A vanda til nmsmats Samra vi kennara Tknisklanum

  • Slides: 42
Download presentation
Að vanda til námsmats Samræða við kennara í Tækniskólanum 28. maí 2009

Að vanda til námsmats Samræða við kennara í Tækniskólanum 28. maí 2009

Að vanda til námsmats: Álitamál og leiðir 1. Að vekja til umhugsunar um ýmis

Að vanda til námsmats: Álitamál og leiðir 1. Að vekja til umhugsunar um ýmis álitamál sem tengjast námsmati 2. Að gefa yfirlit um þróun námsmats hér á landi um þessar mundir og dæmi um ólíkar leiðir sem kennarar eru að fara í viðleitni til að bæta það Áhugi – gróska – gerjun – þróun

Erum við sammála um hvað námsmat er? Námsmat er öll öflun upplýsinga um nám

Erum við sammála um hvað námsmat er? Námsmat er öll öflun upplýsinga um nám nemenda og miðlun þeirra til nemenda eða annarra Óformlegt námsmat Samofið allri kennslu. Kennari fylgist með nemanda í dagsins önn. Allt mat sem ekki er formgert með e-m hætti. – Formlegt námsmat Allt skipulegt, formlegt, opinbert námsmat, s. s. próf, kannanir, skipulegar athuganir, skráning á árangri, formlegur vitnisburður.

Mikilvægar spurningar? • Hvernig er námsmati yfirleitt háttað í framhaldsskólum? En í Tækniskólanum? •

Mikilvægar spurningar? • Hvernig er námsmati yfirleitt háttað í framhaldsskólum? En í Tækniskólanum? • Eru námsmatsaðferðirnar að skila góðum árangri? • Eru þetta bestu aðferðir sem völ er á? • Hvað þarf helst að bæta eða þróa í námsmati og hvaða leiðir koma helst til greina við að bæta námsmat? • Á hverju á að byggja þróun námsmats? Rannsóknir Reynsla Námskrá

Ákvæði Aðalnámskrár 2004 Tilgangur námsmats er að kanna að hve miklu leyti nemendur hafa

Ákvæði Aðalnámskrár 2004 Tilgangur námsmats er að kanna að hve miklu leyti nemendur hafa tileinkað sér markmið aðalnámskrár (skólanámskrár) í viðkomandi grein. Námsmat getur farið fram með mismunandi hætti eftir ákvörðun skóla [leturbr. IS]. Umfang þess skal þó að jafnaði vera í samræmi við umfang kennslu í viðkomandi grein. Kennarar bera ábyrgð á námsmati og þeir meta úrlausnir nemenda.

Vandi að ræða námsmat í framhaldsskólum: • Lítið sem ekkert er vitað (örugg vitneskja)

Vandi að ræða námsmat í framhaldsskólum: • Lítið sem ekkert er vitað (örugg vitneskja) um hvernig námsmati er háttað í framhaldsskólum hér á landi! • Raunar er sáralítið vitað um kennsluhætti í framhaldsskólanum yfirleitt!!! • Þó þetta: – Athugun Rósu M. Grétarsdóttur og Sigurbjargar Einarsdóttur á námsmati í þremur framhaldsskólum (MH, MA og FG) – Rannsókn Rósu á viðhorfum íslenskukennara til námsmats – Rannsókn Ragnheiðar Hermannsdóttur á viðhorfum nemenda til námsmats

Bakgrunnur: Gróska, gerjun, deilur Alþjóðleg umræða Bandaríkin: Stöðluð próf eða óhefðbundið námsmat (alternative assessment,

Bakgrunnur: Gróska, gerjun, deilur Alþjóðleg umræða Bandaríkin: Stöðluð próf eða óhefðbundið námsmat (alternative assessment, sjá grein IS) England: Stöðluð próf eða leiðsagnarmat, formative assessment, sjá grein Black og Wiliam, 1998) Hér á landi Námsmatsaðferðir sem eru að ryðja sér til rúms: einstaklingsmiðað námsmat, leiðsagnarmat, námsmöppur (ganga undir ýmsum nöfnum).

