Kick off fundur Stjrnvsi haldinn Nauthl 1 september
Kick off fundur Stjórnvísi haldinn í Nauthól 1. september 2016
DAGSKRÁ 16: 30 -16: 35 Opnun fundar (Nótt) 16: 35 -16: 45 Upphaf starfsárs/tímalína (Gunnhildur) 16: 45 -16: 55 Ábyrgð og hlutverk (Guðný) • stjórnar faghópa • formanns faghópa 16: 55 -17: 00 Hvernig á að halda viðburð? (Áslaug) • Hvernig á að nota heimasíðuna? 17: 00 Kaffi 17: 05 -17: 40 Tengslamyndun faghópa (Þórunn/Sigurjón) 17: 40 -17: 40 Næstu skref/Fundi slitið (Gunnhildur)
Starfsárið 2016 - 2017
Upphaf starfsárs og tímalína 30. 08. 2016 31. 08. 2016 01. 09. 2016 02. 09. 2016 06. 09. 2016 Sep. 2016 Okt. 2016 Nóv. 2016 Des. 2016 Jan. 2016 Feb. 2016 Mar. 2016 Apr. 2016 Maí 2016 Faghópar senda inn drög að haustdagskrá Stjórnvísi sendir drög til faghópa til undirbúnings fyrir Kick off fundur faghópa Faghópar setja inn viðburði á heimasíðu Kynning á dagskrá til félagsmanna með pósti. Fundur stjórnar Stjórnvísi með fagráði félagsins Haustráðstefna Stjórnvísi Jólafundur stjórna faghópa Fundur stjórnar með fagráði félagsins Námskeið fyrir stjórnir faghópa Íslenska ánægjuvogin 2015 – uppskeruhátíð Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi 2016 Aðalfundir faghópa Stjórnvísi Aðalfundur Stjórnvísi.
Stjórnir faghópa
Ábyrgð og hlutverk stjórnar faghópa • Stjórn faghóps ber ábyrgð á að aðalfundur sé haldinn og að á aðalfundi sé kosin stjórn faghóps og ber ásamt framkvæmdastjóra Stjórnvísi ábyrgð á að verklagsreglu um störf faghópa sé fylgt (t. d. hvernig á að halda fundi). • Stjórn faghóps útbýr dagskrá fyrir komandi starfsár faghópsins. • Stjórnarmeðlimir faghóps skuli vera virkir í starfi Stjórnvísi, þ. e. • Innan faghóps, við undirbúning og framkvæmd viðburða • Faghópasamfélagsins, í samstarfi við aðra faghópa • Stjórnvísi, s. s. skipulagsfundir, þjálfun og fleira sem er á vegum Stjórnvísi.
Ábyrgð og hlutverk formanna faghópa • Formaður faghóps boðar til aðalfundar faghóps. Aðalfundur skal haldinn á tímabilinu mars-apríl ár hvert. Á aðalfundi skal a. m. k. eftirfarandi tekið fyrir: • kosning stjórnar, • viðmiðunarfjöldi í stjórn þ. e. í stjórn faghóps geta verið allt frá 4 -10 manns. • gæta að því að í stjórn komi aðilar frá ólíkum fyrirtækjum/stofnunum/háskólasamfélaginu. • dagskrá faghópsins sl. starfsár. • Formaður faghóps í samstarfi við stjórn faghóps, annast upplýsingastreymi til stjórnar og skrifstofu Stjórnvísi.
Hvernig á að halda viðburð?
