Mannausstefna Akureyrarbjar Ingunn H Bjarnadttir Akureyri ll lfsins
Mannauðsstefna Akureyrarbæjar Ingunn H. Bjarnadóttir Akureyri – öll lífsins gæði
Mannauðsstefna • Mannauðsstefnan var samþykkt í bæjarstjórn 17. mars 2009 • Stefnan var prentuð og send á alla vinnustaði • Stefnan er aðgengileg bæði á starfsmannahandbók og stjórnendahandbók Akureyri – öll lífsins gæði
Unnið að endurskoðun • Nýir kaflar um – Velferð starfsmanna – Viðveru/fjarveru starfsmanna – Þjónustustefnu… Akureyri – öll lífsins gæði
Markmið stefnunnar • Að tryggja að hjá Akureyrarbæ starfi hæft og ánægt starfsfólk sem veitir góða þjónustu • Stefnan á að stuðla að góðum starfsskilyrðum og möguleikum starfsfólks til að dafna í starfi • Stefnan lýsir vilja bæjaryfirvalda til að byggja upp góðan vinnustað þar sem gott starf er unnið af áhugasömu, samstilltu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis Akureyri – öll lífsins gæði
Til þess að tryggja starfsánægju starfsmanna sinna ætlar Akureyrarbær 6 markmið Ø að taka vel á móti nýju starfsfólki Ø að gera starfsfólki kleift að þróast í starfi Ø að stuðla að því að starfsfólk sýni samstarfsfólki og stofnunum/vinnustöðum Akureyrarbæjar virðingu og komi fram af heilindum Ø að stuðla að því að vinnustaðir séu fjölskylduvænir þannig að starfsfólk geti samræmt starfs- og fjölskylduábyrgð Ø að stuðla að því að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum Akureyrarbæjar séu til fyrirmyndar Ø að undirbúa starfslok vandlega Akureyri – öll lífsins gæði
Til þess að tryggja hæfni starfsmanna sinna ætlar Akureyrarbær 9 markmið Ø að sjá til þess að stjórnendur og starfsmenn hafi greiðan aðgang að upplýsingum, þekki boðleiðir og hafi sem besta innsýn í starf samstarfsaðila innan bæjarkerfisins. Ø að ráða hæft og metnaðarfullt starfsfólk Ø að vinna markvisst að jafnrétti kynjanna Ø að gera starfsfólki kleift að efla þekkingu sína og hæfni í samræmi við síbreytilegar kröfur sem gerðar eru til vinnustaða Akureyrarbæjar Ø að sjá til þess að markmið hvers vinnustaðar séu skýr og að starfsfólk þekki þau Ø að tryggja að reglur um ábyrgðamörk í stjórnsýslu Akureyrarbæjar séu þekktar Ø að tryggja að starfslýsingar séu til fyrir öll störf Ø að sjá um að starfsmannasamtöl fari fram árlega á öllum vinnustöðum Ø að efna til fjölbreyttrar fræðslu fyrir stjórnendur Akureyri – öll lífsins gæði
Til þess að tryggja starfsánægju starfsmanna sinna ætlar Akureyrarbær að taka vel á móti nýju starfsfólki með því að • allt nýtt fastráðið starfsfólk fari á nýliðanámskeið þar sem það er frætt um starfsemi og markmið Akureyrarbæjar ásamt réttindum sínum og skyldum – Ábyrgð: Starfsmannaþjónusta og stjórnendur • tryggja að starfsfólk fái allar nauðsynlegar upplýsingar og kynningu á vinnustaðnum – Ábyrgð: Stjórnendur • stjórnendur hafi aðgang að og noti gátlista um móttöku nýrra starfsmanna – Ábyrgð: Starfsmannaþjónusta Akureyri – öll lífsins gæði