Í brennidepli nú: Leiðsagnarmat • Kjarninn í leiðsagnarmati er að nemandinn fái (stöðuga) endurgjöf

Í brennidepli nú: Leiðsagnarmat • Kjarninn í leiðsagnarmati er að nemandinn fái (stöðuga) endurgjöf um nám sitt ásamt ábendingum um það hvernig hann geti bætt sig (ráðgjöf, leiðsögn) • Haft er fyrir satt að fjöldi rannsókna sýni þýðingu vandaðs leiðsagnarmats til að bæta námsárangur • Nemendur sem standa höllum fæti virðast njóta sérstaklega góðs af leiðsagnarmati • Sjálfsmat og jafningjamat eru mikilvægir þættir í leiðsagnarmati en meginatriði er að nemendur skilji til hvers er af þeim ætlast (skilji markmiðin) (Black og Wiliam 1998: Inside the Black Box)

Kennslufræði leiðsagnarmats • Útskýra markmið fyrir nemendum • Beita markvissum spurningum • Leiðbeinandi endurgjöf

Kennslufræði leiðsagnarmats • Útskýra markmið fyrir nemendum • Beita markvissum spurningum • Leiðbeinandi endurgjöf (umsagnir) • Virkja nemendur (sjálfsmat, jafningjamat) • Jafningjakennsla (Wiliam 2007: Changing Classroom Practice )

Álitamál álitamálanna: - Hvaða hlutverki gegna einkunnir? - Er hugsanlegt að einkunnir hafi neikvæð

Álitamál álitamálanna: - Hvaða hlutverki gegna einkunnir? - Er hugsanlegt að einkunnir hafi neikvæð áhrif á nám? • Rannsóknir Ruth Butler o. fl. frá 1986 og 1988 – Endurgjöf í formi einkunna – Endurgjöf í formi umsagna – Endurgjöf í formi einkunna og umsagna – Engin endurgjöf

Hlutverk einkunna • • • Endurgjöf Upplýsing Hvatning Niðurstaða Dómur Grundvöllur fyrir flokkun nemenda

Hlutverk einkunna • • • Endurgjöf Upplýsing Hvatning Niðurstaða Dómur Grundvöllur fyrir flokkun nemenda (náms- og starfsval) • Vottun

Hvers vegna vefst einkunnagjöf svona fyrir okkur mörgum? • • Knappt form – samantekt!

Hvers vegna vefst einkunnagjöf svona fyrir okkur mörgum? • • Knappt form – samantekt! Álitamál? Óljósir mælikvarðar? Við hvað á að miða? Einkunnir geta verið afar afdrifaríkar!

Ólíkir skalar • • 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10

Ólíkir skalar • • 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10 1 -6, 1– 8 A, B, C, D, F (hvar er E-ið? ) Dönsku kerfin, sjá hér Ágætt, gott, sæmilegt, ábótavant, ófullnægjandi Snjallt, gott, hæft, naumt, bágt (Helgi Hálfdanarson) Lokið – ólokið • Hvaða aðferð er heppilegust?

Ég fékk C fyrir víravirkið mitt !? ? Hvernig getur maður fengið C fyrir

Ég fékk C fyrir víravirkið mitt !? ? Hvernig getur maður fengið C fyrir víravirki? Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir Má ég koma með spurningu? Er víravirkið mitt dæmt sem víravirki? Eða var ég metin eftir hæfileikum mínum? Er það ekki bara tíminn einn sem getur skorið úr um gildi listaverks? Þá er ég dæmd á grundvelli þess sem ég ræð engu um! Ef ég var dæmd fyrir hversu vel ég lagði mig fram. Þá er matið ósanngjarnt því að ég reyndi mitt besta! 15

Var ég metin eftir því hvað ég hafði lært um viðfangsefnið? Ættir þú kennari

Var ég metin eftir því hvað ég hafði lært um viðfangsefnið? Ættir þú kennari þá ekki að fá C eins og ég. . . Eða var ég kannski metin samkvæmt gæðum efnisins sem ég bjó verkið úr? Á að dæma mig eftir gæðum járnherðatrésins sem hreinsunin notar fyrir fötin okkar? fyrir frammistöðu þína við að miðla þekkingu til mín? Er það ekki einnig óréttlátt? Er það ekki á ábyrgð foreldra minna? Láti maður í sér heyra er meira tillit tekið til manns. Hjólið sem ískrar fær alla smurninguna! Ættu þeir ekki að fá sinn skerf af C-inu mínu? Ágúst 2006 ©Þóra Björk Jónsdóttir 16

