6 kafli Melting Melting Fan verur a vera

  • Slides: 35
Download presentation
6. kafli – Melting

6. kafli – Melting

Melting • Fæðan verður að vera brotin niður í einliður sínar svo hægt sé

Melting • Fæðan verður að vera brotin niður í einliður sínar svo hægt sé að frásoga og nýta hana – Sykrur eru brotnar niður í einsykrur – Prótein eru brotin niður í ammínósýrur – Fita er brotin niður í þríglýseríð, glýseról og frjálsar fitusýrur

Meltingarkerfið • Meltingarstarfsemi: – Á sér stað í meltingarvegi sem hefst í munni og

Meltingarkerfið • Meltingarstarfsemi: – Á sér stað í meltingarvegi sem hefst í munni og endar í endaþarmi. • Hlutverk meltingarkerfis: – Innbyrða fæðu. – Brjóta niður fæðu í næringarefni = melting. – Upptaka næringarefna. – Fjarlægja ómelt efni.

Meltingarvegurinn • Meltingarvegurinn er í stöðugu sambandi við ytra umhverfi, og því þarf hann

Meltingarvegurinn • Meltingarvegurinn er í stöðugu sambandi við ytra umhverfi, og því þarf hann að búa yfir sterku kerfi til að drepa bakteríur – Slím – Magasýra – Meltingarensím – Átfrumur (um 80% allra átfrumna líkamans er að finna í meltingarveginum)

 • Helstu hlutar meltingarvegarins og líffæri sem tengjast meltingu eru – – –

• Helstu hlutar meltingarvegarins og líffæri sem tengjast meltingu eru – – – – – Kok Vélinda Magi Lifur Gallblaðra Bris Smáþarmar Ristill Endaþarmur

Melting Tvennskonar melting fer fram í líkamanum: 1. Mölun: – Fæðan er brotin niður,

Melting Tvennskonar melting fer fram í líkamanum: 1. Mölun: – Fæðan er brotin niður, sundrað, án þess að efnasamsetning hennar breytist. 2. Efnamelting: – Meltingarensím sjá um að brjóta niður fæðuna í einfaldari efnasambönd (vatnsrof). – Föst fæða breytist í fljótandi lausn. – Efnameltingin þarf að vera nægilega sterk til að melta fæðuna, en má ekki melta meltingarvegin sjálfan!

Melting • Tennur – Bíta og mala fæðuna. • Munnvatnskirtlar – Þrjú pör (við

Melting • Tennur – Bíta og mala fæðuna. • Munnvatnskirtlar – Þrjú pör (við eyrað, undir tungunni, við kjálkana). • Munnvatn. – Slím, gerir fæðuna hála þannig að hún renni betur. – Amílasi, sundrar mjölva í tvísykruna maltósa. – Tunga. Blandar fæðunni við munnvatn. Myndar fæðutuggu sem er tilbúin til kyngingar. Á tungunni eru bragðlaukar (sætt, salt, súrt og beiskt). • Tungulípasi, berst niður í maga og vinnur á litlum hluta fitunnar ( minna en 10%)

Kok • Kok: • Kokið er svæðið sem tekur við fæðunni frá munninum (og

Kok • Kok: • Kokið er svæðið sem tekur við fæðunni frá munninum (og loftinu frá nefholinu). • Kynging á sér stað í kokinu – Er röð taugaviðbragða – Ósjálfráðar bylgju-hreyfingar sem flytur fæðuna niður í vélinda – Speldi lokar barkanum.

Vélinda • Vélinda – Liggur frá koki niður í maga – Hringvöðvar loka vélindanu

Vélinda • Vélinda – Liggur frá koki niður í maga – Hringvöðvar loka vélindanu bæði að ofan og neðan – Fæða flyst niður vélinda með samdráttarbylgjum (langvöðvar og hringvöðvar) – Í neðri enda vélindans er hringvöðvi sem heldur magaopinu lokuðu • Þegar hringvöðvinn sem lokar magaopinu lokar því ekki nógu vel getur smá magasýra sullast upp og skemmt slímhúð vélindans. Þetta kallast brjóstsviði/bakflæði

Magi • • Þykkur og vöðvaríkur. Magakirtlar mynda magasafa sem inniheldur: – Slím -