Til þess að tryggja starfsánægju starfsmanna sinna ætlar Akureyrarbær að stuðla að því að starfsfólk sýni samstarfsfólki og stofnunum/vinnustöðum Akureyrarbæjar virðingu og komi fram af heilindum með því að – hvetja til heimsókna og kynninga milli vinnustaða Akureyrarbæjar • Ábyrgð: Stjórnendur og starfsfólk – starfsfólk geti komið ábendingum og hugmyndum er varða málefni innan Akureyrarbæjar á framfæri m. a. á starfmannavef Akureyrarbæjar- http: //eg. akureyri. is • Ábyrgð: Starfsmannaþjónusta – hafa hugfast að vinnum öll hjá sama vinnuveitanda, Akureyrarbæ • Ábyrgð: Allt starfsfólk Akureyrarbæjar Akureyri – öll lífsins gæði
Til þess að tryggja starfsánægju starfsmanna sinna ætlar Akureyrarbær að stuðla að því að vinnustaðir séu fjölskylduvænir þannig að starfsfólk geti samræmt starfs- og fjölskylduábyrgð með því að – gefa starfsfólki kost á hlutastörfum, sveigjanlegum vinnutíma og vinnuaðstæðum eftir því sem verkefni og aðstæður leyfa • Ábyrgð: Allt starfsfólk Akureyrarbæjar – gera starfsfólki kleift að minnka starfshlutfall tímabundið vegna fjölskylduábyrgðar, t. d. umönnunar barna eða veikinda í fjölskyldunni • Ábyrgð: Stjórnendur – hvetja bæði kyn til að nýta fæðingarorlof • Ábyrgð: Stjórnendur – hvetja foreldra til að skipta með sér heimaveru vegna veikinda barna • Ábyrgð: Stjórnendur – skapa starfsfólki möguleika á samfelldum starfsferli og koma til móts við þarfir hvers og eins t. a. m. vegna aldurs, breytinga á persónulegum högum og starfsgetu • Ábyrgð: Stjórnendur Akureyri – öll lífsins gæði
Til þess að tryggja starfsánægju starfsmanna sinna ætlar Akureyrarbær að stuðla að því að aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum Akureyrarbæjar séu til fyrirmyndar með því að – allir vinnustaðir Akureyrarbæjar geri skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað (skv. lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum nr. 46/1980) og framfylgi henni • Ábyrgð: Stjórnendur, öryggisverðir og öryggistrúnaðarmenn – hvetja starfsfólk til að stunda heilbrigt líferni og leita tilboða fyrir starfsfólk í heilsurækt • Ábyrgð: Stjórnendur og hagþjónusta – halda yfirvinnu innan hóflegra marka af vinnuverndar- og fjölskylduástæðum og fara eftir gildandi reglum um yfirvinnu • Ábyrgð: Stjórnendur og starfsfólk – koma í veg fyrir einelti og kynferðislega áreitni á vinnustað með fræðslu, reglum og markvissri meðferð þeirra mála sem upp kunna að koma • Ábyrgð: Stjórnendur, starfsfólk og starfsmannaþjónusta Akureyri – öll lífsins gæði
Til þess að tryggja starfsánægju starfsmanna sinna ætlar Akureyrarbær að undirbúa starfslok vandlega með því að – eiga starfslokasamtöl við starfsfólk til að tryggja að starfsþekking haldist innan vinnustaðarins og greina ástæður þess að starfsfólk hættir • Ábyrgð: Stjórnendur – bjóða starfsfólki sem nálgast starfslok vegna aldurs námskeið til að undirbúa þessi tímamót • Ábyrgð: Starfmannaþjónusta og stjórnendur Akureyri – öll lífsins gæði
Til þess að tryggja hæfni starfsmanna sinna ætlar Akureyrarbær að ráða hæft og metnaðarfullt starfsfólk með því að – auglýsa öll störf nema þegar um er að ræða tímabundnar ráðningar eða tilfærslu í starfi • Ábyrgð: Stjórnendur – gæta jafnræðis við ráðningar í störf • Ábyrgð: Stjórnendur – stjórnendur hafi aðgang að og noti gátlista um vinnulag við ráðningar • Ábyrgð: Stjórnendur – skilgreina starfskröfur í starfsauglýsingum í samræmi við starfslýsingar • Ábyrgð: Stjórnendur Akureyri – öll lífsins gæði