Þegar einkunn er notuð skal. . . Varast að láta hana ná til óskyldra

Þegar einkunn er notuð skal. . . Varast að láta hana ná til óskyldra þátta (námsárangurs, vinnubragða, hegðunar) Einkunn á að mæla námsárangur – lýsa því að hvaða marki nemandinn hefur náð námsmarkmiðum Útskýra fyrir nemendum hvað einkunnirnar merkja Miller, Linn og Gronlund 2009: 378 -379

Einkunnakvarði Sjá • http: //starfsfolk. khi. is/ingvar/namsmat/matsban ki/matskvardi. htm

Einkunnakvarði Sjá • http: //starfsfolk. khi. is/ingvar/namsmat/matsban ki/matskvardi. htm

Endurgjöf „Endurgjöf að loknu námsmati stendur fyrst undir nafni þegar kennari ræðir eða ritar

Endurgjöf „Endurgjöf að loknu námsmati stendur fyrst undir nafni þegar kennari ræðir eða ritar um frammistöðu nemanda; hrósar því sem vel er gert eða athyglisvert, bendir á bresti og sem flestar færar leiðir til úrbóta. “ (Rowntree, 1983, 29).

Góð regla um ritun umsagna: Gott. . . Gæti verið betra. . . Af

Góð regla um ritun umsagna: Gott. . . Gæti verið betra. . . Af þessu leiðir. . .

Meginvandi við skriflegar umsagnir * Tímafrekar * Vandasamar í framsetningu * Auðvelt að mistúlka

Meginvandi við skriflegar umsagnir * Tímafrekar * Vandasamar í framsetningu * Auðvelt að mistúlka þær * Erfitt að gæta samkvæmni og samræmis * Erfitt að henda reiðu á einstökum atriðum * Kerfisbundin skráning erfið

Eru þetta vitnisburðarform framtíðarinnar? • Gátlistar (e. checklists) • Matskvarðar (e. rating scales) •

Eru þetta vitnisburðarform framtíðarinnar? • Gátlistar (e. checklists) • Matskvarðar (e. rating scales) • Marklistar (viðmiðunartöflur, sóknarkvarðar, e. scoring rubric) • Dæmi (frá Súsönnu Margréti Gestsdóttur, FÁ og HÍ)

Annað álitamál: Staða skriflegra lokaprófa Vaxandi efasemdir um stöðu og vægi skriflegra lokaprófa: –

Annað álitamál: Staða skriflegra lokaprófa Vaxandi efasemdir um stöðu og vægi skriflegra lokaprófa: – Prófa aðeins hluta markmiða – Margir nemendur læra fyrst og fremst fyrir prófin – Neikvæð afturvirkni prófa – Próf eru skólaverkefni sem eiga sér fáar hliðstæður í lífinu sjálfu (námsmat ætti að endurspegla mat í lífinu sjálfu)

Óhefðbundin próf • Próf þar sem nemendur mega nota hjálpargögn • „Svindlpróf“, glósupróf, önnur

Óhefðbundin próf • Próf þar sem nemendur mega nota hjálpargögn • „Svindlpróf“, glósupróf, önnur hjálpargögn. . . öll gögn • • Heimapróf Prófverkefni gefin upp með fyrirvara Munnleg smápróf, dæmi Nemendur fá að gera endurteknar tilraunir við sama próf / sömu próf: Prófavikur (Salaskóli) • Einstaklingsmiðuð próf (Salaskóli, Norðlingaskóli) • Samvinnupróf (Salaskóli)

… ákvað að prófa í fyrsta sinn samvinnupróf/könnun … Prófað var úr tveimur málfræðiatriðum

… ákvað að prófa í fyrsta sinn samvinnupróf/könnun … Prófað var úr tveimur málfræðiatriðum sem þau voru að læra í þýsku og ég lét þau draga miða með hverjum þau lentu (tveir saman). Þau undirbjuggu sig svo heima. Í prófinu hvísluðust þau á og komu sér saman um svar og hvert par skilaði einu blaði (hinn aðilinn fékk svo ljósrit af útlausninni seinna). Efnið sem verið var að prófa hentaði sérlega vel til þessa verkefnis - einkum beyging lýsingarorða þar sem velta þarf fyrir sér kyni orða, falli og endingum veikrar og sterkrar beygingar. Útkoman var mjög góð og nemendur ánægðir. Þeir hafa spurt hvort þeir megi ekki gera svona aftur. Einn nemandi sagði við samstarfskonu mína að maður lærði svo vel fyrir þessa könnun því maður vildi ekki valda samstarfsaðila sínum vonbrigðum! Kv. Ásta Emilsdóttir, Kvennaskólanum

