Vinnubrg kennara me fjlbreytta nemendahpa Skli n agreiningar
Vinnubrögð kennara með fjölbreytta nemendahópa - Skóli án aðgreiningar. Kynning á rannsóknaráætlun á málstofu í KHÍ. mars 2008 Bryndís Björnsdóttir Leiðbeinandi: Gretar L. Marinósson
Persónuleg tildrög og val á verkefni n n n Ég er þroskaþjálfi með B. A próf í sérkennslufræðum - stýrði sérdeild fyrir einhverf börn - fagstjóri í sérkennslu - nýir tímar kalla á ný markmið sem kalla á ný vinnubrögð - getum við haldið áfram að vinna eins og alltaf hefur verið gert en búist við annarri útkomu? Bryndís Björnsdóttir 2
Rannsóknarspurning Hvað hefur megináhrif á vinnubrögð kennara með fjölbreytta nemendahópa? n Mögulegir áhrifaþættir: • Hugmyndir / hugsmíðar kennara um nemendur og viðbrögð við þeim. Reynsla kennara og menntun • Skólinn sem félagskerfi og stofnun • Hugsmíðar og gildismat samstarfsmanna • Hugsmíðar og gildismat nemenda • Opinber stefna, m. a. námskrár • Viðhorf og gildismat í samfélaginu Bryndís Björnsdóttir 3
Fræðileg tildrög efnisvals n n Í skýrslu sinni Tálmar og tækifæri draga Gretar L. Marinósson og félagar (2007) fram þær niðurstöður að skólinn sé „normal” staður og öll meiriháttar frávik í hegðun eða hugsun séu álitin vandamál sem þarf að laga. Þessar niðurstöður samræmast einnig skoðunum Rannveigar Traustadóttur (2003) sem telur að hér á landi sé ríkjandi hefðbundin sýn á fötlun, hið læknisfræðilega líkan sé enn ráðandi og hinn félagslegi skilningur á fötlun hafi ekki náð hér fótfestu nema að litlu leyti. Bryndís Björnsdóttir 4
Fræðileg tildrög frh. n Einnig hafa fræðimenn hérlendis komist að þeirri niðurstöðu að sérkennsla stjórnist frekar af tæknilegum aðferðum, sem miða að því að lækna börn og laga, fremur en félagslegum eða uppeldislegum markmiðum (Ingólfur Á. Jóhannesson ofl. 2002). Bryndís Björnsdóttir 5
Fræðileg tildrög frh. n …. að stefna stjórnvalda eigi að vera nám án aðgreiningar en ekki skóli án aðgreiningar. Framtíðarsýnin sé að skólinn bjóði upp á fjölbreytni sem miði að þjálfun hvers nemanda, valfrelsi og sveigjanleika með áherslu á einstaklingsmiðaða námskrá að einhverju leyti fyrir alla (Menntamálaráðuneytið, 2006). Bryndís Björnsdóttir 6
Fræðileg umfjöllun n kennarinn er kjarninn í öllu skólastarfi og gegnir um leið lykilhlutverki í öllu breytingarstarfi (Fullan, 2001, Hargreaves, 1994). n að bæta við þekkingu sem inniheldur leiðir og bjargir sem skólastarf getur nýtt sér í átt að skóla án aðgreinar. Bryndís Björnsdóttir 7
Fræðileg umfjöllun frh. n Í skóla án aðgreiningar er kennarinn lykilpersóna, hann trúir á framfarir nemenda sinna, væntir þess að þeir nýti sér hæfileika sína til fulls og styður þá við að finna réttu leiðina með fjölbreyttum kennsluaðferðum (Rúnar Sigþórsson o. fl. 2005) Bryndís Björnsdóttir 8
Fræðileg umfjöllun frh. n kennarar eru á milli tveggja kennslulíkana. . . n líkan 20. aldarinnar sem ýtir undir aðgreiningu nemenda og nemendum er skipt í flokka. n líkan 21. aldarinnar byggir á nýrri sýn um að allir geti lært sé þeim búin rétt skilyrði. (Shepard 2000) Bryndís Björnsdóttir 9
Fræðileg umfjöllun frh. . . oft þarf einungis að nýta þá þekkingu sem til staðar er, virkja hana og styðja kennara í að greina kennslu sína. . (Ainscow 1999)� Bryndís Björnsdóttir 10
Rannsóknarsnið og aðferð Eigindleg rannsóknaraðferð n Viðtöl við kennara n Vettvangsathuganir n Gagnarýning - skólanámskrár - einstaklingsnámskrár - kennsluáætlanir n Bryndís Björnsdóttir 11
Þátttakendur n Tilgangsstýrt val - þátttakendur sem rannsakandi telur að búi yfir upplýsingum sem tengjast rannsókninni. - áætlað er að tilvikin verði þrjú Bryndís Björnsdóttir 12
Verkáætlun gagnaöflun febrúar - maí 2008. n úrvinnsla gagna mars - júlí 2008. n ritun og túlkun júní - ágúst 2008. n útskrift október 2008. n Bryndís Björnsdóttir 13
Heimildaskrá Ainscow, M. (1991). Effective schools for all. London: Fulton. Fuller, M. (2001). The new meaning of education change. Columbia Univercity. Gretar L. Marinósson (2007). Tálmar og tækifæri. Menntun nemenda með þroskahömlun á Íslandi. Reykjavík. Háskólaútgáfna. Hargreaves, A. (1994). Changing Teachers, changing times: teachers´work in the postmodern age. London, Wellington house. Menntamálaráðuneytið (2006). Áfangaskýrsla. Menntamálaráðuneytið. Shepard. L. A. (2000). The role of classroom assessment in teaching and learning. (CSE technical report 517). Los Angeles: National Center for Research on Evaluation, Standards, and Student Testing (CRESST) Graduate School of Education University of California. Rannveig Traustadóttir (2003). Fötlunarfræði. Sjónarhorn, áherslur, og aðferðarfræði á nýju fræðasviði. Í Rannveig Traustadóttir (ritstj. ) Fötlunarfræði. Nýjar íslenskar rannsóknir (bls. 17 -54). Reykjavík: Háskólaútgáfan Rúnar Sigþórsson, Börkur Hansen, Jón Baldvin Hannesson, Ólafur H. Jóhannesson, Rósa Eggertsdóttir, Mel West. (2005). Aukin gæði náms; skólaþróun í þágu nemenda. Rannsóknarstofnun Kennaraháskóla Íslands. Bryndís Björnsdóttir 14
- Slides: 14