Sams kipti Heilsuvernd sklabarna Hver n heim ig
Sams kipti Heilsuvernd skólabarna
Hver n heim ig væri u sams rinn án kipta ? Hvað eru samskipti? • Við notum samskipti til að deila hugsunum, tilfinningum og upplýsingum á milli okkar • Við notum: Tungumál og rödd T. d. blíð, reið eða hrædd rödd Líkamstjáning Notum t. d. andlit, hendur eða snertingu Ritað mál t. d. skilaboð Myndir t. d. vídeó Hlusta og taka eftir Heilsuvernd skólabarna
Dæmi um góð samskipti • Skiptumst á að tala • Hlustum með athygli á aðra • Grípum ekki fram í fyrir öðrum • Verum skýr og segjum það sem okkur finnst • Virðum skoðanir annarra • Sýnum tillitssemi Það fæðist enginn góður í samskiptum – maður þarf að æfa sig Heilsuvernd skólabarna
Hvað sjáið þið á þessari mynd? Heilsuvernd skólabarna
Að setja sig í spor annarra Heilsuvernd skólabarna
Vinátta Góður vinur ætti að: • ? Góður vinur ætti ekki að: • ? Heilsuvernd skólabarna
Samskipti á netinu Eru þau eitthvað öðruvísi en önnur samskipti? Hve rnig Skoðum nokkrar góðar reglur í samskiptum á netinu… ? Heilsuvernd skólabarna
Við hvern ertu að tala? Aldrei að gefa upp persónulegar upplýsingar (s. s. nafn, heimilisfang, síma, skóla, lykilorð) nema með leyfi foreldra. Aldrei hitta neinn sem þú kynnist á netinu nema með leyfi foreldra. Hvernig getur þú verið viss um að einstaklingurinn sé sá sem hann segist vera? Heilsuvernd skólabarna
Áður en þú deilir: • Er í lagi að amma/besti vinur/versti óvinur sjái þetta? • Ef þú ert að skrifa um aðra manneskju, getur þú þá sagt þetta við hana í eigin persónu? • Væri þér sama þó færslan eða myndin kæmi aftur upp á yfirborðið ef þú yrðir fræg/frægur? • Gæti færslan valdið þér áhyggjum síðar? Ef svarið er já, er hún þess virði? Hvernig eru stafrænu fótsporin þín? • Fáðu leyfi hjá fólki áður en þú setur færslu/mynd um einhvern annan en þig sjálfa/n á netið. Heilsuvernd skólabarna
Hvernig á að bregðast við? • Ef einhver annar deilir einhverju ljótu/leiðinlegu/dónalegu á netinu? • Láta vita , t. d. foreldra eða kennara. • EKKI DEILA ÁFRAM. • Ekki taka þátt í hópgagnrýni og ráðast á viðkomandi. • Ef þú deilir einhverju sem þú sérð eftir? • Biðjast strax afsökunar. • Reyna að taka færsluna út ef þú getur. Heilsuvernd skólabarna
Neteinelti – hvað er það? • Senda ljót eða ógnandi smáskilaboð. • Senda niðurlægjandi myndir/myndbönd. • Setja inn færslur eða áframsenda persónulegar upplýsingar eða myndir af fólki í leyfisleysi. • Vera dónaleg/ur við annan leikmann á leikjasíðu. • Taka þátt í dónalegum, meiðandi eða niðurlægjandi færslum. • Senda kynferðislegar myndir án leyfis (sexting) = ÓLÖGLEGT. • Útiloka einhvern t. d. í leik á netinu, eða í hóp á samfélagsmiðlum. Heilsuvernd skólabarna
Erum við of mikið á netinu? • Mikilvægt að hver og einn nái stjórn á sinni skjánotkun. Getið þið komið með góðar hugmyndir fyrir fjölskylduna? JÁ Stundum NEI 1. Getur þú sjálf/sjálfur stýrt tímanum þínum við skjátækin í hóf? 2. Getur þú passað að skjátækin taki ekki tíma frá öðru eins og lærdómi, hreyfingu og tómstundum? 3. Hittir þú vini þína utan við skjátækin? 4. Reynir þú að velja lærdómsríkt skjáefni? 5. Virðir þú aldursmörk á leikjum og samfélagsmiðlum? 6. Bregstu vel við þegar þú átt að hætta í skjátækinu? 7. Ertu kurteis á netinu? Heilsuvernd skólabarna
Að lokum… • Vertu besta útgáfan af sjálfum/sjálfri þér. • Segðu frá hugmyndum þínum. • Tjáðu tilfinningar þínar. • Hlustaðu á aðra. • Hvettu aðra í kringum þig. • Byggðu upp sjálfstraustið þitt Njóttu þess sem lífið hefur upp á að bjóða Heilsuvernd skólabarna
- Slides: 13