Magi • • Þykkur og vöðvaríkur. Magakirtlar mynda magasafa sem inniheldur: – Slím - Verndar innra borð magans – Saltsýru (HCl) - Drepur flesta gerla og virkjar pepsín – Pepsín - Brýtur niður prótein í fjölpeptíð. • • • Hnoðar og blandar fæðuna með öflugum bylgjuhreyfingum. Hefur þrjú lög af sléttum vöðvum Fæðan er 3 -4 klst í maganum. Magaportvöðvinn, sem er annar hringvöðvi, hleypir ákveðnum skammti af fæðumauki niður í skeifugörnina. Frásog er tiltölulega lítið – Smávegis af vatni, söltum og vínanda. • Magi stjórnast af dultaugakerfinu og hormónum (gasatrín, G-frumur magans)

Hlutverk maga • Maginn hnoðar fæðuna og blandar magasafa þar til fæðan er orðin

Hlutverk maga • Maginn hnoðar fæðuna og blandar magasafa þar til fæðan er orðin að þunnum vellingi • Magaportvöðvi sleppir hæfilegu magni af vellingi niður í skeifugörnina – þ. e. a. s. maginn geymir fæðu og skammtar fæðumauki til skeifugarnar • Magasýran (saltsýra (HCl)) drepur bakteríur og afmyndar prótein að nokkrum hluta – Magasár er þegar magasýran kemst í beina snertingu við magann eða skeifugörn, og fer að melta líkamann. Er í 80 -90% tilfella af völdum bakteríu.

Hlutverk maga • Melting prótína hefst í maga með ensíminu pepsín. Pepsín er endópeptíðasi

Hlutverk maga • Melting prótína hefst í maga með ensíminu pepsín. Pepsín er endópeptíðasi sem ræðst inn í próteinið við ákveðnar amínósýrur og klippir það í styttri búta. Magasýran virkjar pepsínið úr óvirka forminu pepsogen • Í maganum binst efni B 12 vítamíninu og gerir meltingarfærunum kleift að taka það upp – Er mikilvægt vítamín fyrir líkamsvöxt, þroskun rauðra blóðfrumna og myndun DNA

Smáþarmar • Smáþarmarnir eru: – Skeifugörn, ásgörn, dausgörn. • Hér fer efnamelting og frásog

Smáþarmar • Smáþarmarnir eru: – Skeifugörn, ásgörn, dausgörn. • Hér fer efnamelting og frásog (uppsog) fæðunnar aðallega fram • Meltingarvökvar frá lifur, brisi og þarmakirtlum berast í smáþarma. • Skeifugörn er C-laga túba sem er í beinu framhaldi af maganum, þar sem lifur og bris losa meltingarensím sín

Lifur • Framleiðir vökva er kallast gall. • Gallið er geymt í gallblöðru, sem

Lifur • Framleiðir vökva er kallast gall. • Gallið er geymt í gallblöðru, sem losar það eftir þörfum út í skeifugörnina. • Gall inniheldur gallsölt (úr kólesteróli) en þau leysa fitu upp í litla dropa sem blandast vatni • Þetta er forsenda fyrir efnameltingu á fitu þar sem lípasar vinna einungis á yfirborði fitudropa

Bris • Framleiðir brissafa sem losnar er út í skeifugörn. • Brissafi inniheldur: –

Bris • Framleiðir brissafa sem losnar er út í skeifugörn. • Brissafi inniheldur: – Amílasa: klýfur mjölva í maltósa • Sami amýlasinn og er að fynna í munnvatni – Trypsín og kemotrýpsín: eru próteasar sem kljúfa fjölpeptíð í tví- og þrípeptíð • Þessi ensím gera í raun það sama en ráðast bara á mismunandi amminósýrur • Bæði trypsín og kemotrýpsín eru líkt of pepsín endópeptíðasar • Óvirk forstig – Lípasa, klýfur fitu í fitusýrur og glýseról (oftast í einglýseríð og fitusýrur) – Fosfólípasa, vinnur á lípíðum í frymishimnum – Basískt sölt (bíkarbonat HCO 3 -), hlutleysir magasýruna og er mikilvæg fyrir virkni meltingarensíma í smágörnum, því þau virka ekki í súru umhverfi!

Bris

Bris

Smáþarmar • • • Smáþarmarnir eru í raun mun lengri en ristillinn en hafa

Smáþarmar • • • Smáþarmarnir eru í raun mun lengri en ristillinn en hafa mun minna þvermál – Smáþarmarnir eru um 3 m í lengd á meðan ristillinn er um 1. 5 m – Hinvegar er þvermál smáþarma um 2. 5 cm en 6. 5 cm hjá ristli Eftir smáþörmunum þverum eru fellingar Innan á þörmunum er slímhúðin felld í ótal totur, þarmatotur (um 1, 5 mm á lengd). Á milli þeirra eru þarmakirtlarnir Auk þess eru frumurnar alsettar örtotum. Allt þetta eykur yfirborð smáþarmanna (um 250 -300 fm 2) og þar með frásog.

