Rafrn atvikaskrning Febrar 2017 Hrefna Jnsdttir Starfsmannastjri Vinnslustin
Rafræn atvikaskráning Febrúar 2017 Hrefna Jónsdóttir Starfsmannastjóri
Vinnslustöðin • Vinnslustöðin hf. var stofnuð 31. desember 1946 í Vestmannaeyjum og er í dag meðal öflugustu sjávarútvegsfyrirtækja landsins, með fjölbreyttan rekstur í útgerð og fiskvinnslu. • Fyrirtækið er stærsti vinnustaðurinn í Eyjum með um 300 stöðugildi fastráðins starfsfólks og fjölda fólks í tímabundnum verkefnum eða störfum. • Vinnslustöðin starfrækir saltfiskverkun, humarvinnslu, bolfiskvinnslu og uppsjávarvinnslu. Fyrirtækið á og rekur fiskimjölsverksmiðju, netaverkstæði, iðnaðarfyrirtækið Hafnareyri ásamt öðrum dóttur- og hlutdeildarfélögum. 2
Öryggisstefna VSV • VSV leggur áherslu á öryggismál og slysavarnir og ætlast til þess að stjórnendur og starfsmenn séu stöðugt á varðbergi til að tryggja öryggi á vinnustaðnum og draga úr slysahættu. • Öryggismál og slysavarnir skulu vera leiðarljós þegar starfsmönnum eru kynntar vinnureglur VSV, þeim er leiðbeint varðandi starfstilhögun og kennt að nota tæki og vélar á vinnustaðnum. • Þegar starfsmaður tekur við nýju starfi í fyrirtækinu skal ávallt leiðbeina honum um öryggismál á nýju vinnusvæði/starfsstöð. • Á hverri starfsstöð skulu vera sýnilegar upplýsingar um öryggismál. • Starfsmenn og stjórnendur skulu ávallt framfylgja öryggisreglum. 3
Forvarnarstarf VSV • • • Starfsmannastefna Fíkniefnalaus vinnustaður Öryggisnefnd Áhættumat starfa Atvikaskráning Námskeið • • Nýliðakynning Fóstra-kerfi Starfsmannahandbók Myndband: umgengins- og öryggiskröfur • Reglulegar rýmingaræfingar • Veikinda og fjarvistaskráning • Eigið eldvarnaeftirlit 4
Öryggisnefnd • Hjá VSV er starfandi öryggisnefnd, eins og lög kveða á um. Hún er ráðgefandi gagnvart æðstu stjórnendum um stefnumótun, verkefni og fræðslu á sviði aðbúnaðar, hollustuhátta og öryggismála. • Öryggisnefnd í landi er skipuð átta manns, þar af þremur fulltrúum starfsmanna. Starfsmenn velja úr sínum hópi öryggistrúnaðarmenn á hverjum vinnustað. • Í upphafi árs 2016 var farið í að innleiða bætta öryggismenningu um borð í skipum útgerðarinnar. Skipaðar þriggja manna öryggisnefndir um borð, áhættumöt voru gerð, og fleira í samstarfi við Slysavarnaskóla sjómanna og Vís. • Í landi var stærsta verkefnið að innleiða rafræna atvikaskráningu. 5
Tilgangur og markmið atvikaskráningar • Auka öryggi starfsmanna, auðvelda skráningu og halda betur utan um allar þessar upplýsingar. Tilgangur – Miðlægur gagnagrunnur – Upplýsingastreymi • Sjálfvirkir tölvupóstar – Vinnuverndarlögin – Tilkynningarferli Markmið – Skapa yfirsýn – Greina orsakir – Úrbætur og forvarnir – Öruggari vinnustaður og verkferlar markvissari 6
Rafræn atvikaskráning – ATVIK 7
Rafræn atvikaskráning – ATVIK • Forritið leiðir fólk áfram 8
Skráningarlyklar og eyðublöð • Stuðst er við skráningarlykla Vinnueftirlitsins þegar fjarveruslys eru skráð inn í kerfið. Hægt að kalla fram og prenta ü Stöðluð atvikaskýrsla með myndum ü Útfyllt eyðublöð til viðeigandi aðila ü Eyðublöð vistuð í samræmi við verkferla fyrirtækisins 9
Innleiðingarferlið – Rafræn atvikaskráning • Haldinn fundur með Verk- og flokkstjórum og öðrum stjórnendum í fyrirtækinu sem áttu að skrá inn í kerfið. • Sýnikennsla á kerfið • Ábyrgð sett á verkstjóra • Hvatning til starfsmanna að láta vita • Sérstök áhersla lögð á bolfiskvinnsluna 10
Fyrstu skráningar • 16 atvik skráð á fyrstu tveimur vikunum. • Stjórnendur voru mjög virkir og flestir að skrá inn í kerfið á fyrstu dögunum. • Báðu strax um aðstoð ef upp komu vafaatriði • Mikið af ábendingum settar inn í kerfið. • Verk- og flokkstjórar mjög jákvæðir og starfsfólk í bolfiskvinnslu tók þátt. 11
Atvikaskráning 2016 12
Vinnulag • Öryggisnefndarfundir eru haldnir einu sinni í mánuði þar sem farið er yfir allar skráningar sem hafa komið inn í kerfið frá síðasta fundi. • Farið er yfir hvert og eitt mál og staðan skoðuð á hverri skráningu inn í kerfið. - Ólokið, þá hefur ekkert verið gert - Í vinnslu, þá er verið að vinna í úrbótum - Lokið, þá er málinu lokað. • Einstök mál fara einnig inn á fundi stjórnenda ef þurfa þykir. 13
Dæmi 1 • Næstum slys • Starfsmaður stígur ofan í niðurfallsrennu sem er við endan á skoðunarborði hjá eftirliti. Venjulega er endinn á rennunni hafður opinn til að starfsmaður geti losað úr bökkum eftir skoðun • Tekið fyrir á fundi öryggisnefndar • Tekin ákvörðun um úrbætur • Framkvæmd sett af stað. • Mál sett í vinnslu og tekið svo fyrir á næsta fundi hvort málinu sé lokið. 14
Dæmi 1 • Slysstaður • Hér var sett rekkverk í kring. • Máli lokið. • Hérna hefði getað farið illa. Fyrir Eftir 15
Dæmi 2 • Minniháttar slys • Starfsmaður var að vinna við flokkun karfaflaka. Var að taka flök frá flokkara þegar flak skýst í höfuð starfsmanns. • Úrbætur voru gerðar strax – ekki beðið. • Viðbrögð stjórnenda góð, virkni, hvatning og áhugi. • Farið yfir á öryggisnefndarfundi – Máli lokið. 16
Dæmi 2 • Plasthlíf sett yfir allan flokkarann • Þetta er dæmi um skjót og góð viðbrögð → 17
Ávinningur • • • Stjórnendur og starfsmenn eru virkari í öryggismálum. Forvarnir verða meiri Öruggara vinnuumhverfi Hlutirnir gerðir oft strax Umbótavinna Búinn að koma í veg fyrir alvarleg slys 18
Framtíðin • • • Taka upp atvikaskráningu um borð í skipunum. Meira upplýsingastreymi til starfsfólks Virkja fleira starfsfólk Fækka slysum Fá tölulegar upplýsingar úr kerfinu og milli ára. 19
Ávinningurinn er klárlega mikill • Stefnan er auðvitað að allir komi heilir heim frá vinnu og hefur kerfið kláralega hjálpað til á þeirri vegferð sem við erum. 20
- Slides: 20