Til þess að tryggja hæfni starfsmanna sinna ætlar Akureyrarbær að gera starfsfólki kleift að efla þekkingu sína og hæfni í samræmi við síbreytilegar kröfur sem gerðar eru til vinnustaða Akureyrarbæjar með því að – gera símenntunaráætlun fyrir hvern vinnustað og hvern starfsmann, endurskoða hana árlega í starfsmannasamtali og skrá í mannauðskerfi Akureyrarbæjar • Ábyrgð: Stjórnendur, starfsfólk og starfsmannaþjónusta – nota starfsmannasamtöl og starfslýsingar til að meta fræðsluþarfir hvers starfsmanns • Ábyrgð: Stjórnendur og starfsfólk – tryggja jafnræði við símenntun • Ábyrgð: Stjórnendur Akureyri – öll lífsins gæði
Til þess að tryggja hæfni starfsmanna sinna ætlar Akureyrarbær að sjá um að starfsmannasamtöl fari fram árlega á öllum vinnustöðum með því að – í boði verði námskeið um starfsmannasamtöl fyrir stjórnendur og starfsfólk • Ábyrgð: Starfsmannaþjónusta – tryggja eftirfylgni með því að yfirmenn skrái í mannauðskerfi Akureyrarbæjar að starfmannasamtali sé lokið • Ábyrgð: Stjórnendur og starfsmannaþjónusta – starfsmannasamtalseyðublað og leiðbeiningar verði stjórnendum og starfsfólki aðgengilegt í starfsmannhandbók á heimasíðu Akureyrarbæjar • Ábyrgð: Starfsmannaþjónusta Akureyri – öll lífsins gæði
Tilgangur starfsmannasamtala m. a. : • Að gefa starfsmönnum og yfirmönnum tækifæri á að ræða saman við þægilegar aðstæður um starfið, frammistöðu og framtíðina. • Að bæta samstarfið og auka starfsánægjuna. • Að meta þörf á fræðslu til að nýta hæfileika starfsmanna til fulls. Akureyri – öll lífsins gæði
Almennar skyldur og réttindi • Almenn réttindi og skyldur starfsmanna fara eftir gildandi lögum og samþykktum svo og kjarasamningum á hverjum tíma • Launakjör skulu ákvörðuð á grundvelli kjarasamninga og reglna sem sveitarfélagið setur sér Akureyri – öll lífsins gæði
Til viðbótar hafa starfsmenn þessum skyldum að gegna • • • fylgi þeim reglum sem í gildi eru á hverjum vinnustað um vinnutíma, árangur og hátterni svo og lögum og sérstökum reglum deilda og stofnana bæjarins eins og þær eru hverju sinni vinni eftir stefnu vinnustaðar síns af heilindum og trúmennsku hlíti lögmætum fyrirmælum yfirmanna sinni starfi sínu af samviskusemi og sýni kurteisi, lipurð og réttsýni starfi fyrst og fremst í þágu bæjarbúa sem leggur þeim þá skyldu á herðar að setja almannahagsmuni ofar sérhagsmunum gæti þess að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu sem þeir gegna gæti þagmælsku og trúnaðar varðandi málefni samstarfsmanna, bæjarbúa og viðskiptavina, sem þeir verða áskynja í starfi og gildir þagnarskylda þótt látið sé af starfi þiggi ekki greiðslur eða annan viðurgjörning frá viðskiptamönnum sem túlka má sem persónulega þóknun fyrir greiða stofni ekki til eigin atvinnurekstrar eða umboðsstarfsemi, gegni starfi í þjónustu annarra eða gangi í stjórn atvinnufyrirtækis nema með leyfi yfirmanns stundi ekki starfsemi sem telja má að sé í samkeppni við starfsemi bæjarins/vinnustaðarins séu ekki undir áhrifum ávana- og vímuefna af neinu tagi á vinnutíma láti af störfum eigi síðar en í lok þess mánaðar sem þeir verða 70 ára nema kjarasamningur kveði á um annað. Við sérstakar aðstæður getur starfsmannastjóri gefið undanþágu frá þessu ákvæði. Akureyri – öll lífsins gæði