1. Fundarboð • Ábyrgðaraðili viðburðar stofnar viðburð á heimasíðu Stjórnvísi í samræmi við fyrirliggjandi dagskrá vetrarins. • Þegar dagsetning og tímasetning er ákveðin skal athuga hvort að viðburður stangist nokkuð á við annan viðburð innan Stjórnvísi, ef svo er þá skal velja aðra dagsetningu og/eða tímasetningu ef möguleiki er. • Sjá „Handbók vefsins“ neðst á heimasíðu Stjórnvísi. Smellið á , , Um Stjórnvísi“ og þar getið þið nálgast handbókina. • Ábyrgðaraðili skal ræða við fyrirlesara hvort veitingar verða í boði á viðburðinum. Lágmarkið er að hafa vatn og aðgang að kaffi. • Þegar viðburður er stofnaður skal setja inn eftirfarandi upplýsingar: • Nafn viðburðar • Lýsing á viðburði: fyrir hverja er fundurinn, hvaða veitingar eru í boði • Nafn fyrirlesara • Hámarksfjöldi þátttakenda (ef við á) • Staður • Dagsetning Sýnikennsla hvernig viðburður er stofnaður.
1. Fundarboð Viðburður stofnaður Innskráning á heimasíðunni. Smellir á þinn faghóp: athugaðu að þú verður að vera skráður í stjórn faghópsins til þess að geta búið til viðburð.
1. Fundarboð Viðburður stofnaður Mikilvægt að setja inn allar upplýsingar.
1. Fundarboð Viðburður stofnaður Mikilvægt að setja inn allar upplýsingar.
2. Viðburður auglýstur • Stjórn faghóps auglýsir viðburð • Skrifstofa Stjórnvísi sér einnig um að auglýsa viðburðinn m. a. með tölvupósti með dagskrá vikunnar • Stjórnir eru hvattar til að auglýsa viðburði sem víðast t. d. • Stéttarfélög • Háskólasamfélagið • Fyrirtæki innan sem utan Stjórnvísi • Hagsmunasamtök
3. Undirbúningur fyrir fund • Ábyrgðaraðili viðburðar sækir sniðmát af glæru af vef Stjórnvísi. (Aðgengilegt neðst á heimasíðu Stjórnvísi undir , , Um Stjórnvísi“. • Í framhaldi sendir ábyrgðaraðili fyrirlesara glæru sem skal vera sýnileg þegar viðburður hefst. • Mikilvægt er að ábyrgðaraðili viðburðar láti fyrirlesara vita um reglur varðandi almenna kynningu á fyrirtækjum og/eða vörum, þ. e. að kynning á viðburði má ekki taka nema 5 -7 mínútur. • Daginn fyrir viðburð skal ábyrgðaraðili upplýsa fyrirlesara um fjölda þátttakenda. Ábyrgðaraðili og/eða framkvæmdastjóri Stjórnvísi prentar út skráningalista og mætir með á viðburðinn
4. Fundur haldinn • Ábyrgðaraðili viðburðar skal mæta a. m. k. 15 mínútum fyrir auglýstan tíma. • Fundur settur með því að ábyrgðaraðili: • býður fundargesti velkomna • kynnir tilgang og hlutverk Stjórnvísi • kynnir fyrirlesara, tímalengd og efni fundar • biðja þátttakendur um að kynna sig með nafni og fyrirtæki þegar þeir varpa fram spurningum • Ábyrgðaraðili lætur skráningalista ganga. • Í lok fundar skal ábyrgðaraðili • þakka fyrirlesara • Þakka fundargestum fyrir þátttöku • minna á næsta fund hjá faghópnum
5. Frágangur fundar • Ábyrgðaraðili óskar eftir glærum frá fundinum frá fyrirlesara og vistar það undir viðburðinum á heimasíðu Stjórnvísi. • Ábyrgðaraðili sendir fyrirlesurum kveðju og þakkar fyrir.
Tengslamyndun hópa Undirbúningur fyrir næsta dagskrárlið. • 17: 00 -17: 05 Kaffi • 17: 05 -17: 30 Tengslamyndun faghópa • 17: 30 -17: 40 Kynning á niðurstöðum frá hverju borði.
Tengslamyndun faghópa
Tengslamyndun hópa • Borð fyrir , , Lessons learned”. • Aðrir skulu ræða við þá aðila sem þeir hafa áhuga á að halda viðburði með.
- Slides: 20