Ég prófaði svindlpróf fyrir stuttu. Það gekk mjög vel og voru stór hópur nemenda

Ég prófaði svindlpróf fyrir stuttu. Það gekk mjög vel og voru stór hópur nemenda sem undirbjó sig samviskusamlega fyrir prófið. Þeir sem ekki undirbjuggu sig fyrir prófið gekk yfirleitt illa. Þeir nemendur sem stóðu sig vel töluðu um að ég hefði platað þau. Þau sögðu að þau hefðu þurft að lesa heilmikið þegar þau voru að búa til svindlmiðann. Skemmtilegt að prófa eitthvað nýtt í skyndiprófum kv. þsig Þórður Sigurðsson, FÁ

Fjölbreytt námsmat ü Mat á frammistöðu ü Námsmöppur / sýnismöppur („Portfolio“) ü Greining og

Fjölbreytt námsmat ü Mat á frammistöðu ü Námsmöppur / sýnismöppur („Portfolio“) ü Greining og mat á verkefnum / úrlausnum ü Dagbækur, leiðarbækur ü Sjálfstæð verkefni ü Sjálfsmat nemenda ü ü ü Jafningjamat Umræður – viðtöl Viðhorfakannanir Próf og kannanir Óhefðbundin próf Sýningar, námshátíðir, uppskeruhátíðir,

Námsmöppur • Ekki ein aðferð heldur margar! • Gömul aðferð – í nýjum búningi

Námsmöppur • Ekki ein aðferð heldur margar! • Gömul aðferð – í nýjum búningi – nýju samhengi!

Portfolio - Processfolio Gengur undir ýmsum heitum: • Námsmappa • Sýnishornamappa • Verkefnamappa •

Portfolio - Processfolio Gengur undir ýmsum heitum: • Námsmappa • Sýnishornamappa • Verkefnamappa • Verkmappa • Ferilmappa • Nemendamappa Heimildasafn um nám – feril – eða afrakstur

Megingerðir • • Safnmappa (documentation) Ferilmappa Sýnismappa (showcase) Rafræn mappa (electronic portfolio, webfolio) –

Megingerðir • • Safnmappa (documentation) Ferilmappa Sýnismappa (showcase) Rafræn mappa (electronic portfolio, webfolio) – Vefsíður – Bloggsíður – Geisladiskar

Sýnismappa (Portfolio / Processfolio) Sýnishorn Minnispunktar kennarans Ritgerðir Markvisst val Minningar Sýnir þróun í

Sýnismappa (Portfolio / Processfolio) Sýnishorn Minnispunktar kennarans Ritgerðir Markvisst val Minningar Sýnir þróun í tíma framfarir Uppköst Glósur Dagbækur Skýrslur Myndir Þátttaka nemenda (Sjálfsmat) Safnið á að vera skapandi viðfangsefni Riss Úrlausnir Ljósmyndir Ljóð Umsagnir félaga Tölvuútprentanir Ljósrit Hugleiðingar

Sjálfsmat nemenda Þýðing – Virkja nemendur til ábyrgðar á námi sínu – Mikilvæg þjálfun

Sjálfsmat nemenda Þýðing – Virkja nemendur til ábyrgðar á námi sínu – Mikilvæg þjálfun – Nemendur skilja betur tilgang námsins – Kennarar fá mikilvægar upplýsingar um nám og kennslu (þeir heyra raddir nemenda) – Rannsóknir sýna að sjálfsmat getur bætt námsárangur

Sjálfsmat – þátttaka nemenda; aðferðir • • Nemendasamtöl Umræðufundir, sbr. matsfundir Leiðarbækur, lestrardagbækur Gátlistar,

Sjálfsmat – þátttaka nemenda; aðferðir • • Nemendasamtöl Umræðufundir, sbr. matsfundir Leiðarbækur, lestrardagbækur Gátlistar, matsblöð, kannanir, dæmi …

Kannanir • Heildstæðar kannanir • Einstök námskeið eða áfangar, dæmi • Lotur, kennslustundir, –

