig maðurinn lengir barnsaldurinn • þörf mannsins á að þekkja og útskýra tilveruna Bruner aðhyllist kenningar Vygotskys um félagsleg menningartengsl (socialculturism) Sólrún B. Kristinsdóttir 13
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Kennigar Vygotskys hafa verið nefndar félagsmenningarleg nálgun hugsmíðahyggjunnar. Hann gengur út frá því að einstaklingurinn sé eftirmynd þeirrar menningar sem hann býr við eða er úr. Þegar Vygotsky talar um þroska í kenningum sínum á hann aðallega við andlegan þroska með skírsotun til hugsunar, tungumáls og rökrænar úrvinnslu. Hann ætlar að þessir hæfileikar þroskist við félagslega víxlverkun við aðra s. s. foreldra, kennara, félaga og þess vegna lýsa þeir sameiginlegri vitund viðkomandi menningar Sólrún B. Kristinsdóttir 14
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Vygotsky skoðaði hvenig verkfæri samfélagið notar til að stuðla að þroska einstaklinganna og hvernig börnin tileinka sér þessi verkfæri á þroskabraut sinni. • Verkfæri sem áþreifanlegt tæki • Verkfæri sem tákn s. s. tungumál Víxlverkunin getur verið á ýmsan máta en Vygotsky leggur áherslu á þátt tungumálsins. Sólrún B. Kristinsdóttir 15
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Vygotsky talar um „svæði mögulegs þroska” eða Zone of Proximal Development. Lýsir því á hvaða þroskastigi einstaklingur er og möguleikum hans á að nýta sér hjálp annarra við að ná hærra þroskastigi. Því meira sem barn er fært um að nýta sér aðstoð hinna fullorðnu því víðara er „ svæði mögulegs þroska” Sólrún B. Kristinsdóttir 16
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Samkvæmt skoðun Vygotsky þá á nám sér stað með virkri þátttöku hugans (internal) um leið og einstaklingurinn tekur virkan þátt í samskiptum við umhverfið (external). Nám (learning) verður með sameiginlegum skilningi á menningu og merkingu og því er raunveruleikinn byggður upp út frá félagslegu sjónarmiði þeirrar menningar sem einstaklingurinn lifir í. Sólrún B. Kristinsdóttir 17
Vitsmunahyggja/hugsmíðahyggja Hugsmíðahyggjan leggur áherslu á uppbyggingu þekkingarinnar og á að nemandinn byggi upp þekkingu sína á þeim reynsluheimi sem hann býr við. Sólrún B. Kristinsdóttir 18
- Slides: 18