Barnvn sveitarflg Akureyri Barnasttmlinn Barnasttmlinn var samykktur Allsherjaringi
Barnvæn sveitarfélög Akureyri
Barnasáttmálinn • Barnasáttmálinn var samþykktur á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 20. nóvember 1989. • Boðar byltingarkennda sýn á stöðu barna í samfélaginu. • Umönnun, vernd og þátttaka. • Fjórar grundvallarforsendur. – 2. grein: Jafnræði - bann við mismunun. – 3. grein: Það sem barninu er fyrir bestu. – 6. grein: Réttur barnsins til að lifa og þroskast. – 12. grein: Réttur barnsins til að tjá sig og hafa áhrif. • Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna
Barnasáttmálinn lög nr. 19/2013
Barnvæn sveitarfélög • Þróunarverkefni umboðsmanns barna og UNICEF á Íslandi. • Verkfærakista og líkan sem styður við innleiðingu Barnasáttmálans innan sveitarfélaga. • Byggir á alþjóðlegri fyrirmynd, Child Friendly Cities. • Tilraunaverkefni 2016 -2019 með Akureyri. • Akureyri getur öðlast viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi fyrir að vera barnvænt sveitarfélag, að uppfylltum vissum skilyrðum.
Barnvæn sveitarfélög www. barnvaensveitarfelog. is
Fimm grunnþættir 1. Þekking á réttindum barna 2. Jafn réttur allra barna 3. Þátttaka barna 4. Það sem barninu er fyrir bestu 5. Öruggt og heilbrigt umhverfi fyrir börn
Innleiðingarferlið
Kortlagning • Eitt mikilvægasta skrefið í innleiðingu Barnasáttmálans. • Gagnasöfnun - líðan, lífsskilyrði og réttindi barna. • Mælikvarði á velferð barna á Akureyri. • Grunnur aðgerðaáætlunar sveitarfélagsins og viðmið fyrir frekari stefnumótun. • Markmiðið að greina hvaða hópar eiga í hættu á að falla milli fjalanna.
Kortlagning • Ungmennaþing. • Samráðshópar með börnum og ungmennum. • Greining á tölfræðigögnum. • Spurningalistar. • Gátlistar.
Innleiðingarferlið
Barnvæn sveitarfélög…. . . gera Barnasáttmálann að rauðum þræði í allri starfsemi sinni. . viðurkenna að í röddum, viðhorfum og reynslu barna og ungmenna felast verðmæti. . eiga markvisst samráð við börn og ungmenni og nýta raddir þeirra til að bæta þjónustu sveitarfélagsins. . beita barnvænu sjónarmiði í öllum sínum störfum. . setja upp „barnaréttindagleraugu" og rýna og skoða verkog ákvarðanaferla með hliðsjón af Barnasáttmálanum. . nýta Barnasáttmálann sem gæðastjórnunarverkfæri.
Barnvæn sveitarfélög út um allan heim
- Slides: 12