VIKSUND 340 St Cruz FB VIKSUND 340 St
VIKSUND 340 St. Cruz - FB VIKSUND 340 St. Cruz - HT BÁTAVÍK www. batavik. is Kolviður Helgason sími: 893 -6109 - tölvupóstur: kolvids@mi. is Ljósmyndir í þessari kynningu eru úr einkasafni og fengnar af vef Viksund AS, Harstad Marina Båt AS og tímaritsins Vi Menn.
VIKSUND Áratugum saman hafa norskir skemmtibátar þótt með þeim bestu sem völ er á, ekki síst fyrir aðstæður á Norður-Atlandshafi. VIKSUND er einn af þekktustu og virtustu framleiðendum trefjaplastbáta í Noregi. VIKSUND bátar hafa verið í fararbroddi allt frá því að fyrirtækið var stofnað árið 1966 og eru bátarnir þekktir fyrir frábæra sjóeiginleika, mikil gæði og góða hönnun. Verksmiðja VIKSUND er staðsett í nágrenni Bergen á vesturströnd Noregs, þar sem veðurskilyrði og sjólag er með svipuðum hætti og hér á landi. Hafa bátarnir reynst frábærlega við allar aðstæður og allt frá Grænlandi til Miðjarðarhafsins finnast VIKSUND bátar og ánægðir eigendur þeirra. Á árunum frá 1980 til 1990 voru fluttir til Íslands allnokkrir VIKSUND bátar, bæði atvinnu- og skemmtibátar. Hafa þessir bátar reynst afar vel hér. Hin síðari ár hefur VIKSUND einbeitt sér að framleiðslu á skemmti- og frístundabátum í ýmsum stærðum og gerðum, allt frá 8 – 12 metra að lengd. Flaggskipin eru þrjár gerðir í St. Cruz línunni, 310, 340 og 360. Hægt er að fá bátana ýmist í Hardtop eða Flybridge útfærslu. Fleiri gerðir og stærðir munu bætast við á næsta ári. VIKSUND framleiðir nú um 80 – 100 báta á ári og er afgreiðslufrestur 7 til 10 mánuðir. Hægt er að velja um ýmiskonar útfærslur og aukahluti, enda er hver bátur smíðaður sérstaklega eftir pöntun. Á árinu 2005 hlotnaðist Bátavík sá heiður að gerast umboðsaðili VIKSUND á Íslandi. Tveir bátar af gerðinni 340 St. Cruz munu afhentir nýjum eigendum sínum í júlí 2006 en þeim mun siglt heim frá Bergen. Þegar er byrjað að taka á móti pöntunum fyrir báta sem verða afhentir sumarið 2007. BÁTAVÍK www. batavik. is Kolviður Helgason sími: 893 -6109 - tölvupóstur: kolvids@mi. is
VIKSUND 340 St. Cruz VIKSUND er smíðaður fyrir norrænar slóðir. . .
VIKSUND 340 St. Cruz. . . fær í flestan sjó. . .
VIKSUND 340 St. Cruz. . . einstakur ferðabátur. . .
VIKSUND 340 St. Cruz. . . fyrir áhyggjulausar stundir. . .
VIKSUND 340 St. Cruz. . . við strendur Íslands. VIKSUND 340 St. Cruz er heilsársbátur og útbúinn sem slíkur. Þú getur því notið siglinga allan ársins hring.
VIKSUND 340 St. Cruz er með mikla skrokklengd og þar með langa sjólínu. Hvorki neftrjóna né pallur eru því ráðandi í lengd bátsins.
VIKSUND 340 St. Cruz er einnig fáanlegur í Hardtop útgáfu. Skrokkur, búnaður og innra skipulag er að mestu leyti eins og í Flybridge útgáfunni.
VIKSUND 340 St. Cruz Með Flybridge eykst útipláss til muna. Útsýni er einstakt og upplifunin verður allt önnur. Helstu upplýsingar: Lengd: 10, 35 m. Breidd: 3, 50 m. Djúprista: 1, 00 m. Eigin þyngd: 5. 300 kg. Vélarstærð: 300 – 460 hestöfl (hældrif eða föst skrúfa). Hraði: 18 – 33 hnútar. Eldsneytistankur: 660 – 800 ltr. Vatnstankur: 300 ltr. VIKSUND 340 St. Cruz er ríkulega búinn staðalbúnaði. Má þar nefna einangrun í skrokki og þaki, vatnshitara, 220 V kerfi auk landsstraums, bæði olíumiðstöð og kælivatnsmiðstöð, bógskrúfu, segl á afturdekk, fjarstýrðan ljóskastara, útvarp og geislaspilara með 4 hátölurum, Simrad CX 44 GPS-plotter og margt fleira. Einnig er hægt að velja um margvíslegan aukabúnað s. s. rafdrifið akkeri að framan og/eða aftan, hliðarskrúfu að aftan, tekk á pall og afturdekk, radar og dýptarmæli við Simrad CX 44 og margt fleira.