Þarmatotur • Innan í hverri þarmatotu eru æðar sem taka við meltri fæðu. –

Þarmatotur • Innan í hverri þarmatotu eru æðar sem taka við meltri fæðu. – Háræðar frásoga einsykrur, amínósýrur og vatnsleysanleg vítamín. – Vessaæð sjá um frásog fituleysanlegra vítamína

Þarmakirtlar • Framleiða þarmasafa sem inniheldur: – Slím: auðveldar færslu í gegnum þarmana. –

Þarmakirtlar • Framleiða þarmasafa sem inniheldur: – Slím: auðveldar færslu í gegnum þarmana. – Maltasa: klýfur maltósa í glúkósa. – Sakkarasa: sundrar sakkarósa í einsykrur (glúkósi + frúktósi). – Laktasa: sundrar laktósa í einsykrur (glúkósi + galaktósi) • Laktasi vantar hjá fólki með mjólkuróþol sem getur leitt til niðurgangs, vindverkja og magaverkja – Peptíðasa: klýfur fjölpeptíð, og tví- og þrípeptíð í stakar amínósýrur. Þetta eru exópeptíðasar, þ. e. a. s. ráðast á enda próteinsins (peptíðsins) og klippa eina a. s. af í einu.

Stórþarmar / ristill • Samanstanda af: – Ristli • Risistill, þverristill, fallristill og botnristill

Stórþarmar / ristill • Samanstanda af: – Ristli • Risistill, þverristill, fallristill og botnristill • • • – Botnlanga – endaþarmi Frásogar vatn og sölt. Samþjappaður afgangur (saur) flyst að endaþarmi og er losaður út. Þar eru líka bakteríur sem hjálpa til við meltingu og gefa líkamanum vítamín (K-vítamín) – K-vítamín er nauðsynlegt fyrir blóðstorknun

Hreyfing meltingarfæra a) b) Er tvennskonar Bylgjuhreyfing: samdráttur fyrir aftan fæðuna og slökun fyrir

Hreyfing meltingarfæra a) b) Er tvennskonar Bylgjuhreyfing: samdráttur fyrir aftan fæðuna og slökun fyrir framan. Þetta þokar innihaldinu frá munni til endaþarms Mölunarhreyfing: er staðbundin herping og slökun hringvöðva á víxl. Þetta hrærir innihaldi magans og garna og blanda fæðunni saman við meltingarensím.

Temprun á meltingu • Meltingu er bæði stjórnað af dultaugakerfinu og hormónum – Seftaugakerfið

Temprun á meltingu • Meltingu er bæði stjórnað af dultaugakerfinu og hormónum – Seftaugakerfið auka virkni meltingarfæranna meðan driftaugakerfið dregur úr virkni þeirra – Adrenalín dregur einnig úr virkni meltingarfærranna • Mænukylfa stjórnar t. d. : – Rennsli munnvatns og magasafa – Kyngingu – Uppköstum

Temprun á meltingu, frh • Gastrín, hormón sem er framleitt í maga, stjórnar seytingu

Temprun á meltingu, frh • Gastrín, hormón sem er framleitt í maga, stjórnar seytingu magasýru – Er því losað þegar auka þarf magasýruna t. d. þegar við erum að borða • Sekratín sem er framleitt í skeifugörn hvetur seytingu basískra salta, til að vinna á magasýrunni – Er því losað þegar fæðumaukið kemur úr maga í skeifugörn • Seytingu gallblöðruhormóns er hvött af fitu í skeifugörn sem fær gallblöðruna til að herpast og seyta galli. – Auk þess örvar þetta hormón seytingu brissafa, en hann hefur lípasa.

