Nmsmat Straumar og stefnur Spjalla viskipta og hagfrikennara

  • Slides: 32
Download presentation
Námsmat: Straumar og stefnur Spjallað viðskipta- og hagfræðikennara 14. – 15. janúar 2011 Ingvar

Námsmat: Straumar og stefnur Spjallað viðskipta- og hagfræðikennara 14. – 15. janúar 2011 Ingvar Sigurgeirsson Menntavísindasviði Háskóla Íslands

Dagskrá 1. Námsmat og námskrá 2. Efst á baugi: Leiðsagnarmat (formative assessment) 3. Nokkur

Dagskrá 1. Námsmat og námskrá 2. Efst á baugi: Leiðsagnarmat (formative assessment) 3. Nokkur álitamál um námsmat 4. Áhugaverð dæmi um námsmat Áhugi – gróska – gerjun – þróun Skiljum við námsmatshugtakið með sama hætti?

Vandi að ræða námsmat í framhaldsskólum! • Lítið sem ekkert er vitað (örugg vitneskja)

Vandi að ræða námsmat í framhaldsskólum! • Lítið sem ekkert er vitað (örugg vitneskja) um hvernig námsmati er háttað í framhaldsskólum hér á landi! • Raunar er sáralítið vitað um kennsluhætti í framhaldsskólanum yfirleitt!!! • Þó þetta: – Athugun Rósu M. Grétarsdóttur og Sigurbjargar Einarsdóttur á námsmati í þremur framhaldsskólum (MH, MA og FG) – Rannsókn Rósu á viðhorfum íslenskukennara til námsmats – Rannsókn Ragnheiðar Hermannsdóttur á viðhorfum nemenda til námsmats – Verkefni nemenda á námskeiðinu Að vanda til námsmats

Mikilvægar spurningar? • Hvernig er námsmati yfirleitt háttað í framhaldsskólum? En í viðskipta- og

Mikilvægar spurningar? • Hvernig er námsmati yfirleitt háttað í framhaldsskólum? En í viðskipta- og hagfræðigreinum • Eru námsmatsaðferðirnar að skila góðum árangri? • Eru þetta bestu aðferðir sem völ er á? • Hvað þarf helst að bæta eða þróa í námsmati og hvaða leiðir koma helst til greina við að bæta námsmat? • Á hverju á að byggja þróun námsmats? Rannsóknir Reynsla Námskrá

Ákvæði Aðalnámskrár 2004 Tilgangur námsmats er að kanna að hve miklu leyti nemendur hafa

Ákvæði Aðalnámskrár 2004 Tilgangur námsmats er að kanna að hve miklu leyti nemendur hafa tileinkað sér markmið aðalnámskrár (skólanámskrár) í viðkomandi grein. Námsmat getur farið fram með mismunandi hætti eftir ákvörðun skóla [leturbr. IS]. Umfang þess skal þó að jafnaði vera í samræmi við umfang kennslu í viðkomandi grein. Kennarar bera ábyrgð á námsmati og þeir meta úrlausnir nemenda.

Bakgrunnur: Gróska, gerjun, deilur Alþjóðleg umræða Bandaríkin: Stöðluð próf eða óhefðbundið námsmat (alternative assessment,

Bakgrunnur: Gróska, gerjun, deilur Alþjóðleg umræða Bandaríkin: Stöðluð próf eða óhefðbundið námsmat (alternative assessment, sjá grein IS) England: Stöðluð próf eða leiðsagnarmat (formative assessment, sjá grein Black og Wiliam, 1998) Sterkur rannsóknargrunnur! Hér á landi Aðferðir sem eru að ryðja sér til rúms: Einstaklingsmiðað námsmat, leiðsagnarmat, óhefðbundin próf, sjálfsmat, jafningjamat, námsmöppur (ganga undir ýmsum nöfnum). Dýrmæt reynsla er að verða til!

Kjarninn í leiðsagnarmati • Nemandinn fær (stöðuga) endurgjöf um nám sitt ásamt ábendingum um

Kjarninn í leiðsagnarmati • Nemandinn fær (stöðuga) endurgjöf um nám sitt ásamt ábendingum um það hvernig hann geti bætt sig (ráðgjöf, leiðsögn) • Haft er fyrir satt að fjöldi rannsókna (2007, um 4000) sýni þýðingu vandaðs leiðsagnarmats til að bæta námsárangur • Nemendur sem standa höllum fæti virðast njóta sérstaklega góðs af leiðsagnarmati • Sjálfsmat og jafningjamat eru mikilvægir þættir í leiðsagnarmati en meginatriði er að nemendur skilji til hvers er af þeim ætlast (skilji markmiðin) (Sjá um þessar áherslur: Black og Wiliam 1998: Inside the Black Box)