VIKSUND 340 St. Cruz Mælaborðið er hannað með þarfir skipstjórans í huga. Öll stjórntæki eru haganlega staðsett og meðal staðalbúnaðar er Simrad CX 44 alhliða GPS siglingatæki sem notar C-Map sjókort. Tækið er með 10” litaskjá sem er auðlæsilegur í mikilli birtu. Hægt er að kaupa bæði radar og dýptarmæli sem aukahluti með tækinu þannig að allar upplýsingar sjófarandans séu sýnilegar og aðgengilegar á einum stað. Tækið er á veltiás sem gerir kleift að stilla sjónarhorn við hæfi hvers og eins. Einnig er hægt að kaupa sjálfstýringu sem tengist tækinu. VIKSUND 340 St. Cruz er fáanlegur með hældrifi eða fastri skrúfu. Með fastri skrúfu er báturinn einstaklega rásfastur á hvaða hraða sem er og hentar mjög vel fyrir þá sem taka þægindi umfram hraða. Með hældrifi er mögulegt að búa bátinn með einni eða tveim vélum.
VIKSUND 340 St. Cruz Fyrir utan alla aðra kosti VIKSUND 340 St. Cruz er hann sérstaklega hannaður með innra rými í huga. Hefur báturinn enda verið kallaður “romskibet” eða “hinn rúmgóði” af norskum bátagagnrýnendum. Til fróðleiks bendum við á grein í norska tímaritinu Vi Menn. Stýrishúsið er einstaklega rúmgott, enda bæði vítt til veggja og hátt til lofts. Gluggar eru háir sem tryggir öllum frábært útsýni og veitir birtu inn. Vel fer um skipstjórann á bak við einstaklega vel hannað mælaborð þar sem nýjasta tækni er nýtt til að tryggja bæði óhindraða sýn út sem og yfirsýn yfir alla mæla og siglingatæki.
VIKSUND 340 St. Cruz Í stjórnborðshlið stýrishússins er afar vel hannað eldhús með miklu geymsluplássi. Eldavél, ofn og 80 ltr. ísskápur eru staðalbúnaður, ásamt vaski með heitu og köldu rennandi vatni. Hreinlætisaðstaðan er með því besta sem gerist. Salernið er stórt og rúmgott. Sérstakur sturtuklefi er inn af salerninu, en það er einsdæmi í bátum af þessari stærðargráðu.
VIKSUND 340 St. Cruz Fremri káeta er afar björt rúmgóð með tvíbreiðu rúmi og miklu geymsluplássi. Bæði fremri og aftari káetur eru lokaðar af með hurðum og bjóða því upp á næði, sé þess óskað. Aftari káetan er undir stýrishúsinu og er í fullri breidd bátsins. Þar er einnig tvíbreitt rúm auk geymslupláss.
VIKSUND 340 St. Cruz Vélarrúm er stórt og rúmgott. Allur frágangur þar er eins og best verður á kosið. Með hældrifi (Duo. Prop): 1 x Volvo Penta D 6 -310/DP (228/310 KW/hp) 1 x Volvo Penta D 6 -350/DP (257/350 KW/hp) 2 x Volvo Penta D 3 -190/DP (280/380 KW/hp) 2 x Volvo Penta D 4 -225/DP (330/450 KW/hp) Með fastri skrúfu: 1 x Volvo Penta D 6 -310 (228/310 KW/hp) 1 x Volvo Penta D 6 -370 (272/370 KW/hp) 1 x Yanmar 6 LYA-STP (272/370 KW/hp) 1 x Yanmar 6 LY 2 A-STP (324/440 KW/hp) Hægt er að velja um ýmsar útfærslur véla. Fyrsta val VIKSUND eru hinar þekktu Volvo Penta vélar, en sé valin föst skrúfa er einnig hægt að fá bát með Yanmar vél.
VIKSUND 340 St. Cruz er nú fáanlegur á frábæru verði, frá NOK 1. 420. 000*, auk flutningskostnaðar og virðisaukaskatts hér á landi. Hafðu samband og við gerum þér tilboð í bát sem er sérsniðinn að þínum þörfum og óskum. Hafir þú hug á að skoða bátinn með eigin augum getum við fylgt þér í ferð til verksmiðju VIKSUND í Bergen í Noregi. Flug og gisting er þér að kostnaðarlausu, ef þú kaupir bát!! Við kaup greiðast 10% við pöntun, 20% við steypu skrokks og eftirstöðvar við afhendingu. Við getum vitaskuld aðstoðað þig við að afla fjármögnunar hjá viðurkenndum lánastofnunum. Afhending er í verksmiðju VIKSUND en við önnumst flutning bátsins til Íslands eða veitum þér aðstoð við að sigla bátnum heim. BÁTAVÍK www. batavik. is Kolviður Helgason sími: 893 -6109 - tölvupóstur: kolvids@mi. is *Verð er háð samkomulagi og fer eftir gerð og búnaði. Áskilinn er réttur til breytinga á verði. Verð í íslenskum krónum háð gengi hverju sinni.
- Slides: 16