Til þess að tryggja eftirfylgni með mannauðsstefnunni ætlar Akureyrarbær að • kanna reglulega starfsánægju og starfsumhverfi og gera í framhaldinu áætlanir um viðbrögð við niðurstöðum – Ábyrgð: Starfsmannaþjónusta • útbúa gátlista fyrir stjórnendur um framkvæmd mannauðsstefnunnar – Ábyrgð: Starfsmannaþjónusta • setja sér þjónustustefnu sem starfsfólk hefur að leiðarljósi – Ábyrgð: Framkvæmdastjórn • sjá um að mannauðsstefnan verði starfsfólki aðgengileg á öllum vinnustöðum – Ábyrgð: Stjórnendur • Mannauðsstefnan skal koma til endurskoðunar eigi sjaldnar en á fjögurra ára fresti – Ábyrgð: Stjórnsýslunefnd Akureyri – öll lífsins gæði
Velferðarstefna gangvart starfsfólki • Samþykkt í bæjarstjórn í nóvember 2013 Akureyri – öll lífsins gæði
Markmið velferðarstefnunnar • Að stuðla að vellíðan og að borin sé umhyggja fyrir starfsmönnum. Mikilvægt er að standa vörð um heilsu starfsmanna og tryggja að aðstæður í vinnu og vinnuumhverfi séu heilsusamlegar. • Að draga úr fjarveru starfsmanna og um leið þjónustuskerðingu, kostnaði við afleysingar og álagi sem fjarvera starfsmanna veldur öðrum starfsmönnum á vinnustöðum Akureyrarbæjar. Akureyri – öll lífsins gæði
Markmið velferðarstefnunnar • Að samræma viðbrögð á vinnustöðum Akureyrarbæjar vegna fjarveru starfsmanna og gæta jafnræðis. Mikilvægt er að starfsmenn og stjórnendur fylgi skýrum og ákveðnum verkferlum við tilkynningar, skráningar og viðbrögð við fjarveru til að tryggja samræmd og viðeigandi viðbrögð. Akureyri – öll lífsins gæði
Markmið velferðarstefnunnar • Að stuðla að sameiginlegri ábyrgð allra starfsmanna á því að efla vellíðan og velferð í starfi. • Að stuðla að farsælli endurkomu starfsmanna til vinnu eftir langtíma fjarveru vegna veikinda, slysa eða annarra ástæðna. Akureyri – öll lífsins gæði
Heilbrigði vinnustaða • Forvarnarkafli • Starfsmenn og yfirmenn bera sameiginlega ábyrgð á góðum starfsanda á vinnustað. Á hverjum vinnustað þarf að vera gott vinnuumhverfi þar sem starfsmönnum gefst tækifæri til heilsueflingar. Hvetja skal til notkunar heilsusamlegra og umhverfisvænna samgangna til og frá vinnu og á vinnutíma. Akureyri – öll lífsins gæði
Heilsuráð Akureyrarbæjar • Hlutverk ráðsins er m. a. að hvetja starfsfólk til heilbrigðs lífernis, veita vinnustöðum ráðgjöf og standa fyrirlestrum um heilsueflingu. • Ráðið beiti sér fyrir þátttöku vinnustaða í átaksverkefnum s. s. „Hjólað í vinnuna“ og „Lífshlaupinu“. • Ráðið hafi einnig frumkvæði að því að leitað sé eftir tilboðum í heilsurækt í samvinnu við Hagþjónustu. Akureyri – öll lífsins gæði
Heilsuráð Akureyrarbæjar Skipað af bæjarstjóra • Ellert Örn Erlingsson - fulltrúi Samfélagsog mannréttindadeildar • Alma Rún Ólafsdóttir – fulltrúi Starfsmannaþjónustu • Sigurbjörg Rún Jónsdóttir – fulltrúi Skóladeildar Akureyri – öll lífsins gæði
Heilsueflingarnefndir á vinnustöðum • Heilsuráð Akureyrarbæjar vinni að því að á vinnustöðum verði stofnaðar heilsueflingarnefndir. Hlutverk nefndanna er að stuðla að heilsueflingu og góðu vinnuumhverfi auk þess að vera tengiliðir við Heilsuráð Akureyrarbæjar. – Ábyrgð: Heilsuráð, stjórnendur og starfsmenn Akureyri – öll lífsins gæði