Kennslufræði leiðsagnarmats • Útskýra markmið fyrir nemendum • Markvissar spurningar • Leiðbeinandi endurgjöf (umsagnir)

Kennslufræði leiðsagnarmats • Útskýra markmið fyrir nemendum • Markvissar spurningar • Leiðbeinandi endurgjöf (umsagnir) • Virkja nemendur (sjálfsmat, jafningjamat) • Jafningjakennsla (Wiliam 2007: Changing Classroom Practice)

Leiðandi um leiðsagnarmat • Menntaskóli Borgarfjarðar • Fjölbrautaskóli Snæfellinga • Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ

Leiðandi um leiðsagnarmat • Menntaskóli Borgarfjarðar • Fjölbrautaskóli Snæfellinga • Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ

Sjö leiðir 1. Skýra námsmarkmiðin og gera þau sýnileg og skiljanleg öllum. 2. Nota

Sjö leiðir 1. Skýra námsmarkmiðin og gera þau sýnileg og skiljanleg öllum. 2. Nota dæmi eða sýnishorn af góðum og slökum verkefnum. 3. Gefa lýsandi endurgjöf reglulega. 4. Kenna nemendum að meta eigið nám og að setja sér markmið. Hvernig næ ég markmiðunum? 5. Beina kennslunni að einum þætti í einu. 6. Kenna nemendum að rifja skipulega upp. 7. Hvetja nemendur til ígrundunar, til að hafa skipulag á því sem þeir læra og deila því með öðrum. (Hrafnhildur Hallvarðsdóttir og Sólrún Guðjónsdóttir, 2009)

Tvö umhugsunarverð álitamál • Hvaða þýðingu hafa einkunnir? • Hvaða hlutverki eiga próf að

Tvö umhugsunarverð álitamál • Hvaða þýðingu hafa einkunnir? • Hvaða hlutverki eiga próf að gegna?

Hvaða hlutverki gegna einkunnir? - • Rannsóknir Ruth Butler o. fl. frá 1986 og

Hvaða hlutverki gegna einkunnir? - • Rannsóknir Ruth Butler o. fl. frá 1986 og 1988 – Endurgjöf í formi einkunna – Endurgjöf í formi umsagna – Endurgjöf í formi einkunna og umsagna – Engin endurgjöf Hvaða leið skilaði nemendum bestum árangri?

Hvers vegna vefst einkunnagjöf svona fyrir okkur mörgum? • Knappt form – takmörkuð upplýsing

Hvers vegna vefst einkunnagjöf svona fyrir okkur mörgum? • Knappt form – takmörkuð upplýsing (hvað þýðir einkunnin 7, 0)? • Álitamál? • Óljósir mælikvarðar? Við hvað á að miða? • Einkunnir geta verið afar afdrifaríkar! – Til umhugsunar: Matskvarði KHÍ

 • • • Ólíkir skalar 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8,

• • • Ólíkir skalar 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10 1– 6, 1– 8 A, B, C, D, F (hvar er E-ið? ) A, Á, B, D, E, Ð (Baldur Sigurðsson) Dönsku kerfin, sjá hér Ágætt, gott, sæmilegt, ábótavant, ófullnægjandi Snjallt, gott, hæft, naumt, bágt (Helgi Hálfdanarson) Mjög gott, í lagi, ófullnægjandi Lokið – ólokið • Hvaða aðferð er heppilegust?

Vörður – viðmið við endurgjöf Mjög gott Í lagi Ófullnægjandi Vinnubrögð góð, öllum verkefnum

Vörður – viðmið við endurgjöf Mjög gott Í lagi Ófullnægjandi Vinnubrögð góð, öllum verkefnum skilað. Þátttaka í umræðum og virkni í kennslustundum er mjög góð. Markmiðum áfangans er náð. Vinnubrögð ágæt, verkefnaskil í meðallagi. Þátttaka í umræðum og virkni í kennslustundum í meðallagi. Um helmingi markmiða áfangans er náð. Vinnubrögð ófullnægjandi. Óvirkur þátttakandi í umræðum og virkni í kennslustundum er lítil sem engin. Uppfyllir ekki markmið áfangans. Menntaskóli Borgarfjarðar, sjá nánar hér

Meginvandi við skriflegar umsagnir • Tímafrekar • Vandasamar í framsetningu • Auðvelt að mistúlka

Meginvandi við skriflegar umsagnir • Tímafrekar • Vandasamar í framsetningu • Auðvelt að mistúlka þær • Erfitt að gæta samkvæmni og samræmis • Erfitt að henda reiðu á einstökum atriðum • Kerfisbundin skráning erfið

Eru þetta vitnisburðarform framtíðarinnar? Matsatriðabanki Baldurs Sigurðssonar http: //starfsfolk. khi. is/balsi/leidbeiningar. htm Dæmi frá

