Markmi og mat rangri Um nmskrfur slensku dnsku

  • Slides: 38
Download presentation
Markmið og mat á árangri Um námskröfur í íslensku, dönsku og sænsku í skólum

Markmið og mat á árangri Um námskröfur í íslensku, dönsku og sænsku í skólum á Íslandi, í Danmörku og í Svíþjóð Fundur um námskrár í íslensku á vegum Samtaka móðurmálskennara og menntamálaráðuneytisins Borgartúni 6, 14. nóvember 2002 Þuríður Jóhannsdóttir sérfræðingur hjá Rannsóknarstofnun KHÍ 1

Samanburður á skólakerfum Könnun sem var unnin að beiðni starfshóps um styttingu námstíma til

Samanburður á skólakerfum Könnun sem var unnin að beiðni starfshóps um styttingu námstíma til stúdentsprófs. Rannsóknarstofnun KHÍ og Félagsvísindastofnun HÍ unnu RKHÍ skoðaði námskröfur sem gerðar eru í grunnskóla og í framhaldsskóla í móðurmáli, stærðfræði, ensku, raunvísindum og félagsvísindum Að ósk ráðuneytisins var aðallega stuðst við aðalnámskrár landanna þriggja og unnið var aðallega með gögn sem eru aðgengileg á netinu 2

Samanburður á íslensku, dönsku og sænsku Nám í móðurmáli eins og það birtist í

Samanburður á íslensku, dönsku og sænsku Nám í móðurmáli eins og það birtist í opinberum gögnum á Íslandi, í Danmörku og í Svíþjóð – Áhersluatriði í kennslu og námi, og þá sérstaklega námsmarkmið, námsmat og hlutverk nemenda – Í lokin: tími sem varið er til móðurmálskennslu í grunn og framhaldsskólum í löndunum þremur 3

Almennir fyrirvarar Hafa ber í huga að upplýsingarnar sem lagðar eru til grundvallar við

Almennir fyrirvarar Hafa ber í huga að upplýsingarnar sem lagðar eru til grundvallar við greiningu og samanburð eru opinberar námslýsingar sem birtar eru í námskrám og endurspegla vilja yfirvalda en ekki endilega raunveruleikann úti í skólunum 4

Hvernig má greina námskröfur? Námskröfur birtast á mismunandi hátt í skólastarfi – – í

Hvernig má greina námskröfur? Námskröfur birtast á mismunandi hátt í skólastarfi – – í markmiðum – í kennsluháttum – í inntaki námsins – í námsmati og – í stöðu nemenda í upphafi náms og að hversu miklu leyti tillit er tekið til þess í skipulagi námsins. 5

Greiningarlíkan Allyson Macdonald 7 ramma líkanið Allyson: Kennslulíkanið hef ég unnið með í meira

Greiningarlíkan Allyson Macdonald 7 ramma líkanið Allyson: Kennslulíkanið hef ég unnið með í meira en tíu ár, og þó það líti út fyrir að vera fremur saklaust þá er margt í því sem vert er að ræða Grunnhugmyndirnar spruttu upp úr rannsókn Hewson og Hewson (1988) um náttúrufræðinám sem ég fjallaði um í grein sem ég birti árið 1991 Kynnt í Netlu, veftímariti Kennó sjá http: //netla. khi. is/sprotar/2002/001/index. htm 6

Námskröfur - kennsla 7

Námskröfur - kennsla 7

Námskröfur - nám 8

Námskröfur - nám 8

Námskröfur – sjö ramma aðferð 9

Námskröfur – sjö ramma aðferð 9

Grunnskólinn Ísland Danmörk: námskröfur Í Danmörku byggjast námskröfur á að nemendur séu færir um

Grunnskólinn Ísland Danmörk: námskröfur Í Danmörku byggjast námskröfur á að nemendur séu færir um að beita dönsku, munnlega og skriflega, við lausn tiltekinna verkefna, og lokaprófið er bæði munnlegt og skrifleg. Á Íslandi er áberandi misræmi milli námskrármarkmiða sem m. a. leggja áherslu á að greining málfræðiatriða megi aldrei verða íþrótt í sjálfu sér (Aðalnámskrá grunnskóla. Íslenska, 1999: 15), og samræmda prófsins, þar sem megináhersla hefur löngum verið á málfræðigreiningu. 10

