Kafli 15 ndunarfri Hlutverk ndunarfra 1 Frir blinu
Kafli 15. öndunarfæri
Hlutverk öndunarfæra 1. Færir blóðinu súrefni (O 2) og losar það við koltvíoxíð (CO 2) 2. Á þátt í að viðhalda eðlilegu sýrustigi (p. H) blóðs 3. Myndar hljóma og rödd okkar 4. Lyktarskynið er staðsett í nefinu (I heilataugin) 5. Nefholið hreinsar, rakamettar og hitar innöndunarloftið
Öndunarfærin • Öndunarfærinskiptast eftir staðsetningu – Efri öndunarvegur • nef • kok (pharynx) – Neðri öndunarvegur • • barkakýli (larynx) barki (trachea) berkjur (bronchus) berkjugreinar / berklingar (broncioli)
Nef (nasus) • Nef skiptist í: – Ytra nef (nasus externus) sem er gert úr brjóski. • Í því eru tvær nasir (nares) sem eru aðskildar með nefskiptum (septum nasi) – Nefhol (cavum nasi) er slímhúðarklætt hol sem: • Hitar • Rakamettar • Hreinsar • og skynjar lykt Innöndunarloft Nefholið er tengt afholum höfuðkúpu (sinus paranasales)
Kok (pharynx) • Skiptist í – Nefkok (nasopharynx) – Munnkok (oropharynx) – Barkakýliskok (laryngopharynx) • Nefkok – Aftan við nefhol – Tilheyrir eingöngis öndunarkerfi • Munnkok og barkakýliskok – Aftan við munnhol og barkakýli – Tilheyra bæði öndunarkerfi og meltingarkerfi
Barkakýli (larynx) • Barkakýli er hylki úr brjóski (oft kallað adamseplið) og er það líffæri raddmyndunar því þar eru raddböndin (plica vocalis) staðsett • Raddböndin eru vöðvafellingar sem teygja sig út úr hliðarveggjum barkakýlisins ü Þegar loft leikur um raddböndin þá titra þau og mynda hljóm • Barkalok / speldi (epiglottis) leggst yfir og lokar fyrir barkan þegar fæðu er kyngt
Berkja, barki og berkjugreinar • Loftvegurinn greinist í sífellt minni leiðslur sem endar loks í lungnablöðrum • Kallast berkjutré – Barki (trachea) – Meginberkjur (bronchus principalis) ein í hvort lunga – Minni berkjur (bronchus) – Berkjugreinar / berklingar (bronchioli) – Lungnablöðrur (alveolus pulmonalis)
Barki (trachea) • Liggur fyrir framan vélinda • Lítur út eins og sturtubarki og er haldið opnum með u. þ. b. 20 C-laga brjóskhringjum • Barkinn er klæddur að innan með slímklæddri bifhæðri stuðlaþekju sem festir agnir og óhreinindi úr loftinu og færir það upp í kok • Berkjur og stærri berkjugreinar eru svipaðar að uppbyggingu og barkinn • Minni berkjugreinar eru ekki með brjóskhringi en eru með meira af sléttum bandvef
Lungnablöðrur (alveolus pulmonalis / alveoli) • Hver berkjugrein endar í klasa af blöðrum sem kallast lungnablöðrur • Hver blaðra er gerð úr einfaldri flöguþekju og teygjanlegum bandvef – Einnig eru átfrumur og frumur sem losa sápukennt efni í lungnablöðrunum • Hver og ein lungnablaðra er umvafin háræðaneti – Loftskipti lungna og blóðs fara fram í lungnablöðrum
Lungu (pulmones) • Lungun eru aðallíffæri öndunarkerfisins • Þau eru tvö svampkennd líffæri sem fylla brjóstholið – Vinstra lungað er aðeins minna og gert úr tveimur blöðum (lobi) en það hægra er gert úr þremur blöðum – Þetta er vegna þess að hjartað liggur aðeins vinstra megin og tekur því pláss frá lungunum.