Eru þetta vitnisburðarform framtíðarinnar? Matsatriðabanki Baldurs Sigurðssonar http: //starfsfolk. khi. is/balsi/leidbeiningar. htm Dæmi frá Súsönnu Margréti Gestsdóttur

Annað álitamál: Staða skriflegra lokaprófa Vaxandi efasemdir um stöðu og vægi skriflegra lokaprófa: –

Annað álitamál: Staða skriflegra lokaprófa Vaxandi efasemdir um stöðu og vægi skriflegra lokaprófa: – Prófa aðeins hluta markmiða – Margir nemendur læra fyrst og fremst fyrir prófin – Neikvæð afturvirkni prófa – Próf eru skólaverkefni sem eiga sér fáar hliðstæður í lífinu sjálfu (námsmat ætti að endurspegla mat í lífinu sjálfu)

Óhefðbundin próf ü Próf þar sem nemendur mega nota hjálpargögn, „svindlpróf“, glósupróf ü Heimapróf

Óhefðbundin próf ü Próf þar sem nemendur mega nota hjálpargögn, „svindlpróf“, glósupróf ü Heimapróf ü Prófverkefni gefin upp með fyrirvara ü Munnleg próf ü Atrennupróf: Nemendur fá að gera endurteknar tilraunir við sama próf / sömu próf ü Samvinnu- og hóppróf

… ákvað að prófa í fyrsta sinn samvinnupróf/könnun … Prófað var úr tveimur málfræðiatriðum

… ákvað að prófa í fyrsta sinn samvinnupróf/könnun … Prófað var úr tveimur málfræðiatriðum sem þau voru að læra í þýsku og ég lét þau draga miða með hverjum þau lentu (tveir saman). Þau undirbjuggu sig svo heima. Í prófinu hvísluðust þau á og komu sér saman um svar og hvert par skilaði einu blaði (hinn aðilinn fékk svo ljósrit af útlausninni seinna). Efnið sem verið var að prófa hentaði sérlega vel til þessa verkefnis - einkum beyging lýsingarorða þar sem velta þarf fyrir sér kyni orða, falli og endingum veikrar og sterkrar beygingar. Útkoman var mjög góð og nemendur ánægðir. Þeir hafa spurt hvort þeir megi ekki gera svona aftur. Einn nemandi sagði við samstarfskonu mína að maður lærði svo vel fyrir þessa könnun því maður vildi ekki valda samstarfsaðila sínum vonbrigðum! Kv. Ásta Emilsdóttir, Kvennaskólanum

Ég prófaði svindlpróf fyrir stuttu. Það gekk mjög vel og voru stór hópur nemenda

Ég prófaði svindlpróf fyrir stuttu. Það gekk mjög vel og voru stór hópur nemenda sem undirbjó sig samviskusamlega fyrir prófið. Þeir sem ekki undirbjuggu sig fyrir prófið gekk yfirleitt illa. Þeir nemendur sem stóðu sig vel töluðu um að ég hefði platað þau. Þau sögðu að þau hefðu þurft að lesa heilmikið þegar þau voru að búa til svindlmiðann. Skemmtilegt að prófa eitthvað nýtt í skyndiprófum kv. þsig Þórður Sigurðsson, FÁ

Fjölbreytt námsmat ü Mat á frammistöðu ü Námsmöppur / sýnismöppur („Portfolio“) ü Greining og

Fjölbreytt námsmat ü Mat á frammistöðu ü Námsmöppur / sýnismöppur („Portfolio“) ü Greining og mat á verkefnum / úrlausnum ü Dagbækur, leiðarbækur ü Sjálfstæð verkefni ü Sjálfsmat nemenda ü ü ü Jafningjamat Umræður – viðtöl Viðhorfakannanir Próf og kannanir Óhefðbundin próf Sýningar, námshátíðir, uppskeruhátíðir,

Leiðarbækur – dagbækur – lestrardagbók Ensk heiti: • Reflective diary • Learning protocol •

Leiðarbækur – dagbækur – lestrardagbók Ensk heiti: • Reflective diary • Learning protocol • Learning log • Learning journal • Student journal • . . . blog Tvö dæmi um reynslu kennara af notkun leiðarbóka: • FSn: Sólrún Guðjónsdóttir • FÁ: Þórður Sigurðsson

