Viring ea vantr Vihorf til nemenda me hegunarraskanir

  • Slides: 38
Download presentation
Virðing eða vantrú: Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir Sagt frá rannsókn á hegðun nemenda

Virðing eða vantrú: Viðhorf til nemenda með hegðunarraskanir Sagt frá rannsókn á hegðun nemenda í grunnskólum Reykjavíkur skólaárið 20052006

Rannsóknarskýrsla Ingvar Sigurgeirsson og Ingibjörg Kaldalóns „Gullkista við enda regnbogans“ Rannsókn á hegðunarvanda í

Rannsóknarskýrsla Ingvar Sigurgeirsson og Ingibjörg Kaldalóns „Gullkista við enda regnbogans“ Rannsókn á hegðunarvanda í grunnskólum Reykjavíkur skólaárið 2005– 2006 Skólinn okkar er gullkista við enda regnbogans Við vinnum saman með bros á vör þá blómstrar vináttan (Úr skólasöng Víkurskóla)

Efni – eftir því sem tíminn leyfir • Um rannsóknina • Nokkrar meginniðurstöður –

Efni – eftir því sem tíminn leyfir • Um rannsóknina • Nokkrar meginniðurstöður – Umfang – Munur eftir skólum. . . kynjum. . . aldursstigum • Nokkur einkenni skóla þar sem ekki þurfti að glíma við agavanda • Um kennsluhætti og hegðun • Ályktanir og tillögur

Yfirlit um þau gögn sem aflað var • Megingögn: – Viðtöl við rýnihópa í

Yfirlit um þau gögn sem aflað var • Megingögn: – Viðtöl við rýnihópa í 35 skólum (alls 40 viðtöl) skólaárið 2005– 2006 (alls 233 viðmælendur) – Spurningalisti (208 svör) • Önnur gögn – Viðtöl við starfsfólk tveggja sérkennslustofnana, tveggja þjónustumiðstöðva, starfsmann Fardeildar í Borgarhluta 4 og fulltrúa frá Menntasviði – Viðbótarupplýsingar frá skólunum, skólareglur, reglur um meðferð agamála, lýsingar á úrræðum, lög, reglugerðir, skýrslur, minnisblöð

Viðmælendur í rýnihópum

Viðmælendur í rýnihópum

Spurningar • Hvernig lýsið þið hegðun og framkomu nemenda? • Eru hegðunarvandkvæði í skólanum

Spurningar • Hvernig lýsið þið hegðun og framkomu nemenda? • Eru hegðunarvandkvæði í skólanum og hvernig lýsa þau sér? Hversu þungt brenna þau á ykkur? • Hversu margir nemendur koma við sögu? • Hverjar eru helstu orsakir og áhrifavaldar hegðunarvanda? • Hvernig er tekið á hegðunarvandkvæðum í skólanum? Hvaða aðferðum hefur helst verið beitt? Hvernig hafa þessar aðferðir gefist? • Hvernig gengur samstarf við foreldra? • Hvaðan fá starfsmenn ráðgjöf eða stuðning? • Hvað vantar helst til að starfsfólk skóla nái tökum á hegðunarmálum? Hugmyndir til úrbóta?

Fyrirvarar • Viðtöl – spurningalistar § Fáar vettvangsathuganir § Hvorki var rætt við nemendur

Fyrirvarar • Viðtöl – spurningalistar § Fáar vettvangsathuganir § Hvorki var rætt við nemendur né foreldra • Skólastjórar völdu viðmælendur • Annar aðalstjórnenda var viðstaddur flest viðtöl • Hvenær á barn (hópur) í hegðunarvanda? • Hegðunarvandi sem vandi starfsmanns?

