BSritgerir1 A byrja a skrifa 6162021 Ritun BSritgera
BS-ritgerðir-1 Að byrja að skrifa 6/16/2021 Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 1
Að byrja að skrifa n n n 6/16/2021 Að velja efni Að velja ráðgjafa Að fara ekki erindisleysu Að nýta sér aðstoð annarra Í upphafi skyldi endinn skoða Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 2
Ásgeir Jónsson Tölvupóstur ajonsson@hi. is Heimasíða http: //www. hi. is/~ajonsson Heimsíða námskeiðsins http: //www. hi. is/~ajonsson/lokaritgerd. htm 6/16/2021 Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 3
Af hverju lokaritgerð? n n 6/16/2021 Mikið af háskólanámi byggir á því að muna og endursegja. En lífið utan skólaveggja byggir á frumkvæði og eigin dómgreind. Lokaritgerð reynir á sjálfstæð vinnubrögð og býr ykkur undir starfsframa. Lokaritgerðin er mikilvægasti hluti námsins. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 4
Lokaritgerðin er tækifæri n n 6/16/2021 Gefur færi á því að kynna sér eitthvert efni til hlítar. Sérþekking á einhverju sviði eykur virði fólks á vinnumarkaði. Þið fáið tækifæri til þess að öðlast sérfræðikunnáttu í einhverri grein. Getur skipt miklu máli fyrir starfsumsókn. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 5
Lokaritgerðin er tækifæri n n 6/16/2021 Góð ritgerð getur strikað út einstakar slæmar einkunnir. Einnig tækifæri til þess að sýna að þið getið meira en tekið góð próf. Gefur færi á því að mynda dýrmæt tengsl við aðila innan háskólans og fyrirtæki eða atvinnugreinar. Lokaritgerð gefur tækifæri á því að sýna hvað í ykkur býr Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 6
Að velja n n 6/16/2021 Sumir velja efni, og síðan ráðgjafa með hliðsjón af því. Aðrir velja ráðgjafa, og síðan efni í samráði við hann Í flestum tilfellum er um milliveg að ræða. Ráðgjafinn á að afmarka efnið svo það verði viðráðanlegt, og síðan skjóta fræðilegum stoðum undir ritgerðarvinnuna. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 7
Fugl eða fiskur? n n 6/16/2021 Ritgerðarefnið verður að vera eitthvað sem þú hefur raunverulegan áhuga á. Þú átt að hafa gaman af því að vinna fyrir sjálfan þig. Ritgerðir sem unnar eru af tómri skyldurækni verða hvorki fugl né fiskur. Brennandi áhugi er besta vegnestið. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 8
Annað og meira n n n 6/16/2021 Gott að hafa strategíu. Velja sér efni sem tengist því sem þið ætlið að gera í framtíðinni. Lokaritgerðir eiga að vera stökkpallur fyrir eitthvað annað og meira. Velta fyrir sér þeim aðilum sem hefðu áhuga á rannsóknum þínum. Stundum vilja stofnanir og fyrirtæki styrkja ákveðnar rannsóknir. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 9
Að fá styrki n n n 6/16/2021 Styrkurinn getur falist í fjárframlagi eða ráðningu í vinnu. Sumir nemar geta nýtt fyrri reynslu og kunnugleika til þess að fá styrki. Annars skipta tengsl og áhugi ráðgjafa höfuðmáli í þessu í sambandi. Sjaldan um háar fjárhæðir að tefla Með því að selja ritgerðina á þann hátt, getur frelsi í efnistökum tapast á móti. Samt alltaf gott að fá vinnu sína launaða. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 10
Nokkrar leiðir til að velja n n n 6/16/2021 Velja eitthvað sem hefur vakið athygli ykkar í námi eða starfi. Athugið hvort einhverjar rannsóknir vanti, t. d. í ákv. atvinnugreinum. Haldið könnunarviðræður við kennara deildarinnar. Athugið hvort hægt sé að fiska efni út úr þeim. Rennið yfir eldri lokaverkefni, athugið hvort einhverjar hugmyndir komi upp í hugann. Þá sjáið þið einnig hvaða kröfur eru gerðar. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 11
Afmörkun ritgerða n 1. 2. 3. n n n 6/16/2021 Hægt er að greina lokaritgerðir niður í þrjá þætti: Empiricial, rannsókn byggð á reynslu og athugun (tölfræðileg greining eða “Case Study”) Theoretical, fræðileg umfjöllun. Survey, yfirlit eða úttekt á þekktu efni. Sumar ritgerðir falla algerlega inn í einn af þessum þremur flokkum. Flestar eru þó sambland. Bestu ritgerðirnar eru oft þær sem sameina flokk eitt og tvö. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 12