Lungun og fleiðruhimnur • Fleiðra (pleura) er himna sem klæðir brjóstholið að innan og lungun að utan – Lungnafleiðra (pleura pulmonalis) klæðir lungun að utan – Veggfleiðra (pleura parietalis) klæðir brjóstholið að innan • Milli fleiðruhimnanna er fleiðruhol (cavum pleurae) og þar er smurvökvi sem auðveldar öndunarhreyfingar • Í fleiðruholinu er undirþrýstingur þannig að lungun falla þétt að brjóstholsveggnum – Ef það kemur gat á aðra hvora fleiðru himnuna og loft kemst inn á milli þá hættir þessir undirþrýstingur, lungun hætta að loða við brjóstholsvegginn og lungun falla saman
Samfallið lunga
Öndun (ventilatio pulmonalis) Innöndun: 1. Þindin verður flöt þ. e. spennist niður á við vegna vöðva-samdráttar. 2. Millirifjavöðvar dragast saman og við það spennast rifbein út og upp á við ü Innöndun við áreynslu notar fleiri vöðva 3. Lungun fylgja brjóstveggnum eftir og rúmmál þeirra stækkar 4. Undirþrýstingur myndast innan brjóstholsins og loft flæðir inn í lungun undan þrýstingsfallanda 1. 2. 3. 4. Útöndun: Þindin slaknar og hvelfist Millirifjavöðvarnir slakna Við þetta minnkar brjóstholið og þrýstingur í brjóstholi eykst Loft þrýstist út úr lungunum ü Fer út meiri þrýstingi í minni 5. Útöndun er passíft (óvirkt) ferli sem er aðallega vegna teygjanleika lungnanna ü Útöndun við áreynslu notar hins vegar vöðva ü Innri millirifjavöðva og kviðvöðva
Öndunarhreyfingar
Öndunarhreyfingar • Því má líkja lungum við fýsibelg – Þegar rúmmál fýsibelgjarins er aukið þá fyllist hann af lofti • Samanber innöndun – Þegar rúmmál hans minnkar þá fer loftið úr honum • Samanber útöndun
Öndun og rúmtak lungna • Öndunarloft: – Loft sem fer um lungun í einum andardrætti (~1/2 lítri í hvíld). • Viðbótarloft: – Það loft sem hægt er að draga inn eftir venjulega innöndun (~3 lítrar). • Varaloft: – Það loft sem hægt er að blása frá sér eftir venjulega útöndun (~1, 2 lítrar). • Andrýmd: – Viðbótarloft + öndunarloft + varaloft • Er mismunandi hjá fólki, fer eftir líkamsstærð (u. þ. b. 4, 7 lítrar) • Loftleif: – Loft sem eftir er í lungunum að lokinni hámarksútöndun (rúmlega lítri). • Dautt rúm: – Loft í öndunargöngum sem nær aldrei til “lungna” (100 – 150 ml).
Hlutfall lofttegunda í innöndunar- og útöndunarlofti
Innri og ytri öndun • Ytri öndun – Fer fram á milli lungna og blóðs – Blóðið tekur upp súrefni og lætur frá sér koltvíoxíð • Kallast loftskipti • Innri öndun – Fer fram á milli blóðs og vefja líkamans – Vefir taka upp súrefni og næringarefni úr blóðinu og láta úrgangsefni og koltvíoxíð í blóðið
Flutningur öndunarlofts
Loftskipti • Súrefni flæðir úr lungnablöðrunum í háræðablóðið og koltvíoxíð flæðir úr blóði í lungna-blöðrurnar – Einfalt flæði, þ. e úr meiri styrk í minni • Flutningur súrefnis og koltvíoxíðs í gagnstæðar áttir kallast loftskipti • Öndunaryfirborð er u. þ. b. 60 – 90 m 2. – Reykingar geta flatt út lungnablöðrunar og minkað þar með öndunaryfirborðið sem leiðir til minni loftskipta • Kallast lungnaþemba
Flutningur öndunarlofts • Súrefni leysist lítið í blóðvökva en binst járni í blóðrauðanum (hemóglóbín) ü Súrefni flyst því aðallega bundið blóðrauða (98%) • Ef súrefni tengist blóðrauða verður blóðið ljósara á litinn (sýrður blóðrauði) – Hb + O 2 Hb. O 2 • Koldíoxíð leysist mun betur upp í blöðvökva (7% flyst þannig), en mest af því er flyst sem bíkarbónat (70%) (HCO 3 - ) og afgangurinn (23%) binst blóðrauða • Bíkarbónat er mikilvægur buffer í blóðinu CO 2 + H 2 O H 2 CO 3 H+ + HCO 3– koldíoxíð + vatn Kolsýra vetnisjón + bíkarbónat
Flutningur öndunarlofts • • • Blóðrauði tekur upp súrefni greiðlega í súrefnisríku umhverfi (lungnablöðrum) en lætur það auðveldlega frá sér í súrefnissnauðari umhverfi (virkum vef) Nokkrir þættir auka losun á O 2 úr háræðablóði til vefja – Aukið CO 2 í vef – Aukinn hiti í vef – Lægra p. H gildi (súrnun vöðva) – Minna af O 2 í vef ü Þ. e. allt þættir sem fylgja aukinni virkni vefsins CO (kolmónoxíð) binst blóðrauða á sama hátt og O 2 en tengslin eru miklu sterkari => teppir flutning á súrefni
- Slides: 23