Grunnskólinn Ísland – Danmörk; Inntak Bókmenntir, málfræði, ritun og stafsetning Danska námskráin gerir ráð

Grunnskólinn Ísland – Danmörk; Inntak Bókmenntir, málfræði, ritun og stafsetning Danska námskráin gerir ráð fyrir að nemendur vinni með ólíkar textategundir en litið er á textahugtakið nokkuð vítt og nær það m. a. til tölvuleikja, tónlistarbanda og teiknimyndasagna Á Íslandi virðist vera lögð sérstök áhersla á að nemendur tjái sig um bókmenntir í rituðu máli, sbr. bókmenntaritgerðir, en einning er í námskrá lögð áhersla á að nemendur tjái sig leikrænt um lesið efni og ræði um það. 11

Grunnskólinn Svíþjóð – Ísland; inntak Í Svíþjóð leggur námskrá áherslu á að nemendur eigi

Grunnskólinn Svíþjóð – Ísland; inntak Í Svíþjóð leggur námskrá áherslu á að nemendur eigi að læra að nota móðurmálið sem – miðil til að koma hugsun sinni á framfæri, – sem tæki til náms, sem samskiptatæki og – tæki til að hafa áhrif. Inntakið í móðurmálskennslu er svipað í báðum löndum en í Svíþjóð er að auki lögð áhersla á að nemendur lesi norrænu grannmálin og fái kyningu á samísku og öðrum minnihlutamálum í Svíþjóð. Á Íslandi virðist hins vegar meiri áhersla lögð á málfræði og lestur fornbókmennta. 12

Grunnskólinn Ísland, Svíþjóð, Danmörk; kennslan Í Danmörku er lögð áhersla á að kennslan eigi

Grunnskólinn Ísland, Svíþjóð, Danmörk; kennslan Í Danmörku er lögð áhersla á að kennslan eigi að vera þannig uppbyggð að upplifun og reynsla verði smátt og smátt efni fyrir greiningu. Einnig er tekið fram að kennslan sé skipulögð í kennslulotum og lögð áhersla á að kennslan sé ekki stöðluð og fyrirsjáanleg en alltaf hluti af ferli. Í íslensku námskránni eru gefin dæmi um kennsluaðferðir –ekki virðist sérstök hugmyndafræði liggja að baki Í sænsku námskránni er ekkert um kennslu – kennurum sem fagmönnum ætlað að útfæra það í samræmi við markmið og matsviðmið sem eru mjög skýr. 13

Grunnskólinn Námsmat; Ísland, Danmörk, Svíþjóð samræmt skriflegt próf en að auki er samræmt munnlegt

Grunnskólinn Námsmat; Ísland, Danmörk, Svíþjóð samræmt skriflegt próf en að auki er samræmt munnlegt próf í Danmörku Í Danmörku er skriflega prófið í fimm tíma og er skipt í tvennt Á Íslandi er samræmda prófið þrír tímar Samræmd próf í Svíþjóð byggir á þrem hlutum þar sem sérsök áhersla er lögð á að prófa lesskilning á ólíkum textategundum og getu nemenda til að bæta við eigin ályktunum. 14

Grunnskólinn Ísland – Svíþjóð; námsmat Nemendur hafa aðgang að textaheftinu sem prófað er úr,

Grunnskólinn Ísland – Svíþjóð; námsmat Nemendur hafa aðgang að textaheftinu sem prófað er úr, í u. þ. b. mánuð fyrir próf. Á Íslandi skipar málfræðigreining stóran sess á prófi en lesskilningur, m. a. á fornbókmennta textum, er einnig prófaður með krossum. Sænska prófið reynir á fjölþætta beitingu móðurmálsins en íslenska prófið reynir aðallega á þekkingu á hugtökum í málfræði og bókmenntum og kunnáttu til að beita þeim við textagreiningu. Gott samræmi er á milli námskrármarkmiða og námsmats í Svíþjóð en alls ekki á Íslandi. 15