Að tengja. . . n n 6/16/2021 Margar góðar BS-ritgerðir hafa orðið til þegar aðgreindir hlutir eru tengdir saman. Þetta er gert með því að tengja. . . aðferðafræði og hugmyndir, s. s. prófa staðhæfingar með tölfræðilegum leiðum. . hugmyndir og aðstæður, s. s. hvort erlend reynsla eða hugmyndir eigi við um Ísland. . ólíkar fræðigreinar, s. s. félags- og viðskiptafræði, sögu og hagfræði. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 13
Frumleiki n n 6/16/2021 Verið óhrædd að fara inn á nýjar brautir. Reynið að finna eitthvað sem engin(n) hérlendis hefur gert áður. Það er áhætta að fara ótroðnar slóðir. Þið gætuð lent í ógöngum og orðið að snúa við. Frumleiki skilar yfirleitt mestum ávinningi ef vel tekst til. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 14
Að bjarga heiminum n n 6/16/2021 Munið að þetta er aðeins 6 eininga ritgerð. Enginn ætlast til þess að þið bjargið heiminum. Listin við að skrifa lokaritgerðir er að kunna að takmarka sig. Best er að fjalla um afmarkað málefni og sinna því vel. Hér er þörf á sterkum fókus. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 15
Ekki ætla sér of mikið Algengustu vandkvæðin við ritun lokaverkefna er þegar fólk færist of mikið í fang eða þeysist út um víðan völl. n Afleiðingarnar verða: A) of mikil vinna, B) of almennar niðurstöður C) of grunn umfjöllun. n 6/16/2021 Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 16
Ekki ætla sér of mikið n n 6/16/2021 BS-ritgerð er fyrst og fremst greining nokkurra spurninga á grunni annarra rannsókna. Á efri námsstigum (master eða doktor) vaxa kröfurnar um sjálfstætt framlag í lokaritgerð. BS-ritgerð er yfirleitt að stærstum hluta samantekt yfir þekkt efni. En frumleiki skiptir samt höfuðmáli! Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 17
Að velja ráðgjafa n n 6/16/2021 Einhver sem þið getið unnið með og treystið – og hefur tíma. Einhver sem vinnur á sama áhugasviði og þið teljið færan. Einhver sem vill láta ykkur í té fýsilegar rannsóknarhugmyndir Einhver sem mun verða bandamaður ykkar þegar þið sækið um aðra skóla eða starf. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 18
Að velja ráðgjafa n n n 6/16/2021 Það eru margir nemendur í deildinni og hver kennari getur aðeins sinnt takmörkuðum fjölda. Sá möguleiki er því til staðar að þið getið ekki fengið þann ráðgjafa sem þið viljið fá að fyrsta kosti. Það gæti einnig reynst heppilegt að velja ráðgjafa sem ekki hefur of marga nemendur fyrir. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 19
Hlutverk ráðgjafans n n 6/16/2021 Ráðgjafinn á ekki að vinna ritgerðina fyrir ykkur. Ráðgjafinn á aðeins að leiðbeina ykkur til þess að þið getið unnið ykkar eigið verk. Ráðgjafinn ber ekki ábyrgð á mistökum ykkar. Þið eruð skrifuð fyrir ritgerðinni sjálf. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 20
Hlutverk ráðgjafans n n 6/16/2021 Ráðgjafinn á hjálpa ykkur að afmarka efni sem er mögulegt að vinna. Ráðgjafinn þarf oft að ná fólki niður á jörðina og finna út hvað er raunverulega hægt að gera. Mikil fjöldi er til af áhugaverðum rannsóknarspurningum sem er þó ekki hægt að svara í BS ritgerð. Yfirleitt skortir gögn eða að spurningarnar þurfa miklu meiri vinnu en hægt er að inna af hendi á þessu stigi. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 21
Verið samstíga n n 6/16/2021 Þið verðið að bera undir ráðgjafann það sem þið ætlið að gera. Verið viss um að þú og ráðgjafinn séu samstíga, áður en lagt er af stað. Ráðgjafinn er sá sem gefur ykkur einkunn, og þess vegna verðið þið að taka mark á orðum hans. Mikilvægt að góð vinnutengsl myndist á milli ykkar og ráðgjafans. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 22
Mannlegi þátturinn n 6/16/2021 Heppilegast að ráðgjafinn hafi gott vald á vel skrifuðum og skilmerkilegum texta, jafnt sem fræðilega þekkingu. Ennfremur að hann hafi sjálfur sýnt rannsóknarhæfileika í verki. Sérhæfing er ekki svo mikil á þessu námsstigi, þannig að nokkrir kennarar geta komið til greina. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 23
Að velja n n 6/16/2021 Ef þið eruð óviss, veljið þá ráðgjafann fyrst og síðan efni í samráði við hann. Þá er einnig líklegra að ráðgjafinn hafi raunverulegan áhuga á efninu. Einnig gæti reynst góð hugmynd að ræða við nokkra kennara um möguleg efni og efnistök, áður en þið veljið ráðgjafa. Hlustið eftir því sem aðrir nemendur segja sem hafa notið leiðsagnar viðkomandi. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 24