Kannanir • Heildstæðar kannanir • Einstök námskeið eða áfangar, dæmi • Lotur, kennslustundir, – Dæmi – mat á einni kennslustund – Dæmi – ígrundun í lok dags (Lundarskóli) – Dæmi – mat í vikulok • Leiðsagnarkannanir, dæmi (lífsleikni, MS) • Áhugasviðskannanir, dæmi

Matsfundir • 10– 20 þátttakendur • Orðið gengur tvo til þrjá hringi: – Jákvæð

Matsfundir • 10– 20 þátttakendur • Orðið gengur tvo til þrjá hringi: – Jákvæð atriði: Hvað eruð þið ánægð með? – Kvörtunarhringur: Hvað má betur fara? • Nemendur nefna eitt / tvö / þrjú atriði eftir því hvað ákveðið hefur verið • Öll atriði eru skráð • Engar umræður

Jafningjamat • Virkjar nemendur til þátttöku og ábyrgðar • Eflir skilning nemenda á markmiðum

Jafningjamat • Virkjar nemendur til þátttöku og ábyrgðar • Eflir skilning nemenda á markmiðum námsins • Bætir endurgjöfina (hún verður fyllri – fleiri sjónarhorn) • Nemendur taka ábendingum nemenda oft betur en ábendingum kennara • Nemendur leggja sig oft meira fram ef þeir vita að félagar þeirra taka þátt í mati • Veitir mikilvæga þjálfun (tjáning, samstarf, jafningjastuðningur) – nemendur læra að gagnrýna uppbyggilega

Dæmi um jafningjamat (IS) Við jafningjamatið styðjist þið við eftifarandi spurningar: • • •

Dæmi um jafningjamat (IS) Við jafningjamatið styðjist þið við eftifarandi spurningar: • • • Er efnið í möppunni fjölbreytt? Er efnið áhugavekjandi? Leggur höfundur mikið af mörkum sjálfur? Gætir hugmyndaflugs? Virðist höfundur hafa lært mikið á námskeiðinu? Gæti annar aðili nýtt sér efnið með auðveldum hætti? Hversu góður er frágangur (málfar)? Er heimilda getið? Skrifið stutta umsögn og gefið einkunn. Notið einkunnaviðmiðanir Kennaraháskólans við einkunnagjöfina, sjá á þessari slóð: • http: //starfsfolk. khi. is/ingvar/namsmat/matsbanki/matskvardi. htm Jafningjamatið sendið þið umsjónarmanni námskeiðsins (ingvar@khi. is).

Meira um marklista (sóknarkvarða) matskvarða, gátlista Á ensku: Scoring Rubrics, Rating Scales, Checklists: –

Meira um marklista (sóknarkvarða) matskvarða, gátlista Á ensku: Scoring Rubrics, Rating Scales, Checklists: – Tæki sem nota má bæði við mat á frammistöðu (flutning, verkefnaskil) og afrakstri (skýrslum, ritgerðum, myndverkum, úrlausnum) – Henta í öllum námsgreinum, á öllum skólastigum – Auka líkur á nákvæmni, óhlutdrægni – Nemendur fá glöggar upplýsingar um til hvers er ætlast

Hverjir nota marklista, matskvarða og gátlista? ü Kennarar ü Nemendur ü Sjálfsmat ü Jafningjamat

Hverjir nota marklista, matskvarða og gátlista? ü Kennarar ü Nemendur ü Sjálfsmat ü Jafningjamat ü Aðrir (foreldrar, samkennarar, gestir, stjórnendur) Sjá sýnishorn á þessari slóð: http: //starfsfolk. khi. is/ingvar/namsmat/matsbanki/Welcome. htm

Dæmi um gátlista og matskvarða – Hrafnagilskóli (virkni) – Ingunnarskóli (list- og verkgreinar) –

Dæmi um gátlista og matskvarða – Hrafnagilskóli (virkni) – Ingunnarskóli (list- og verkgreinar) – Norðlingaskóli, mat á námi í smiðjum Matsatriðabanki Baldurs Sigurðssonar http: //starfsfolk. khi. is/balsi/leidbeiningar. htm

Gagnlegir tenglar • • Kennsluaðferðavefurinn Að vanda til námsmats – Heimasíða námskeiðs Peel –

Gagnlegir tenglar • • Kennsluaðferðavefurinn Að vanda til námsmats – Heimasíða námskeiðs Peel – námsmat Best Practices • http: //www. teachers. tv/ - (Assessment)