Á móti má segja. . . • Mjög innihaldsríkar samræður • Aflað var ítarlegra

Á móti má segja. . . • Mjög innihaldsríkar samræður • Aflað var ítarlegra viðbótarupplýsinga af ýmsu tagi • Farið var í alla (almenna) skóla í Reykjavík – fjölbreyttar aðstæður – hver skóli er sérstakur! • Góð / a. m. k. sæmileg heildarmynd • Rannsóknin ætti að skapa forsendur til að fylgjast með þróun þessara mála • Umræðurgrundvöllur

Einnig þetta • Hegðunarvandamál eru ákaflega snúin, viðkvæm og vandmeðfarin – Nöfn skóla koma

Einnig þetta • Hegðunarvandamál eru ákaflega snúin, viðkvæm og vandmeðfarin – Nöfn skóla koma ekki fram nema í undantekningartilvikum • Niðurstöður benda til mikillar hreyfingar. . . breytileika. . . sveiflna. . . – Skiptir miklu varðandi ákvarðanir um fyrirkomulag ráðgjafar- og sérfræðiþjónustu

Nokkrar meginniðurstöður • Mikill meirihluti nemenda (89%) á yfirleitt góð samskipti við félaga og

Nokkrar meginniðurstöður • Mikill meirihluti nemenda (89%) á yfirleitt góð samskipti við félaga og starfsfólk • Mikill munur á umfangi mála eftir skólum, kynjum, aldursstigum (? ) • Meirihluti viðmælenda telur að agavandi sé vaxandi!? • Erfiðustu málin eru að sliga starfsfólk. . . úrræðaleysi. . . árekstrar við önnur kerfi

Þreyta og bið. . . … allar greiningar og annað eða beiðnir um greiningar

Þreyta og bið. . . … allar greiningar og annað eða beiðnir um greiningar fara í gegnum nemendaverndarráðið. Og þar er mættur sálfræðingur skólans sem … tekur við greiningunum og svo fer ákveðinn tími í að fjalla um börnin … það pirraði mig svolítið í fyrra … að þetta bar engan árangur. Við vorum alltaf að tala um sömu börnin … og í einhverju ergelsi mínu því ég er fundaritari taldi ég hve oft ákveðin tvö börn hefðu verið nefnd þennan veturinn á nemendverndararáðsfundi. Þá var annað fimmtán sinnum og hitt sautján sinnum … þetta eru vikulegir fundir … og allir að tala um sömu hlutina vegna þess að það gerðist ekkert. Við erum að kalla á hjálp – við öskrum á hjálp. Og það eru einn og tveir og alveg upp í þrír aðilar frá … [þjónustumiðstöðinni] á fundi hjá okkur. Og það gerðist ekki neitt.

Umfang hegðunarvandans

Umfang hegðunarvandans

Skólunum má skipta í þrjá meginflokka (? ) • Lítil eða engin vandamál (sjö

Skólunum má skipta í þrjá meginflokka (? ) • Lítil eða engin vandamál (sjö skólar) • Nokkur vandi, en starfsfólk telur sig almennt hafa tök á málum (21 skóli) • Mörg erfið mál sem hvíla þungt á starfsfólki (sjö skólar)

Mér finnst ekki nein sérstök hegðunarvandamál. Mér finnst þetta ganga mjög vel. Kannski hávaði

Mér finnst ekki nein sérstök hegðunarvandamál. Mér finnst þetta ganga mjög vel. Kannski hávaði í matsalnum – það eina sem er þreytandi. . . Samband kennara og nemenda er einstaklega gott. . . nemendur flykkjast að manni í frímínútum til að spjalla. . . Dæmi um ólíkt ástand Fara ekki að fyrirmælum … hleypa upp … taka alla einbeitingu kennarans … þessi áreiti jafnt og þétt… ógna öðrum nemendum … … leiðinlegar athugasemdir … hnoð og pot … svo er það líka skemmdarverk … reyna að eyðileggja … frammíköll ef kennarinn er að tala … almenn ókurteisi … dagleg vandamál … alla daga … í hverri kennslustund.

Fyrst fleiri dæmi um vanda Það eru nemendur sem eru mjög … eilíf truflun,

Fyrst fleiri dæmi um vanda Það eru nemendur sem eru mjög … eilíf truflun, ókurteisir við kennara og ókurteisir við áhugaleysi, alla. viljaleysi Þeir æða um… hér. . . þeir sparka andfélagslegt atferli … fyrir eru og þá hikstalaust í þá sem virðingaleysi, skiptir hroki, engu máli hvort það er fullorðinn maður kjaftbrúk … eða ekki. Þannig að. . fullorðið fólk sem vinnur hérna getur orðið fyrir barsmíðum.