Grunnskólinn Námsmat Svíþjóð 16 síðna textahefti prófið byggir á vinnu með texta úr heftinu

Grunnskólinn Námsmat Svíþjóð 16 síðna textahefti prófið byggir á vinnu með texta úr heftinu Próf A prófar lesskilning á ólíkum textategundum og getu til að bæta við eigin ályktunum. Próf B er munnlegt próf og er óháð þema lesheftisins. – – Stuttir bókmenntatextar af hljóðbandi. Nemendur ræða um textana tveir og tveir kynna þá í stærri hóp Munnlega prófið prófar bæði getu til að hlusta og draga ályktanir eftir að hafa fengið tíma til að undirbúa sig. Skólarnir hafa aðgang að munnlega prófinu þegar í nóvember. Próf C ritunarpróf, val á milli fjögurra efna. – – tengjast textaheftinu má nota heftið í prófinu. nemendur eiga að geta undirbúið sig vel fyrir ritunina. 16

Grunnskólinn Ísland: Námsmat Samræmda prófið á Íslandi reynir almennt ekki á færni nemenda til

Grunnskólinn Ísland: Námsmat Samræmda prófið á Íslandi reynir almennt ekki á færni nemenda til að beita móðurmálinu sem tjáningartæki, hvorki skriflega eða munnlega. Um er að ræða hefðbundna greiningu málfræðiatriða þar sem oft reynir á flóknar samsetningar nokkurra málfræðihugtaka sem síðan á að svara með því að velja á milli möguleika á krossaprófi. Þessar spurningar reyna oft mjög á einbeitingu og hæfni til að beita greinandi hugsun og mælir líklega almenna greind ekki síður en þekkingu og hæfni í beitingu móðurmálsins. 17

Framhaldsskólinn: Ísland – Danmörk; námskröfur Á Íslandi á nemandinn að hafa yfirgripsmikla þekkingu á

Framhaldsskólinn: Ísland – Danmörk; námskröfur Á Íslandi á nemandinn að hafa yfirgripsmikla þekkingu á íslenskum bókmenntum og hafa lesið töluvert. Hann á líka að hafa fengið nokkuð góða þjálfun í framsetningu og frágangi ritaðs máls. Samkvæmt námskrá á hann líka að fá þjálfun í töluðu máli og framsögn. Í Danmörku á nemandinn að hafa lært að njóta bókmennta á ýmsu formi og geta beitt málinu af öryggi bæði í töluðu og rituðu máli. Hann á einnig að hafa vanist því að takast á við raunveruleg verkefni bæði einn og í samvinnu við aðra. 18

Framhaldskólinn Svíþjóð; námskröfur Í Svíþjóð byggjast námskröfur á færni í að beita málinu, –

Framhaldskólinn Svíþjóð; námskröfur Í Svíþjóð byggjast námskröfur á færni í að beita málinu, – munnnlega og – skriflega við lausn tiltekinna verkefna áhersla er á hlutverk bókmennta og tungumáls í persónuþroska nemenda. 19

Framhaldsskólinn: Danmörk, Ísland; inntak Í Danmörku u. þ. b. 2/3 í bókmenntalestur áhersla er

Framhaldsskólinn: Danmörk, Ísland; inntak Í Danmörku u. þ. b. 2/3 í bókmenntalestur áhersla er lögð á að nemendur fjalli um lífssýn í bókum og geti borið saman við eigið líf og samfélag. greina textategundir með tilliti til þess að skoða textatengsl (intertekstualitet). Á Íslandi áhersla á lestur fornbókmennta s. s. norræna goðafræði, Íslendingasögur og Eddukvæði, mikil áhersla á lestur bókmennta í bókmenntasögulegu samhengi. Í Danmörku er textahugtakið skilgreint mjög opið myndir/kvikmyndir eru einnig greindar sem texti. nemendur skulu fá tækifæri til að skoða bókmennta og menningarefni í myndrænu formi er átt við að þeir skuli þjálfast í að greina myndmál og þannig verða miðlalæsir. 20