Ábyrgð stjórnenda og starfsmanna • Vinnustaðir vinni markvisst að heilbrigðum og góðum starfsanda, gagnkvæmri virðingu meðal starfsmanna, góðum samskiptum og vinnugleði. – Ábyrgð: Stjórnendur og starfsmenn • Halda yfirvinnu innan hóflegra marka af vinnuverndarog fjölskylduástæðum og fara eftir gildandi reglum um yfirvinnu. – Ábyrgð: Kjarasamninganefnd, stjórnendur og starfsmenn • Heilsusamlegt fæði sé í boði í mötuneytum á vegum Akureyrarbæjar. – Ábyrgð: Stjórnendur Akureyri – öll lífsins gæði
Umhverfisvænar og heilsusamlegar samgöngur • Hvetja til notkunar almenningssamgangna og kynna þjónustu Strætisvagna Akureyrar á vinnustöðum. – Ábyrgð: Strætisvagnar Akureyrar og Heilsuráð Akureyrarbæjar • Hafa reiðhjólastæði við stofnanir bæjarins. – Ábyrgð: Fasteignir Akureyrarbæjar • Fjölga rafmagnshjólum hjá stofnunum bæjarins til notkunar á vinnutíma. – Ábyrgð: Framkvæmdadeild og stjórnendur Akureyri – öll lífsins gæði
Skilgreining á fjarveru annarri en vegna veikinda Leyfileg fjarvera sé skýrt skilgreind og á vinnustöðum Akureyrarbæjar séu til verkferlar um viðbrögð við fjarveru starfsmannarri en vegna veikinda. Akureyri – öll lífsins gæði
Tilkynningar og skráning • Útbúnar verði verklagsreglur fyrir vinnustaði vegna tilkynninga um fjarveru og beiðna um heimildir til fjarveru. – Ábyrgð: Embættismenn • Skoðaðir verði kostir þess að auka rafræna skráningu á viðveru og ástæðum fjarveru annarrar en vegna veikinda. – Ábyrgð: Embættismenn og Starfsmannaþjónusta Akureyri – öll lífsins gæði
Tilkynningar og skráning • Ópersónugreinanlegar tölulegar upplýsingar um fjarveru og viðveru verði reglulega teknar saman og kynntar starfsmönnum. – Ábyrgð: Stjórnendur Akureyri – öll lífsins gæði
Úrræði vegna fjarveru starfsmanna Mikilvægt er að viðbrögð stjórnenda vegna fjarveru starfsmanna séu skilgreind og fyrirfram ákveðin. • Ræða viðveru starfsmanna í árlegum starfsmannasamtölum. • Hafa samband við starfsmann í veikindum eigi síðar en 5 dögum eftir að hann tilkynnir veikindin. – Ábyrgð: Stjórnendur Akureyri – öll lífsins gæði
Fjarverusamtal vegna skammtímafjarveru • Boða starfsmenn, sem eru oft, lengi eða reglulega frá vinnu, í fjarverusamtal. Slíkt samtal er boðað þegar starfsmaður hefur verið veikur/fjarverandi í 10 daga eða fleiri á sex mánaða tímabili eða fjögur skipti á sex mánaða tímabili. • Markmið samtalsins er m. a. að finna leiðir til að aðstoða viðkomandi við að halda fullri starfsgetu. Starfsmanni ber ekki skylda til að gefa upplýsingar um persónuleg eða heilsutengd mál í samtali við yfirmann. Sjúkdómar eru einkamál en fjarveran hefur áhrif á vinnustaðinn og hana þarf að ræða. Akureyri – öll lífsins gæði
Endurkoma til vinnu eftir langtímaveikindi • Stuðla að árangursríkri endurkomu til vinnu eftir langtímaveikindi. Mikilvægt er að hún sé vel skipulögð í samráði við starfsmanninn og sérfræðinga sem koma að málum hans ef við á. – Ábyrgð: Stjórnendur Akureyri – öll lífsins gæði
Í starfsmannahandbók má finna: – Velferðarstefnuna – Upplýsingar um heilsuráð – Upplýsingar um fjarverusamtöl – Upplýsingar fyrir heilsueflingarnefndir Akureyri – öll lífsins gæði
- Slides: 35