Lítill eða enginn vandi: Jákvæð viðhorf

Lítill eða enginn vandi: Jákvæð viðhorf

Jákvæð viðhorf: Lítill eða enginn vandi: Þetta byggist á viðhorfum. . . Fyrir hvern

Jákvæð viðhorf: Lítill eða enginn vandi: Þetta byggist á viðhorfum. . . Fyrir hvern er skólinn? Hann er fyrir nemendurna. . . Við eigum að sníða okkur að þeirra þörfum. Það er ekki þannig að ef þau passa ekki „boxin“ að þau eigi að vera annars staðar. Það er bara ekki þannig. . . Þeim er strokið réttsælis og sagt að þau séu frábær. Ekki endalaust verið að pikka í þau fyrir það sem þau geta ekki. . . Það geta allir blómstrað einhvers staðar. . . Hér er ríkjandi það viðhorf að velferð barnsins sé til grundvallar. Það er það viðhorf sem gerir þennan skóla að því sem hann er. Í þeim skólum þar sem agavandamál eru minnst eru viðhorf til foreldra mjög jákvæð og mikil áhersla lögð á öflugt foreldrasamstarf

Jákvæð viðhorf • Gagnkvæm virðing. Við virðum þau og þau okkur. [Jákvæður skólabragur] helgast

Jákvæð viðhorf • Gagnkvæm virðing. Við virðum þau og þau okkur. [Jákvæður skólabragur] helgast af því að þau finna að okkur þykir vænt um þau. Viljum þeim vel, berum virðingu fyrir þeim. Þá verður líka auðveldara að stýra þeim fyrir vikið. • Við sendum skýr skilaboð og reynum að vera fyrirmyndir. Áhersla á samvinnu og traust. Að þau finni sig örugg í skólanum. Við erum vinir þeirra. Við erum hérna til að vinna með þeim.

Jákvæð viðhorf. . . og. . . • • Hlustað eftir röddum nemenda Nemendasamtöl

Jákvæð viðhorf. . . og. . . • • Hlustað eftir röddum nemenda Nemendasamtöl (sbr. starfsmannasamtöl) Bekkjarfundir Nemendum falin ábyrgð Hlýlegt og fallegt umhverfi Söngur Vinaverkefni Samverustundir, samkomur, uppákomur

. . . og. . . • Jafningjakennsla, „meistarakerfi“ • Unglingar aðstoða við gæslu

. . . og. . . • Jafningjakennsla, „meistarakerfi“ • Unglingar aðstoða við gæslu eða kenna leiki (frímínútnavinir) • Öflug lífsleiknikennsla • Námsefni um samskipti • Blöndun innan árgangs eða aldurhópa • Samstaða kennara

Dæmi: Öflug samstaða kennara Við höldum fundi tvisvar sinnum í viku – alltaf. Allt

Dæmi: Öflug samstaða kennara Við höldum fundi tvisvar sinnum í viku – alltaf. Allt árið í kring. Og þar tökum við bara fyrir allt sem brennur á kennurum bæði sem við kemur nemendum og öllu því … sem hugsast getur. Þannig að vitum nákvæmlega hvað er að gerast hjá öðrum kennurum og allir taka eins á öllum málum og við ákveðum nákvæmar leiðir… Sérgreinakennarar koma þarna inn líka þannig að það eru allir … meðvitaðir um vandamálin … það er alveg útilokað, til dæmis, að það gerist að einhver einn kennari lendi í einhverjum algjörum ógöngum sem enginn fréttir neitt af eða er kominn út í móa með málið. Kominn í einhverjar ógöngur með foreldra eða eitthvað slíkt … við bara gerum þetta í sameiningu. Gjörsamlega. Leggjum sameiginlegar línur sem við stöndum saman um algjörlega. Og ef að eitthvað gengur ekki upp þá ræðum við það og finnum einhverja aðra lausn. Þetta er team-vinna algjörlega.