Framhaldsskólinn: Svíþjóð inntak Ekki er kveðið á um inntak námsefnis í sænsku námskránum en

Framhaldsskólinn: Svíþjóð inntak Ekki er kveðið á um inntak námsefnis í sænsku námskránum en viðfangsefnið felst því í að beita tungumálinu við ýmiss konar verkefni sem kennarar og nemendur velja í sameiningu. oft ráðast viðfangsefni í skólum mikið af annars vegar löngum hefðum og hins vegar af því námsefni sem til er ástæða til að athuga nánar hversu mikil áhrif það hefur í sænskum skólum og hversu virkt nemendalýðræðið er í raun Í Svíþjóð er tekið fram að lesnar skuli bæði norrænar og alþjóð legar bókmenntir ásamt sænskum 21

Framhaldsskólinn: Ísland, Danmörk; námskrá Íslenska námskráin áherslu á þekkingaratriði s. s. þekkingu á bókmenntasögu

Framhaldsskólinn: Ísland, Danmörk; námskrá Íslenska námskráin áherslu á þekkingaratriði s. s. þekkingu á bókmenntasögu og norrænni goðafræði og öðrum fornbókmenntum Skólanámsgreinarnar og fræðigreinarnar sem þær byggja á í forgrunni og litið á námið sem yfirfærslu eða tileinkun ákveðinna þekkingaratriða. Í dönsku námskránni er nemandinn fremur í forgrunni og áhersla á að námið efli færni nemandans. 22

Framhaldsskólinn: Ísland, Svíþjóð; námskrá Sænska námskráin ekkert um kennsluaðferðir, af markmiðum og matsviðmiðum sést

Framhaldsskólinn: Ísland, Svíþjóð; námskrá Sænska námskráin ekkert um kennsluaðferðir, af markmiðum og matsviðmiðum sést að kennarinn þarf að vinna sem verkstjóri og leiðbeinandi í skóla þar sem megináhersla er á að þjálfa færni nemenda tungumálið verkfæri til náms sem mikilvægt er að ná tökum á bæði í tali og riti. Í Svíþjóð skýr sýn á hlutverk tungumáls og bókmennta í þroska nemandans. Bókmenntir gefa tækifæri til þroska og þekkingar á menningu. Á Íslandi: áherslaná þekkingarmarkmið, s. s. bókmenntasögulega yfirlitsþekkingu, og hlutverk tungumáls og bókmennta fyrir nemandann eru ekki í forgrunni. Fræðigreinarnar málfræði og bókmenntir eru lagðar til grundvallar. 23

Framhaldsskólinn: Námsmat – Danmörk Í Danmörku eru skrifleg annarpróf. Auk þess eru haldin skrifleg

Framhaldsskólinn: Námsmat – Danmörk Í Danmörku eru skrifleg annarpróf. Auk þess eru haldin skrifleg árspróf. Annarprófin eru hugsuð sem undirbúningur fyrir ársprófin og samræmt lokapróf í 3. bekk í menntaskóla. Gert er ráð fyrir að öll prófin séu 5 tímar. Í matinu er lögð áhersla á meðferð efnisins, greiningu, túlkun og rökræður. Í Danmörku er viðamikið opinbert kerfi sem fylgist með námsmati og prófdómarar fara yfir samræmda lokaprófið í 3. bekk. Einnig skila nemendur stærra skriflegu verkefni sem þeir fá sérstaka einkunn fyrir. Á Íslandi er ekkert sem tryggir að munnleg færni sé metin 24

Framhaldsskólinn: Námsmat –Svíþjóð Í Svíþjóð er viðamikið opinbert kerfi sem fylgist með námsmati og

Framhaldsskólinn: Námsmat –Svíþjóð Í Svíþjóð er viðamikið opinbert kerfi sem fylgist með námsmati og tekur saman upplýsingar um stöðu mála á landsvísu. Samræmt próf í sænsku er skylda í einum áfanga framhaldsskólans og er þar um að ræða mjög viðamikið munnlegt og skriflegt próf. Gott samræmi virðist á milli þess hvernig prófið er hugsað og markmiða í námskrá. 25