Himnur meltingarfæranna • Lífhimna klæðir meltingarfæri að utan og afturhluta kviðarvegg að innan •

Himnur meltingarfæranna • Lífhimna klæðir meltingarfæri að utan og afturhluta kviðarvegg að innan • Garnirnar eru tengdar afturvegg kviðarhols með garnahengju – Því hanga garnirnar eiginlega í lausu lofti í kviðarholinu • Að auki þá liggur nitja (sem er n. k. fitusvunta) frá maganum og yfir garnirnar • Bæði garnarhengjan og nitjan eru mjög fiturík • Ýstra (bjórvömb) er aðallega úr mikilli fitu í garnarhengji og nitju

Melting kolvetna • Melting kolvetna byrjar í munninum, þar sem amýlasi í munnvatninu fer

Melting kolvetna • Melting kolvetna byrjar í munninum, þar sem amýlasi í munnvatninu fer að brjóta mjölva niður í maltósa • Engin melting kolvetna fer fram í maga • Í brissafanum er einnig amýlasi, en hann er mun virkari en sá í munnvatninu • Kirtlarnir í smáþörmunum losa svo laktasa (sem brýtur laktósa niður í glúkósa og galaktósa), maltasa (maltósi => glúkósi + glúkósi) og svo súkrasi (súkrósi => glúkósi + frúktósi) – Flókin kolvetni frásogast hægar en einföld kolvetni og því verður ekki jafn mikil skyndileg hækkun á blóðsykri við neyslu þeirra • Háræðar í garnatotum frásoga svo einsykrurnar og koma þeim strax til lifrar með lifrarportæðinni

Hvað verður um kolvetni eftir frásog? • Strax eftir máltíð eru einsykrurnar brenndar í

Hvað verður um kolvetni eftir frásog? • Strax eftir máltíð eru einsykrurnar brenndar í frumunum • Ef það er afgangur þá er blóðsykrinum breytt í glýkógen í lifur og vöðvum • Ef glýkógenbyrgðirnar eru fullar, þá er afgangnum breytt í fitu

Melting próteina • Engin melting próteina fer fram í munni • Maginn losar pepsín

Melting próteina • Engin melting próteina fer fram í munni • Maginn losar pepsín sem er endópeptíðasi, og fer hann að klippa próteinið niður í smærri peptíð – Magasýran afmyndar líka próteinin aðeins í maganum • Í brissafanum er trypsín og kemótrypsín, en bæði þessi ensím eru endópeptíðasar • Smáþarmarnir seyta svo loks exópeptíðasa, sem klippir amínósýrur af endum próteinana • Amínósýrurnar eru svo frásogaðar af háræðum garnatotna og fluttar beint til lifrar með lifrarportæð

Hvað verður um prótein eftir frásog? • Prótein (þ. e. amminósýrur) er fyrst og

Hvað verður um prótein eftir frásog? • Prótein (þ. e. amminósýrur) er fyrst og fremst notað til að byggja upp frumur og vefi • Ef ekki er þörf fyrir að byggja meira upp þá er þeim: – Brennt sem orku – Breytt í fitu – ATH: við föstu er amínósýrum breytt í glúkósa – ATH: þegar amminósýrum er brennt sem orku, breytt í glúkósa eða breytt í fitu þarf lifrin að klippa amminóhópin af a. s (amminósvipting)

Melting fitu • Engin melting í munni né maga – Reyndar er til tungnalípasi

Melting fitu • Engin melting í munni né maga – Reyndar er til tungnalípasi en hann brýtur niður óverulegan hluta af fitunni • Í skeifugörn er losað gall, sem brýtur fituna niður í minni dropa • Brisafinn inniheldur svo lípasa sem klýfur fituna niður í glýseról og fitusýrur. Þær eru svo endurmyndaðar í þrýglýseríð og frásogast innhjúpaðar lípópróteinum í sogæðakerfið • Sogæðakerfið losar fituna svo inn í bláæð – Sogæðakerfið tengist hjarta-og æðakerfinu hjá viðbeinsbláæðinni

Hvað verður um fitu eftir frásog • Fita er fyrst notuð til nýmyndunar, t.

Hvað verður um fitu eftir frásog • Fita er fyrst notuð til nýmyndunar, t. d. á frumuhimnunni og sterahormón • Í frumunum er henni brennt sem orku í hvatberum • Allur afgangur fer í geymslu • ATH: fitusýrur eru aðalorkugjafinn á milli mála, á meðan að sykrur eru aðalorkugjafinn strax og stuttu eftir máltíð

 • Því eru öllum orkuefnunum, hvort sem það er kolvetni, fita eða prótein

• Því eru öllum orkuefnunum, hvort sem það er kolvetni, fita eða prótein breytt í fitu ef of mikið er neytt af þeim. • Ef einstaklingurinn borðar meira en hann brennur, þá þyngist hann. Ef hann borðar minna en hann brennur, þá léttist hann – Það er nú ekki flóknari en það