Hvernig byrjar skóladagurinn? (Athyglisverðar hliðarniðurstöður!) Það er eitt sem að mér hefur fundist breyta

Hvernig byrjar skóladagurinn? (Athyglisverðar hliðarniðurstöður!) Það er eitt sem að mér hefur fundist breyta heilmiklu … einhvern tímann voru krakkar settir í röð fyrir utan skólann áður en skólinn byrjaði. . . þar skapaðist ægilegur hiti oft og æsingur og læti … á morgnana þá opnum við húsið korteri áður en tíminn byrjar … nemendur mega fara inn … í kennslustofu og bíða eftir kennaranum. Þetta breytti alveg rosalega miklu. Þau spjalla saman, setjast inn í heimakrók, spila.

Framganga stjórnenda • Taka á móti nemendum og foreldrum í upphafi dags • Fylgjast

Framganga stjórnenda • Taka á móti nemendum og foreldrum í upphafi dags • Fylgjast með í mötuneyti eða borða með nemendum • Hitta nemendur reglulega – Kenna öllum nemendum nokkra tíma í viku – Stýra reglulegum samkomum með nemendum – Halda reglulega fundi með nemendum • Koma við á öllum starfsstöðum daglega / vikulega • Einföld (og snjöll) hugmynd: – Aðstoðarskólastjóri kennir nokkra tíma í 1. bekk

Til umhugsunar Krakkarnir hringja sjálfir heim. . . í einstaka tilvikum reyna foreldrar að

Til umhugsunar Krakkarnir hringja sjálfir heim. . . í einstaka tilvikum reyna foreldrar að verja. . . yfirleitt er þessu tekið vel. . . hefur gríðarlega góð áhrif vegna þess að það eru foreldrarnir sem skamma krakkana en ekki við stjórnendurnir. . . þannig að krakkarnir fara ekki út með neikvæða skoðun á okkur. . . þau geta heldur ekki breytt sögunni. . . þau segja sannleikann þegar þau eru fyrir framan okkur

Munur eftir aldursstigum • Yngsta stigið: Erfiðari eða kotrosknari? – Sex ára stjórnunarreynsla! •

Munur eftir aldursstigum • Yngsta stigið: Erfiðari eða kotrosknari? – Sex ára stjórnunarreynsla! • Miðstigið: Oft erfiðustu málin – oftast drengir – Óþekkt, vesen og vandamál. Þar er fimmti til sjöundi bekkurinn algjörlega afgerandi. Það er þessi aldurshópur sem ekki er að höndla Ísland í dag … Þessi hópur er ekki að höndla tölvutæknina, msn-ið. sms-ið og … • Unglingastigið: Öðruvísi vandi

. . . öðruvísi vandi hjá unglingunum Það er allt of mikil vinna hjá

. . . öðruvísi vandi hjá unglingunum Það er allt of mikil vinna hjá unglingum utan skóla … skelfilegt hvað þau vinna mikið. Þau eru grútsyfjuð, áhugalaus, en hafa nóg af peningum. Kaupa kók og gotterí, endalaus velmegunarneysla … og viðhorfið er þannig að þau segja kennaranum að hann megi ekki hafa próf af því þau séu að vinna … tilætlunarsemin ótrúleg.

Á þetta við rök að styðjast?

Á þetta við rök að styðjast?

Er þetta náttúrulögmál. . . ? ü Yfirgnæfandi meirihluti erfiðra nemenda eru drengir (81%)

Er þetta náttúrulögmál. . . ? ü Yfirgnæfandi meirihluti erfiðra nemenda eru drengir (81%) Stúlkur Drengir Yngsta stig 16% 84% Miðstig 17% 83% Unglingastig 23% 77%

Skýringar á vanda skólanna Hlutfall þeirra sem eru mjög eða frekar sammmála

Skýringar á vanda skólanna Hlutfall þeirra sem eru mjög eða frekar sammmála

Kennsluhættir og hegðun • Hegðunarvandi var yfirleitt ekki tengdur kennsluháttum • Aðeins 16% svarenda

Kennsluhættir og hegðun • Hegðunarvandi var yfirleitt ekki tengdur kennsluháttum • Aðeins 16% svarenda taldi einhæfa kennsluhætti skýra hegðunarvanda • Áhugaverðar undantekningar

Kennsluhættir og hegðun!? V 1: Ekki spurning. V 2: Ég sé gjörbreytingu á miðstigi.