Framhaldsskólinn: Ísl. Danmörk; nám sem athöfn Í dönsku námskránni er gert ráð fyrir að

Framhaldsskólinn: Ísl. Danmörk; nám sem athöfn Í dönsku námskránni er gert ráð fyrir að nemendur fari í leikhús, skólaferðalög, vinni þverfaglega, vinni stærra skriflegt verkefni o. fl. Í íslensku námskránni kemur fram að nemendur eigi að fá þjálfun í töluðu máli, lestri, lesskilningi og ritun, þ. m. t. réttritun Viðfangsefnin virðast meira bútuð niður í íslensku námskránni 26

Framhaldsskólinn: Ísl. – Svíþjóð; nám sem athöfn Verkefnin lögð upp heildstæð eða þematísk í

Framhaldsskólinn: Ísl. – Svíþjóð; nám sem athöfn Verkefnin lögð upp heildstæð eða þematísk í Svíþjóð og mikil áhersla er á vinnuferlið frá hugmyndastigi til kynningar á afrakstri. Nemandinn er í forgrunni og námið á að efla færni hans. Á Íslandi eru fræðigreinarnar í forgrunni og viðfangsefnin í bókmenntum eða málfræði ráða ferðinni um athafnir nemenda. 27

Um helstu einkenni móðurmáls Þjálfun í meðferð móðurmálsins í ræðu og riti megininntak námsins

Um helstu einkenni móðurmáls Þjálfun í meðferð móðurmálsins í ræðu og riti megininntak námsins Fræðigreinarnar sem menntun kennaranna hvílir á þ. e. málfræði og bókmenntafræði – setja sterkan svip á móðurmálskennsluna samkvæmt gamalli hefð vilji til að laga námsgreinina meira að þörfum nemenda og talað er um að heildstæð móðurmálskennsla sé æskileg meiri kröfur um munnlega færni í Danmörku og Svíþjóð en hér á landi 28

Um helstu einkenni móðurmáls Sænska námskráin leggur á það áherslu að námið eigi að

Um helstu einkenni móðurmáls Sænska námskráin leggur á það áherslu að námið eigi að vera merkingabært fyrir einstaklinga og persónuþroska þeirra. Í Danmörku er lögð áhersla á færni í textagreiningu og að skoða tengsl milli samfélags og bókmennta Í bókmenntum virðist meiri áhersla á það í dönsku og sænsku námskránum að velja þurfi bókmenntaefni við hæfi nemenda og að nemendur hafi áhrif á valið á meðan íslenskar bókmenntir og bókmenntasaga eru í forgrunni á Íslandi. 29

Svíþjóð Danmörk Um áhrif nemenda á námið Í Svíþjóð er sérstakur kafli í almennri

Svíþjóð Danmörk Um áhrif nemenda á námið Í Svíþjóð er sérstakur kafli í almennri námskrá framhaldsskólans um ábyrgð og áhrif nemenda í skólanum. Þar kemur fram að nemendur eigi að hafa áhrif á hvað og hvernig kennsla fari fram og litið er á nemendalýðræði sem þjálfun í lýðræðislegri þátttöku í samfélaginu Í dönsku námskránni er tekið fram – að nemendur beri ábyrgð á eigin námi, – geri sér grein fyrir ólíkum kröfum sem námsferlið gerir til þeirra – læri að taka þátt í jafningjaþjálfun (coaching) og svörun (respons) og – geti skipulagt og skrifað stærra skriflegt verkefni 30

Um áhrif nemenda á námið Ísland Í íslensku námskránni stendur að skólar eigi að

Um áhrif nemenda á námið Ísland Í íslensku námskránni stendur að skólar eigi að leitast við að stuðla að sjálfstæði nemenda með því að leggja áherslu á þverfaglegt nám og ýmsa færniþætti. Einnig kemur fram að skólum beri að gæta jafnréttis nemenda til náms með , , því að bjóða nemendum nám og kennslu við hæfi og gefa þeim tækifæri til að spreyta sig á viðfangsefnum að eigin vali eftir því sem við verður komið. ” Hér er ábyrgðin á herðum skólans og kennaranna en ekkert fjallað um ábyrgð nemenda. 31

