Ingvar Sigurgeirsson Hva einkennir gan sklabrag Spjall vi
Ingvar Sigurgeirsson Hvað einkennir góðan skólabrag? Spjall við skólafólk og foreldra í Mosfellsbæ 26. janúar 2011
Byggt er á rannsókn á hegðunarvanda í grunnskólum Reykjavíkur skólaárið 2005– 2006 Rannsóknarskýrsla: Ingvar Sigurgeirsson og Ingibjörg Kaldalóns: „Gullkista við enda regnbogans“ http: //starfsfolk. khi. is/ingvar/agi/Skyrsla_Hegdun_Lokagerd. pdf
Spurningar • Hvernig lýsið þið hegðun og framkomu nemenda? • Eru hegðunarvandkvæði í skólanum og hvernig lýsa þau sér? Hversu þungt brenna þau á ykkur? • Hversu margir nemendur koma við sögu? • Hverjar eru helstu orsakir og áhrifavaldar hegðunarvanda? • Hvernig er tekið á hegðunarvandkvæðum í skólanum? Hvaða aðferðum hefur helst verið beitt? Hvernig hafa þessar aðferðir gefist? • Hvernig gengur samstarf við foreldra? • Hvaðan fá starfsmenn ráðgjöf eða stuðning? • Hvað vantar helst til að starfsfólk skóla nái tökum á hegðunarmálum? Hugmyndir til úrbóta?
Rannsóknin í hnotskurn Aðferð: Hópviðtöl við starfsmenn í 35 skólum (alls 40 viðtöl, 233 viðmælendur; stjórnendur, kennarar, annað starfsfólk) – Spurningalisti (208 svör) Meginniðurstöður • Mikill meirihluti nemenda (89%) á yfirleitt góð samskipti við félaga og starfsfólk • Mikill munur á umfangi mála eftir skólum (einnig eftir kyni og aldri) • Erfiðustu máli sligandi
Mikill munur eftir skólum
Munur eftir aldursstigum? • Yngsta stigið: Erfiðari eða kotrosknari? – Sex ára stjórnunarreynsla! • Miðstigið: Oft erfiðustu málin – oftast drengir – Óþekkt, vesen og vandamál. Þar er fimmti til sjöundi bekkurinn algjörlega afgerandi. Það er þessi aldurshópur sem ekki er að höndla Ísland í dag … Þessi hópur er ekki að höndla tölvutæknina, msn-ið. sms-ið og … • Unglingastigið: Öðruvísi vandi
Skólunum mátti skipta gróflega í þrjá meginflokka (? ) • Lítil eða engin vandamál (sjö skólar) • Nokkur vandi, en starfsfólk telur sig almennt hafa tök á málum (21 skóli) • Mörg erfið mál sem hvíla þungt á starfsfólki (sjö skólar)
Mér finnst ekki nein sérstök hegðunarvandamál. Mér finnst þetta ganga mjög vel. Kannski hávaði í matsalnum – það eina sem er þreytandi. . . Samband kennara og nemenda er einstaklega gott. . . nemendur flykkjast að manni í frímínútum til að spjalla. . . Dæmi um ólíkt ástand Fara ekki að fyrirmælum … hleypa upp … taka alla einbeitingu kennarans … þessi áreiti jafnt og þétt… ógna öðrum nemendum … … leiðinlegar athugasemdir … hnoð og pot … svo er það líka skemmdarverk … reyna að eyðileggja … frammíköll ef kennarinn er að tala … almenn ókurteisi … dagleg vandamál … alla daga … í hverri kennslustund.
Þreyta og bið. . . vonleysi … allar greiningar og annað eða beiðnir um greiningar fara í gegnum nemendaverndarráðið. Og þar er mættur sálfræðingur skólans sem … tekur við greiningunum og svo fer ákveðinn tími í að fjalla um börnin … það pirraði mig svolítið í fyrra … að þetta bar engan árangur. Við vorum alltaf að tala um sömu börnin … og í einhverju ergelsi mínu því ég er fundaritari taldi ég hve oft ákveðin tvö börn hefðu verið nefnd þennan veturinn á nemendverndararáðsfundi. Þá var annað fimmtán sinnum og hitt sautján sinnum … þetta eru vikulegir fundir … og allir að tala um sömu hlutina vegna þess að það gerðist ekkert. Við erum að kalla á hjálp – við öskrum á hjálp. Og það eru einn og tveir og alveg upp í þrír aðilar frá … [þjónustumiðstöðinni] á fundi hjá okkur. Og það gerðist ekki neitt.
Lítill eða enginn vandi: Jákvæð viðhorf
Jákvæð viðhorf: Lítill eða enginn vandi: Þetta byggist á viðhorfum. . . Fyrir hvern er skólinn? Hann er fyrir nemendurna. . . Við eigum að sníða okkur að þeirra þörfum. Það er ekki þannig að ef þau passa ekki „boxin“ að þau eigi að vera annars staðar. Það er bara ekki þannig. . . Þeim er strokið réttsælis og sagt að þau séu frábær. Ekki endalaust verið að pikka í þau fyrir það sem þau geta ekki. . . Það geta allir blómstrað einhvers staðar. . . Hér er ríkjandi það viðhorf að velferð barnsins sé til grundvallar. Það er það viðhorf sem gerir þennan skóla að því sem hann er. Í þeim skólum þar sem agavandamál eru minnst eru viðhorf til foreldra mjög jákvæð og mikil áhersla lögð á öflugt foreldrasamstarf
Jákvæð viðhorf • Gagnkvæm virðing. Við virðum þau og þau okkur. [Jákvæður skólabragur] helgast af því að þau finna að okkur þykir vænt um þau. Viljum þeim vel, berum virðingu fyrir þeim. Þá verður líka auðveldara að stýra þeim fyrir vikið. • Við sendum skýr skilaboð og reynum að vera fyrirmyndir. Áhersla á samvinnu og traust. Að þau finni sig örugg í skólanum. Við erum vinir þeirra. Við erum hérna til að vinna með þeim.
Fleiri skýringar á góðum skólabrag • Nemendalýðræði, hlustað eftir röddum nemenda – Nemendasamtöl (sbr. starfsmannasamtöl), bekkjarfundir, matsfundir • Nemendum falin ábyrgð – Ábyrgðarstörf – Unglingar aðstoða við gæslu eða kenna leiki (frímínútnavinir) • Hlýlegt og fallegt umhverfi • Viðburðir í skólalífinu: Samverustundir, samkomur, uppákomur
Fleiri skýringar • Útikennsla, útivist, íþróttir, leikir, hreyfing • Söngur • Uppeldisstarf: Markviss lífsleiknikennsla – námsefni um samskipti • Vinaverkefni (vinabekkir, leynivinaverkefni, vinavikur. . . ) • Blöndun innan árgangs eða milli aldurshópa • Samstaða kennara
Að lokum: Viðhorf til ofvirkra barna! ADHD = GOSI = Geislandi ofvirkur einstaklingur Það er eins og það er með þessa ofvirku nemendur. Þeir skemma alltaf út frá sér. = Það er eins og það er með þessa krakka í hjólastólum. Maður kemst ekkert áfram með þá!!!
Lokaályktun Jákvæð viðhorf – trú á nemendum og virðing draga langt – svo langt að við hljótum að undrast það!
- Slides: 16