Dæmi um leiðarbókarverkefni „Ef þú hugsar til baka til þess tíma er þú varst

Dæmi um leiðarbókarverkefni „Ef þú hugsar til baka til þess tíma er þú varst að læra sögu í fyrsta skipti (5. – 6. bekk í grunnskóla), eftir hverju mannstu? Eru það einhver lönd, manneskjur eða atburðir sem þú mannst ennþá eftir frá þessum árum? En hvað með framhaldið? Hvað situr eftir af þeirri sögukennslu sem þú hefur hlotið? Er það bara vitleysa að kenna sögu eða á hún rétt á sér? Á þessari önn könnum við ótrúlega tíma, einveldi, byltingar, lýðveldi, myndun stjórnmálaflokka, styrjaldir, stofnun verkalýðshreyfinga, iðnbyltinguna og svo mætti lengi telja. Er það eitthvað sérstakt sem þú vildir kynna þér vel á önninni? Hvaða væntingar hefur þú til áfangans. Ég veit að þetta eru ótal margar spurningar, en það að ég setji þær hér þýðir ekki endilega að þú þurfir að svara þeim öllum eins og þú værir á prófi, heldur eru þær settar fram til að kveikja í þér, vekja upp minningar og fá þig til að skoða væntingar þínar. Mundu að þú hefur frjálsar hendur hvað uppsetningu leiðarbókar varðar, það eina sem þú þarft að gera er að vanda þig. “ (Sólrún Guðjónsdóttir, FSn)

Dæmi um mat á leiðarbókum (frá Þórði Ásgeirssyni, FÁ)

Dæmi um mat á leiðarbókum (frá Þórði Ásgeirssyni, FÁ)

Sjálfsmat nemenda Þýðing • Virkja nemendur til ábyrgðar á námi sínu • Mikilvæg þjálfun

Sjálfsmat nemenda Þýðing • Virkja nemendur til ábyrgðar á námi sínu • Mikilvæg þjálfun • Nemendur skilja betur tilgang námsins • Kennarar fá mikilvægar upplýsingar um nám og kennslu (þeir heyra raddir nemenda) • Rannsóknir sýna að sjálfsmat getur bætt námsárangur

Sjálfsmat – þátttaka nemenda; aðferðir • • Nemendasamtöl Umræðufundir, sbr. matsfundir Leiðarbækur, lestrardagbækur Gátlistar,

Sjálfsmat – þátttaka nemenda; aðferðir • • Nemendasamtöl Umræðufundir, sbr. matsfundir Leiðarbækur, lestrardagbækur Gátlistar, matsblöð, kannanir, dæmi …

Dæmi um jafningjamat (IS) Við jafningjamatið styðjist þið við eftirfarandi spurningar: • • •

Dæmi um jafningjamat (IS) Við jafningjamatið styðjist þið við eftirfarandi spurningar: • • • Er efnið í möppunni fjölbreytt? Er efnið áhugavekjandi? Leggur höfundur mikið af mörkum sjálfur? Gætir hugmyndaflugs? Virðist höfundur hafa lært mikið á námskeiðinu? Gæti annar aðili nýtt sér efnið með auðveldum hætti? Hversu góður er frágangur (málfar)? Er heimilda getið? Skrifið stutta umsögn og gefið einkunn. Notið einkunnaviðmiðanir Kennaraháskólans við einkunnagjöfina, sjá á þessari slóð: • http: //starfsfolk. khi. is/ingvar/namsmat/matsbanki/matskvardi. htm Jafningjamatið sendið þið umsjónarmanni námskeiðsins (ingvar@khi. is).

Meira um marklista (sóknarkvarða) matskvarða, gátlista Á ensku: Scoring Rubrics, Rating Scales, Checklists: –

Meira um marklista (sóknarkvarða) matskvarða, gátlista Á ensku: Scoring Rubrics, Rating Scales, Checklists: – Tæki sem nota má bæði við mat á frammistöðu (flutning, verkefnaskil) og afrakstri (skýrslum, ritgerðum, myndverkum, úrlausnum) – Henta í öllum námsgreinum, á öllum skólastigum – Auka líkur á nákvæmni, óhlutdrægni – Nemendur fá glöggar upplýsingar um til hvers er ætlast

Kannanir • Heildstæðar kannanir • Einstök námskeið eða áfangar, dæmi • Leiðsagnarkannanir, dæmi (lífsleikni,

Kannanir • Heildstæðar kannanir • Einstök námskeið eða áfangar, dæmi • Leiðsagnarkannanir, dæmi (lífsleikni, MS)

Matsfundir • 10– 20 þátttakendur • Orðið gengur tvo til þrjá hringi: – Jákvæð

Matsfundir • 10– 20 þátttakendur • Orðið gengur tvo til þrjá hringi: – Jákvæð atriði: Hvað eruð þið ánægð með? – Kvörtunarhringur: Hvað má betur fara? • Nemendur nefna eitt / tvö / þrjú atriði eftir því hvað ákveðið hefur verið • Öll atriði eru skráð • Engar umræður

Gagnlegir tenglar • Kennsluaðferðavefurinn • Að vanda til námsmats – Heimasíða námskeiðs • Peel

Gagnlegir tenglar • Kennsluaðferðavefurinn • Að vanda til námsmats – Heimasíða námskeiðs • Peel – námsmat • Best Practices • http: //www. teachers. tv/ - (Assessment)