Framhaldsskólar upphafsástand nemenda Sérstaklega vandasamt í Danmörku þar sem álíka margir virðast fara í

Framhaldsskólar upphafsástand nemenda Sérstaklega vandasamt í Danmörku þar sem álíka margir virðast fara í framhaldsskóla úr 9. og 10. bekkjum grunnskólanna. Framhaldsskólar á Íslandi taka mið af einkunnum í samræmdum prófum. Í Svíþjóð er dæmi um að nemendur séu látnir taka stöðupróf eða sérleiðir hannaðar fyrir þá sem ná ekki grunnskólapróf. 32

Niðurstöður – kröfur Í Svíþjóð virðist lögð meiri áhersla á að tengja vinnu nemenda

Niðurstöður – kröfur Í Svíþjóð virðist lögð meiri áhersla á að tengja vinnu nemenda við raunveruleg viðfangsefni í samfélaginu Námsmat virðist vera miklu síður í takt við opinbera námskrá hér á Íslandi en í hinum löndunum. Samræmd próf í “móðurmáli” eru í sænsku og dönsku framhaldsskólum. Bæði í dönsku og sænsku námskránum er ítrekað bent á ábyrgð nemenda á eigin námi. Á Íslandi er kennarinn stjórnandi. 33

Móðurmál í grunnskólum Heildartímar Ísland 8064 Danmörk 7050 Svíþjóð 6665 Stærðfræði 1200 15% 1080

Móðurmál í grunnskólum Heildartímar Ísland 8064 Danmörk 7050 Svíþjóð 6665 Stærðfræði 1200 15% 1080 15% 900 14% Móðurmál 1296 16% 1800 26% 1490 22% Náttúrufræði 624 8% 630 9% 800 12% Samtals 3120 39% 3510 50% 3190 48% 34

Bóknámsbrautir í framhaldsskólum Ísland 2702 t Danmörk Svíþjóð 2730 -2747 t 2150 t Málabraut

Bóknámsbrautir í framhaldsskólum Ísland 2702 t Danmörk Svíþjóð 2730 -2747 t 2150 t Málabraut - Félagsfræðabraut Náttúrufræðibraut Stærðfræðibraut Náttúrufræðibraut 35

Móðurmál í grunn- og framhaldsskólanámi Móðurmál alls Grunnskóli Framhaldsskóli Kjarni (A) Ísland Danmörk Svíþjóð

Móðurmál í grunn- og framhaldsskólanámi Móðurmál alls Grunnskóli Framhaldsskóli Kjarni (A) Ísland Danmörk Svíþjóð 1296 16% 1800 26% 1490 22% 290 12% 262 10% 232 12% 1818 40% 172 8% Kjörsvið 34 2% (D og E) Samtals 2062 36% 1696 32% 36

Lokaorð Greiningin á námskröfum byggir á því sem sagt er í námskrám og öðrum

Lokaorð Greiningin á námskröfum byggir á því sem sagt er í námskrám og öðrum opinberum lýsingum. Spurningin nú er hvort og hvernig þær áherslur sem lagðar eru í opinberum lýsingum um stefnu og framkvæmd í skólamálum koma fram í skólastarfinu og kennslustofunni. Umhugsunarefni: – Áberandi skortur á einhverri sýn á hvert er hlutverk fagsins móðurmáls í skólum á Íslandi – það á bæði við um bókmenntir, málfræði og ritun 37

Heimildir Svíþjóð: Skolverket http: //skolverket. se Danmörk: Ísland: Aðalnámskrár grunnskóla og framhaldsskóla sjá vef

Heimildir Svíþjóð: Skolverket http: //skolverket. se Danmörk: Ísland: Aðalnámskrár grunnskóla og framhaldsskóla sjá vef menntamálaráðuneytisins 38