Aðstoð annarra n n 6/16/2021 Það er ekkert að því að leita álits fleiri fagaðila en ráðgjafans. Stundum er mögulegt að hafa fleiri en einn ráðgjafa, s. s. úr öðrum deildum, eða einhverjir aðrir komi að vinnunni með formlegum hætti. Samvinna og samþykki ráðgjafans er hér lykilatriði. Það er metið ykkur til tekna ef þið sýnið frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 25
Forkönnun n n 6/16/2021 Í upphafi skyldi endinn skoða. Lokaritgerð er þó nokkur fjárfesting sem verður að leggja í að vel athuguðu máli. Reynið setja verkefnið upp með eins skipulegum hætti og hægt er, áður en hafist er handa. Setjist síðan niður með ráðgjafanum og þið ákveðið í sameiningu umfang verksins og hvernig það skuli unnið. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 26
Að skoða n n 6/16/2021 Verið viðbúin því að þurfa að skoða nokkrar hugmyndir, áður en þið finnið það eina og rétta. Það er betra heldur en að þurfa að eyða tíma í eitthvað sem gengur ekki upp. Best er að geta séð fram á einhverja sniðuga niðurstöðu eða “kick” áður en hafist er handa. En mestu máli skiptir að sameiginlegur skilningur ríki á milli þín og ráðgjafans um meginstefnu verksins. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 27
Kortlagning n n n 6/16/2021 Reynið að kortleggja það sem þið ætlið að gera, hvernig á að vinna það og hvaða ávinning þið æskið. Ræðið við aðra málmetandi aðila, nemendur, kennara eða aðra, berið hugmyndir ykkar undir þá. Ef til vill verður ykkur bent á veilur, ef til vill fáið þið annað sjónarhorn. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 28
Beinagrind n n n 6/16/2021 Í upphafi er heppilegt að gera beinagrind að ritgerðinni í formi efnisyfirlits. Þá eru helstu kaflar settir niður fyrirfram með fyrirsögnum og undirtitlum og jafnvel stuttri lýsingu á hverjum hluta. Þannig fæst góður leiðarvísir að rökrænni byggingu ritgerðarinnar og þið sjáið umfang hennar. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 29
Að leggja kapal n n 6/16/2021 Ef vel tekst til með beinagrind leggst ritgerðarvinnan upp eins og kapall. Þið getið þá rætt skipulega um hvern lið við ráðgjafann ykkar áður en þið leggið til atlögu við hvern þátt. Leiðbeinandinn getur sagt hvar sé best að afla fanga, hvort of mikið sé færst í fang eða hvort einhverja liði vanti. Verið samt óhrædd við að skipta um bein og áherslur þegar ritgerðinni vindur fram og þið öðlist dýpri skilning á efninu. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 30
Hugarflug (brainstorming) n n 6/16/2021 Ritgerðarsmíð er skapandi vinna. Gefið ykkur tíma til þess að velta málunum fyrir ykkur frjálst. Farið upp í sumarbústað, út að ganga, leikið ykkur í huganum, reynið að velta upp öllum þeim hugmyndum sem skipta máli. Reynið að öðlast heildaryfirsýn, áður en lagt er út í tæknileg atriði. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 31
Smáfuglar á öxl n n n 6/16/2021 Hagfræðingurinn Schumpeter lýsti hugmyndum sem litlum fuglum settust á öxlina á honum. Hann gekk alltaf með litla vasabók sem ritaði hugmyndir sínar niður áður en þær flögruðu frá honum. Verið viss um að rita hugmyndir ykkar niður ef þær setjast á öxl ykkar á meðan ritgerðarvinnu stendur. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 32
Nótt og dagur n n 6/16/2021 Vinna við lokaritgerð afmarkast ekki við þann tíma er þið sitjið og reynið að skrifa. Þið eruð að vinna fyrir ykkar sjálf, á ykkar ábyrgð, á ykkar forsendum, á ykkar tíma. Til þess að brjóta hlutina til mergjar verður oft að hafa hugann við efnið, nánast allan sólarhringinn, hvar sem þið eruð stödd. Ef vel tekst til, er það ekki kvöð heldur skemmtun sem gæti aukið færni ykkar og fært mikinn ávinning. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 33
Samandregið n n 6/16/2021 Lokaritgerðin er tækifæri. Kastið ekki til höndunum við undirbúning. Gefið ykkur tíma til þess að hugsa, spá og spekúlera. Veljið ráðgjafa sem þið kunnið vel við (ekki aðeins vegna þess að hann er skemmtilegur) og hefur tíma til þess að sinna ykkur. Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 34
Ásgeir Jónsson Tölvupóstur ajonsson@hi. is Heimasíða http: //www. hi. is/~ajonsson Heimsíða námskeiðsins http: //www. hi. is/~ajonsson/lokaritgerd. htm 6/16/2021 Ritun BS-ritgerða, Ásgeir Jónsson 35
- Slides: 35