Kennsluhættir og hegðun!? V 1: Ekki spurning. V 2: Ég sé gjörbreytingu á miðstigi. Breyttum kennsluháttum … Sp: … hvaða breytingar voru þið að gera á kennsluháttum? V 2: Þá vorum við meira með einstaklingsmiðað nám. Tókum … verkefni þannig að hver og einn … gat unnið verkefnið út frá eigin forsendum. Og þá sáum við agamálin eins flugu út um gluggann … …Nei, ég segi það ekki alveg en við sáum mikinn mun.

Efling list og verkgreina … við kennum meiri list og verkgreinar en nokkur annar

Efling list og verkgreina … við kennum meiri list og verkgreinar en nokkur annar skóli í borginni, … þegar við fórum yfir í það þá fannst mér agamál minnka til muna … þegar við fengum allar þessar stofur þá bara ákváðum við að demba okkur í að kenna svona mikið list og verkgreinar, mér finnst það skipta miklu máli. Það skiptir miklu máli fyrir þessa krakka. . . Enda kemur það líka í ljós að … nemendur sem eiga við hegðunarerfiðleika að stríða … eru oft að plumma sig rosalega vel í svona greinum.

Hér talar skólastjóri Hver segir að þessi skóladagur þurfi að vera jafn brjálæðislega vitlaus

Hér talar skólastjóri Hver segir að þessi skóladagur þurfi að vera jafn brjálæðislega vitlaus og hann er. . . við erum búin að bæta við þremur árum. . . Hvað gerðum við þessi þrjú ár. . . getum við ekki aðeins slakað á og sagt að yfir daginn hef ég tíma til að gera miklu meira en áður og ef ég bara brýt það upp með hreyfingu og léttleika. . . þá líður öllum betur og við komum miklu meira í verk. . .

Og svo eru það greiningarnar. . . Það var líka einn um daginn sem

Og svo eru það greiningarnar. . . Það var líka einn um daginn sem … sem stóð fyrir smá ólátum hérna út á skólalóð og þegar hann var spurður þá sagði hann: „Ég bara réði ekki við þetta - ég er í ofvirknisathyglisbrestsæði!“

Viðhorf til ofvirkra barna Það er eins og það er svona með þessa ofvirku

Viðhorf til ofvirkra barna Það er eins og það er svona með þessa ofvirku nemendur. Þeir skemma alltaf út frá sér.

Ályktanir • Sveigjanleiki er meginatriði! • Hegðunarvandi er ekki nýr af nálinni! • Engin

Ályktanir • Sveigjanleiki er meginatriði! • Hegðunarvandi er ekki nýr af nálinni! • Engin ástæða er til að vænta annars en að við getum náð enn betri tökum á þessum málum • Jákvæð viðhorf – trú á nemendum og virðing draga langt – svo langt að við hljótum að undrast það! • Lausnir á erfiðustu málunum verða að hafa forgang

Tillögur • Áríðandi er að prófa ólíkar leiðir og miðla reynslu á milli skóla

Tillögur • Áríðandi er að prófa ólíkar leiðir og miðla reynslu á milli skóla • Koma þarf á fót sérfræðingateymum (sbr. fardeild í Grafarvogi) • Huga þarf sérstaklega að samhengi starfs- og kennsluhátta og hegðunarvanda • Leita þarf nýrra leiða til að reikna sérkennsluþörf • Breyta þarf kennaramenntun • Huga þarf að forvörnum • Efla rannsóknir

Að lokum. . . Víkurskólasöngurinn Skólinn okkar er gullkista við enda regnbogans. Við vinnum

Að lokum. . . Víkurskólasöngurinn Skólinn okkar er gullkista við enda regnbogans. Við vinnum saman með bros á vör, þá blómstrar vináttan. Vináttan vex í Víkurskóla vináttan vex þar. Vináttan vex í Víkurskóla því við erum þar. Takk fyrir!